Mosfellingur - 12.01.2017, Blaðsíða 29
Íþróttir og aðsent efni - 29
Nýlega var undirritað samkomulag
um tæknilausn fyrir nýja gas- og
jarðgerðarstöð í Álfsnesi.
Forsaga þess máls er að árið
2013 gerðu sveitarfélögin á höf-
uðborgarsvæðinu að frumkvæði
Mosfellsbæjar, eigendasamkomu-
lag um ráðstafanir varðandi með-
höndlun úrgangs og byggingu gas-
og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi.
Ástæða þessa samkomulags var
fyrst og fremst sú að urðunarstað-
urinn í Álfsnesi hefur verið okkur
Mosfellingum til mikilla ama sl.
ár. Lyktarmengun hefur verið frá
staðnum og kvartanir borist frá
íbúum. Við það var auðvitað ekki
unað.
Með þessu samkomulagi skuldbundu
eigendur SORPU bs. sig til að vinna sam-
eiginlega að heildarsýn til lengri framtíðar
í úrgangsmálum og að úrgangur og förgun
hans yrði ekki nærumhverfinu til ama. Nið-
urstaðan var að reisa gas- og jarðgerðarstöð
á Álfsnesi.
Stórt skref í umhverfismálum – urðun í
Álfsnesi hætt
Mosfellsbær hefur lagt sig fram við að
gæta hagsmuna íbúa gagnvart málefnum
Sorpu bs. allt frá því að Reykjavíkurborg
ákvað að leggja niður urðunarstaðinn í
Gufunesi og finna honum nýjan stað á
Álfsnesi.
Bygging gas- og jarðgerðarstöðvarinn-
ar er stórt skref í umhverfismálum á höf-
uðborgarsvæðinu og afar mikilvægt fyrir
Mosfellsbæ. Með tilkomu hennar verður
hætt að urða heimilisúrgang en í stað þess
verðmæt gas- og jarðgerðarefni unnin úr
honum. Áætlað er að bygging stöðvarinn-
ar hefjist á þessu ári og miðað við að hún
verði tekin í notkun síðari hluta árs 2018.
Stefnt er að því að yfir 95% af heimilis-
sorpi verði endurunnið þegar stöðin er
komin í gagnið. Um 70% af því sem fer í
venjulega heimilistunnu í dag er lífrænt
efni sem nýtist til framleiðslu metans og
jarðvegsbætis. Samkvæmt eigendasam-
komulaginu verður urðun í Álfs-
nesi hætt fyrir árið 2021
Kostir gas – og
jarðgerðarstöðvar
Gas- og jarðgerðarstöðin mun
geta tekið við um 35 þúsund tonn-
um af blönduðum heimilisúrgangi
á ári. Hægt verður að stækka stöð-
ina þegar þörf verður á því. Stefnt
er að því að auka endurvinnslu-
hlutfall þessa hluta úrgangsins
einnig.
Samkvæmt Landsáætlun er
stefnt að því að árið 2020 verði
einungis 15% af þessum úrgangi
urðaður, árið 2021 verður ekki
lengur mögulegt að urða lífrænan
og/eða brennanlegan úrgang og árið 2025
er markmiðið að undir 5% af öllum úrgangi
sem berst SORPU verði ekki endurnýttur.
Meginástæða fyrir byggingu stöðvarinn-
ar er að:
• endurnýta lífrænan úrgang.
• draga úr lyktarmengun.
• minnka urðun á blönduðum heimilis-
úrgangi.
• nýta innlenda orku í stað innflutts elds-
neytis.
• minnka sótspor íbúa með því að nýta
metanið sem ökutækjaeldsneyti.
Betri tímar
Með nýrri gas- og jarðgerðarstöð SORPU
verður nánast allur lífrænn úrgangur sem
til fellur frá heimilum á svæðinu endur-
unninn. Hér er því um mjög metnaðar-
fullt verkefni að ræða sem mun gjörbylta
vinnslu úrgangs hérlendis og stuðla að
aukinni endurvinnslu á öðrum tegundum
úrgangs.
Við Mosfellingar megum því eiga von á
betri tímum og njóta sumars án lyktar og
tilheyrandi óþæginda og því ber að fagna
Kolbrún G. Þorsteinsdóttir,
stjórnarmaður í Sorpu og bæjarfulltrúi
Hafsteinn Pálsson,
varamaður í stjórn Sorpu og bæjarfulltrúi
Gas- og jarðgerðarstöð
rís á Álfsnesi Heilsuárið framundanGleðilegt ár kæru Mosfellingar
og nærsveitungar!
Um áramót eru margir sem
setja sér markmið fyrir komandi
ár og líta margir á þessi tímamót
sem nýtt upphaf þar sem fram-
undan eru 365 óskrifaðir dagar
og þar með ótal tækifæri til að
efla eigin vellíðan og annarra.
Ég sjálf ætla t.d. að temja mér að
hrósa meira, hugsa jákvætt, vera þakk-
lát, sjá og grípa tækifærin og bara að
vanda mig almennt við það að vera glöð
og gefandi manneskja.
Lífsgæði
Fjórði áhersluþátturinn í uppbygg-
ingu Heilsueflandi samfélags í Mosfells-
bæ ber yfirskriftina Lífsgæði. Hugtakið
er ansi vítt enda margt sem hefur áhrif
á lífsgæði okkar. Það sem eru lífsgæði
fyrir einn þurfa ekki endilega að vera
lífsgæði fyrir annan. Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunin (WHO) skilgreinir lífs-
gæði á þann hátt að þau séu huglægt
mat á aðstæðum einstaklinga eða hópa
sem verða fyrir áhrifum frá ýmsum þátt-
um, þáttum sem ákvarða m.a. heilsu og
hamingju, menntun, félagslega og vits-
munalega fullnægju, frelsi og réttindi.
Hvað skapar lífsgæði?
WHO hefur gefið út staðlaða lista
til þess að mæla lífsgæði. Þessir listar
eru þvermenningarlegt mælitæki sem
hafa verið notaðir víða um heim og eru
margprófaðir. Það vill svo skemmtilega
til að á listunum eru
26 fullyrðingar þar
sem spurt er um líkam-
lega heilsu, andlega heilsu,
félagsleg sambönd og um-
hverfi en þetta eru einmitt þeir
áhrifaþættir heilsu og vellíðun-
ar sem við höfum verið að fást
við í vegferð okkar að heilsuefl-
andi samfélagi.
Verkefnin fram undan
Við munum að sjálfsögðu halda áfram
öllum þeim góðu verkefnum sem verið
hafa í gangi varðandi næringu og mat-
aræði, hreyfingu og útivist og geðrækt
undanfarin ár enda erum við sífellt að
byggja ofan á það sem fyrir er, að treysta
grunninn. Á árinu munum við til við-
bótar þessu m.a. beina sjónum okkar
að öryggi, orkustjórnun og umhverfi
svo fátt eitt sé talið. Þá er heldur ekki
loku fyrir það skotið að Lýðheilsuverð-
laun Mosfellsbæjar verði afhent í fyrsta
skipti með hækkandi sól.
Við hlökkum sem fyrr til að starfa
áfram með ykkur að uppbyggingu
heilsueflandi samfélags hér í Mosfells-
bæ og þökkum kærlega fyrir samvinn-
una hingað til. Góðar hugmyndir eru að
sjálfsögðu vel þegnar á netfangið heilsu-
vin@heilsuvin.is.
Ólöf Kristín Sívertsen,
lýðheilsufræðingur og verkefnisstjóri
Heilsueflandi samfélags í Mosfellsbæ
H
e
i
l
s
u
v
i
n
í
M
o
s
f
e
l
l
s
b
æ
e
r
h
l
u
t
a
f
é
l
a
g
í
e
i
g
u
f
y
r
i
r
t
æ
k
j
a
o
g
e
i
n
s
t
a
k
l
i
n
g
a
í
h
e
i
l
s
u
þ
j
ó
n
u
s
t
u
í
M
o
s
f
e
l
l
s
b
æ
.
S
t
a
r
f
f
r
a
m
k
v
æ
m
d
a
s
t
j
ó
r
a
f
e
l
u
r
í
s
é
r
a
l
m
e
n
n
t
u
t
a
n
u
m
h
a
l
d
u
m
s
t
a
r
f
k
l
a
s
a
n
s
,
k
y
n
n
i
n
g
a
r
-
o
g
m
a
r
k
a
ð
s
s
t
a
r
f
,
ö
f
l
u
n
n
ý
r
r
a
h
l
u
t
h
a
f
a
f
y
r
i
r
k
l
a
s
a
n
n
,
u
m
s
j
ó
n
m
e
ð
u
m
s
ó
k
n
u
m
u
m
s
t
y
r
k
i
,
b
ó
k
h
a
l
d
o
g
f
l
e
i
r
a
.
N
á
n
a
r
i
u
p
p
l
ý
s
i
n
g
a
r
u
m
H
e
i
l
s
u
v
i
n
e
r
a
ð
f
i
n
n
a
á
s
l
ó
ð
i
n
n
i
w
w
w
.
h
e
i
l
s
u
v
i
n
.
c
o
m
.
N
á
n
a
r
i
u
p
p
l
ý
s
i
n
g
a
r
u
m
s
t
a
r
f
i
ð
v
e
i
t
i
r
J
ó
n
P
á
l
s
s
o
n
,
s
t
j
ó
r
n
a
r
f
o
r
m
a
ð
u
r
H
e
i
l
s
u
v
i
n
j
a
r
g
e
g
n
u
m
n
e
t
f
a
n
g
i
ð
j
o
n
@
a
n
s
.
i
s
.
U
m
s
ó
k
n
i
r
s
k
u
l
u
s
e
n
d
a
r
á
n
e
t
f
a
n
g
i
ð
h
e
i
l
s
u
v
i
n
@
h
e
i
l
s
u
v
i
n
.
c
o
m
f
y
r
i
r
3
.
m
a
r
s
n
æ
s
t
k
o
m
a
n
d
i
.
H
e
i
l
s
u
v
i
n
í
M
o
s
f
e
l
l
s
b
æ
ó
s
k
a
r
e
f
t
i
r
a
ð
r
á
ð
a
f
r
a
m
-
k
v
æ
m
d
a
s
t
j
ó
r
a
í
a
l
l
t
a
ð
5
0
%
s
t
a
r
f
heilsu
hornið
Heilsuvin í Mosfellsbæ er hlutafélag í eigu
fyrirtækja og einstaklinga í heilsuþjónustu í
Mosfellsbæ. Starf framkvæmdastjóra felur í sér
almennt utanumhald um starf klasans, kynningar-
og markaðsstarf, öflun nýrra hluthafa fyrir
klasann, umsjón með umsóknum um styrki,
bókhald og fleira.
Nánari upplýsingar um Heilsuvin er að finna á
slóðinni www.heils vin.com. Nánari upplýsingar
um starfið veitir Jón Pálss n, stjórnarformaður
Heilsuvinjar gegnum netfa gið jo @ans.is.
Umsóknir skulu sendar á netfangið
heilsuvin@heilsuvin.com fyrir 3. mars
næstkomandi.
Heilsuvin í Mosfellsbæ
óskar eftir að ráða fram-
kvæmdastjóra í allt að
50% starf
Heilsuvin í Mosfellsbæ er hlutafélag í eigu
fyrirtækja og einstaklinga í heilsuþjónustu í
Mosfellsbæ. Starf framkvæmdastjóra felur í sér
almennt utanumhald um starf klasans, kynningar-
og markaðsstarf, öflun nýrra hluthafa fyrir
klasann, umsjón með umsóknum um styrki,
bókhald og fleira.
Nánari upplýsingar um Heilsuvin er að finna á
slóðinni www.heilsuvin.com. Nánari upplýsingar
um starfið veitir Jón Pálsson, stjórnarformaður
Heilsuvinjar gegnum netfangið jon@ans.is.
Umsóknir skulu sendar á netfangið
heilsuvin@heilsuvin.com fyrir 3. mars
næstkomandi.
Heilsuvin í Mosfellsbæ
óskar eftir að ráða fram-
kvæmdastjóra í allt að
50% starf
Heilsuvin í Mosfellsbæ er hlutafélag í eigu
fyrirtækja og einstaklinga í heilsuþjónustu í
Mosfellsbæ. Starf framkvæmdastjóra felur í sér
almennt utanumhald um starf klasans, kynningar-
og markaðsstarf, öflun nýrra hluthafa fyrir
klasann, umsjón með umsóknum um styrki,
bókhald og fleira.
Nánari upplýsingar um Heilsuvin er að finna á
slóðinni www.heilsuvin.com. Nánari upplýsingar
um starfið veitir Jón Pálsson, stjórnarformaður
Heilsuvinjar gegnum netfangið jon@ans.is.
Umsóknir skulu sendar á netfangið
heilsuvin@heilsuvin.com fyrir 3. mars
næstkomandi.
Heilsuvin í Mosfellsbæ
óskar eftir að ráða fram-
kvæmdastjóra í allt að
50% starf
heilsuvin í mosfellsbæ
Árni Bragi Eyjólfsson handknattleiksmaður og Thelma
Dögg Grétarsdóttir blakkona voru valin íþróttafólk
Aftureldingar á uppskeruhátíð félagsins sem fram fór í
Hlégarði þann 2. janúar.
Spilar stórt hlutverk með toppliði Olísdeildarinnar
Árni Bragi er harðduglegur íþróttamaður sem spilað hef-
ur stórt hlutverk í liði meistaraflokks karla hjá Aftureld-
ingu. Hann er 22 ára gamall og átti stóran þátt í frábærum
árangri Aftureldingar í Olísdeildinni á síðasta tímabili.
Árni Bragi er fjölhæfur og klókur leikmaður og getur
spilað bæði sem hornamaður og hægri skytta. Hann er
jafnframt einn fljótasti og besti hraðaupphlaupsmaður
deildarinnar.
Hann sinnir æfingum af dugnaði og samviskusemi, er
reglusamur og meðvitaður um andlega og líkamlega
þætti sem skipta máli í þjálfun og keppni.
Hefur tekið þátt í öllum titlum liðsins
Thelma Dögg Grétarsdóttir hefur æft blak með Aftureld-
ingu frá því hún var 7 ára gömul. Hún hefur verið fasta-
manneskja í úrvalsdeildarliði deildarinnar frá því að hún
var 15 ára gömul og verið með í öllum titlum liðsins frá
því að það var stofnað.
Thelma Dögg, sem er 19 ára gömul, hefur spilað með
unglingalandsliðum Íslands frá því að hún var 14 ára
gömul og síðustu 2 ár verið með A landsliði kvenna.
Thelma Dögg er mjög metnaðarfull og stundar íþrótt sína
af miklum krafti og áhuga sem smitar út frá sér og mark-
mið hennar eru skýr hvað íþróttina varðar.
Hún náði frábærum árangri á síðustu leiktíð með Aftur-
eldingu í Mizunodeild kvenna sem vann þrefalt. Thelma
Dögg var valin í lið ársins í deildinni og jafnframt stiga-
hæsti leikmaðurinn.
Thelma Dögg Grétarsdóttir blakkona og Árni Bragi Eyjólfsson handknattleiksmaður heiðruð eftir gott ár
Íþróttafólk aftureldinGar 2016
Thelma Dögg
og árni bragi
Sendið okkur myndir af nýjum Mosfellingum ásamt
helstu upplýsingum á mosfellingur@mosfellingur.is