Mosfellingur - 12.01.2017, Blaðsíða 24

Mosfellingur - 12.01.2017, Blaðsíða 24
Kæru Mosfellingar! Um áramót er gott að staldra aðeins við, líta um öxl og jafnframt horfa fram á veginn. Höfum við gengið til góðs og hvernig blasir framtíðin við okkur? Árið 2016 var að mörgu leyti mjög viðburðaríkt og merkilegt ár hér á landi sem og úti í hinum stóra heimi. Íslendingar kusu nýjan forseta sem er kominn vel á veg með að ávinna sér traust og virðingu þjóðarinnar. Það sama er ekki hægt að segja um nýkjörinn forseta Banda- ríkjanna, voldugasta ríkis heims. Þar er ekki sama sáttin um niðurstöðuna, enda var mjótt á munum og málflutn- ingur hins nýkjörna forseta ekki beinlínis til þess fallinn að miðla málum eða skapa sátt. Þetta finnst mér vera í andstöðu við þá þróun sem átt hefur sér stað á okkar góða landi. Ég skynja meiri sátta- hug í samfélaginu og meiri vilja til samvinnu og mála- miðlana. Það eru atriði sem mér finnst hafa skort tölu- vert á síðustu ár í kjölfar fjármálahrunsins og þeirra sára sem hrunið bjó til. Kosið var til Alþingis á árinu og voru niðurstöður kosninganna að mörgu leyti merkilegar í sögulegu sam- hengi. Fleiri flokkar hlutu brautargengi inn á Alþingi en áður sem gert hefur stjórnarmyndun flóknari. Nú eru gerðar meiri kröfur til málamiðlana en þegar þetta er skrifað virðist ný ríkisstjórn vera í burðarliðnum. Ríkis- stjórn sem ég hef fulla trúa á að verði góð ríkisstjórn sem getur haldið áfram þeim góðu verkum sem unnin hafa verið og leitt okkur áfram til enn meiri hagsældar á land- inu okkar góða. Kjarasamningar settu svip sinn á árið Rekstrarumhverfi Mosfellsbæjar fór batnandi á árinu 2016 samfara aukinni hagsæld í þjóðfélaginu. Tekjur hafa aukist þó að kostnaður hafi líka hækkað töluvert vegna nýrra kjarasamninga. En kjarasamningagerð setti töluverðan svip á rekstur sveitarfélaga á árinu 2016. Kjaradeila við grunnskólakennara var erfið. Kennarar felldu í tvígang samninga milli samninganefndar sveit- arfélaga og Félags grunnskólakennara og það var ekki fyrr en í lok árs sem þriðji samningurinn var samþykktur. Það var fagnaðarefni að samningar skyldu nást en ekki verður vikist undan því að þessi erfiða kjaradeila skilur eftir sig einhver sár sem við sveitarstjórnarfólk, kennarar og skólastjórnendur þurfum að leggja okkur fram um að græða á næstu mánuðum og misserum. Sátt verður að nást til framtíðar um kjör og vinnufyrir- komulag kennara. Að öðrum kosti mun hið mikilvæga starf sem fer fram í skólunum okkar líða fyrir það. Það er einnig áhyggjuefni að ekki hefur tekist að leysa kjara- deilu milli tónlistarskólakennara og sveitarfélaga en langur tími er síðan sá samningur rann út. Það er verk- efni nýs árs að leysa þessa deilu og er það mín skoðun að til þess að það sé gerlegt þurfi báðir samningsaðilar að gefa eftir svo málmiðlun sé möguleg. Mikil uppbygging í Mosfellsbæ Betra efnahagsástand hefur í för með sér aukna eftir- spurn eftir lóðum. Um 400 nýjar íbúðir eru í uppbygg- ingu í Helgafellshverfi einu. Auk þess eru íbúðir í bygg- ingu í Leirvogstungu og víðar í bænum. Líklegt er að á nýju ári hefjist uppbygging um 200 íbúða í miðbænum. Það mun setja nýjan svip á miðbæinn okkar og gera hann samkeppnishæfari um verslun, þjónustu og ýmis konar menningu. Svona mikil uppbygging kallar einnig á fjárfestingar í innviðum. Framkvæmdir við gatnagerð verða því áberandi á nýju ári, einkum í nýjum hverfum. Eins fer fram endurnýjun á gangstéttum og öðru viðhaldi í eldri hverfum. Fram- kvæmdir eru hafnar við nýjan skóla í Helgafellshverfi en það verður langstærsta einstaka framkvæmd sveitarfé- lagsins á næstu árum. Gert er ráð fyrir að fyrsti áfangi skólans verði tekinn í notkun haustið 2018. Það er einnig ánægjulegt að greina frá því að uppbygg- ing á atvinnuhúsnæði verður talsverð á næstu árum. Lóðum hefur verið úthlutað í Desjamýri og uppbygg- ing þar hafin. Samningur hefur verið gerður um upp- byggingu á lóðum við Sunnukrika sem einnig er hluti af miðsvæði bæjarins. Þar hefur lóðum verið úthlutað til mögulegrar hótelbyggingar og ferðaþjónustu. Samningur hefur verið gerður milli landeiganda og Mosfellsbæjar um uppbyggingu á verslun og þjónustu á svæði syðst á Blikastaðalandi en þar gerir aðalskipu- lag ráð fyrir að geti byggst um allt að 100 þúsund fm atvinnuhúsnæðis. Þetta eru allt góðar fréttir fyrir íbúa Mosfellsbæjar og afkomu sveitarfélagsins. Þjónustuaukning samkvæmt fjárhagsáætlun Fjárhagsáætlun fyrir árið 2017 felur í sér ákvörðun um aukna þjónustu sveitarfélagsins ásamt lækkun skatta og gjalda. Má nefna að grunnfjárhæð frístundaávísunar hækkar um rúm 18% og stofnun Ungmennahúss verð- ur veitt brautargengi í samstarfi við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ. Auknum fjármunum verður veitt til leikskóla bæjarins svo hægt verði að taka á móti 1 – 2ja ára börnum með sem bestum hætti. Auk þessa er gert ráð fyrir að tón- listarkennsla Listaskólans inni í grunnskólunum verði efld svo fleiri nemendur eigi þess kost að stunda tón- listarnám. Bæjarstjórn hefur samþykkt að lækka álagningarhlut- fall útsvars sem og álagningarhlutföll fasteignagjalda. Þannig er tryggt að allir njóti með einhverjum hætti góðs af betra rekstrarumhverfi sveitarfélagsins. Ekki er gert ráð fyrir hækkun gjaldskráa almennt fyrir veitta þjón- ustu, s.s. leikskólagjalda og eru gjaldskrár því að lækka að raungildi. Framtíðin er björt í Mosfellsbæ og með gildin okkar góðu VIRÐINGU – JÁKVÆÐNI - FRAMSÆKNI og UM- HYGGJU að leiðarljósi eru okkur allir vegir færir. Mos- fellsbær á 30 ára kaupstaðarafmæli í ágúst og verður haldið upp á það með veglegum hætti. Af áhugaverðum verkefn- um má einnig nefna lýðræð- isverkefnið Okkar Mosó sem ég bind vonir við að fái góðar móttökur hjá bæjarbúum. Ég vil nota tækifærið og þakka ykkur öllum fyrir gott samstarf, samskipti, vináttu og stuðning á árinu 2016 og megi nýrunnið ár verða okkur öllum gæfu- ríkt og gleðilegt. Haraldur Sverrisson bæjarstjóri kristinn freyr hefur gert samning við sundsvall - Nýarskveðja og íþróttir24 Með ósk um gæfuríkt ár Um áramót nýarskveðja bæjarstjóra Kristinn Freyr Sigurðsson sem er 25 ára skrif- aði nýverið undir samning við sænska úrvals- deildarfélagið Sundsvall. Kristinn byrjaði knatt- spyrnuferilinn í Aftureldingu. „Ég byrjaði að æfa bæði handbolta og fótbolta 5 til 6 ára gamall og var bara nokkuð sprækur í báðum íþróttunum. Um 12 ára aldur ákvað ég að einbeita mér algjörlega að fótboltanum. Ég var í mjög öflugum árgangi hjá Aftureld- ingu. Þegar ég var á yngra ári í 4. flokki spiluð- um við úrslitaleikinn í Íslandsmótinu sem við reyndar töpuðum, algjör dómaraskandall,“ segir Kristinn og hlær. Fyrsti meistaraflokksleikurinn 16 ára „Fjölskylda mín flutti í Grafarvoginn þegar ég var að byrja í 3. flokki en ég var áfram í Aftureld- ingu, vildi vera með vinunum og þjálfurunum þeim Lalla og Bjarka. Ég skipti yfir í Fjölni þegar ég var á eldra ári í 3. flokki og spilaði minn fyrsta meistarflokksleik með þeim 16 ára gamall. Ég var svo keyptur yfir í Val þegar ég var í kringum tvítugt og hef verið þar síðan. Það hef- ur gengið misvel hjá mér en á síðasta tímbili má eiginlega segja að ég hafi sprungið út.“ Kristinn var valin besti leikmaður Pepsideild- ar karla 2016 og var í harðri baráttu um marka- kóngstitilinn. Æfa meira en aðrir og hafa trú á sjálfum sér „Ég held að fólk myndi ekki trúa því hve mikl- um tíma ég hef eytt í æfingar og aukaæfingar, en það er að skila sér. Ég er mjög tilbúinn í að stíga þetta skref sem það er að fara út í atvinnumennskuna. Ég er kannski að fara seinna en ég vonaðist til en á móti kemur að ég er þroskaðri og tilbúnari að takast á við þetta verkefni. Það sem hefur skilað mér mestu er að æfa meira en aðrir, hafa alltaf trú á sjálfum mér og missa aldrei sjónar á markmiðunum,“ segir Kristinn að lokum. Kristinn hóf feril sinn í Aftureldingu • Valinn bestur í Pepsideild Farinn til Svíþjóðar í atvinnumennskuna

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.