Mosfellingur - 12.01.2017, Blaðsíða 4

Mosfellingur - 12.01.2017, Blaðsíða 4
www.lagafellskirkja.is kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna sunnudagurinn 15. janúar Guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 11:00 Sr. Arndís Linn sunnudagurinn 22. janúar Guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 20:00 Sr. Ragnheiður Jónsdóttir sunnudagurinn 29. janúar Guðsþjónusta í Mosfellskirkju kl. 11:00 Sr. Arndís Linn sunnudagaskólinn er í lágafellskirkju kl. 13:00 á sunnudögum Allir velkomnir. Allar nánari upplýsingar um safnaðarstarfið og dagskrá aðventunni er að finna á heimasíðu kirkjunnar: www.lagafellskirkja.is - Bæjarblaðið í Mosfellsbæ64 Rafræn kosning um íþróttakarl og -konu Búið er að tilnefna 17 einstaklinga til íþróttakarls og -konu Mosfells- bæjar 2016. Sjö karlar eru tilnefndir og tíu konur. Íþróttafólkið er kynnt betur til sögunnar annars staðar í blaðinu. Bæjarbúum gefst kostur á, ásamt aðal- og varamönnum í íþrótta- og tómstundanefnd, að kjósa um tilnefningarnar. Kosningin fer fram á vef Mosfellsbæjar www. mos.is dagana 12.-16. janúar. Velja skal karl í 1., 2. og 3. sæti sem og konu í 1., 2. og 3. sæti. Úrslit verða kynnt fimmtudaginn 19. janúar kl. 19 í íþróttamiðstöðinni að Varmá. Þangað eru allir velkomnir. Á mynd- inni hér að ofan má sjá íþróttamenn Mosfellsbæjar 2015, þau Írisi Evu Einarsdóttur skotfimikonu og Reyni Örn Pálmason hestaíþróttamann. laugardaginn 21. janúar 2017 Góðar hugmyndir óskast frá bæjarbúum • Kosið um bestu hugmyndirnar að lokum lýðræðisverkefnið Okkar Mosó sett á laggirnar Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur ákveðið að fara af stað með lýðræðisverkefnið Okkar Mosó á árinu 2017. Verkefnið er samráðsverkefni íbúa og bæjarins um forgangsröðun og úthlutun fjármagns til smærri nýframkvæmda- og viðhaldsverkefna í Mosfellsbæ. Gert er ráð fyrir að 25 milljónum króna verði varið í að framkvæma þær hugmyndir sem fá braut- argengi. kosið í rafrænni kosningu Óskað verður eftir snjöllum hugmynd- um frá íbúum sem síðan verður kosið um í rafrænni íbúakosningu. Hugmyndirnar geta varðað leik- og afþreyingarsvæði íbúa, vistvænar samgöngur, bætta lýðheilsu eða umhverfið almennt. Hægt verður að skila inn hugmyndum rafrænt í þar til gerðu kerfi sem verður að- gengilegt á heimasíðu Mosfellsbæjar. Verkefnið í heild er í fjórum fösum. Hug- myndasöfnun, umræða um hugmyndir og úrvinnsla, kosningar og framkvæmd. Hugmyndasöfnunin hefst 1. febrúar næstkomandi og allar upplýsingar um verkefnið verður að finna á heimasíðu Mosfellsbæjar www.mos.is. Sa m se tt ar m yn di r VatnaVeröld á Stekkjarflöt? drykkjarStöð í hamrahlíð? Breytingar á húsa- leigubótakerfinu Um áramót tóku gildi ný lög um húsnæðisbætur sem voru samþykkt á Alþingi í vor. Framvegis mun Vinnumálastofnun fyrir hönd ríkis- ins taka að sér að greiða út húsnæð- isbætur sem koma í stað almennra húsaleigubóta. Sveitarfélög munu sjá um að taka á móti umsóknum og afgreiðslu á sérstökum húsnæð- isstuðningi sem voru áður sérstakar húsaleigubætur. Nánari upplýsingar um almennan húsnæðisstuðning má finna hér á vefnum husbot.is Lítill drengur kom í heiminn kl. 02:20 þann 3. janúar • Fjölskyldan býr í Einiteig 1 fyrsti Mosfellingur ársins Þann 3. janúar kl. 02:20 fæddist fyrsti Mosfellingur ársins 2017 á Heilbrigð- isstofnun Vesturlands á Akranesi. Það var drengur sem var 3.474 gr og 52 cm. Foreldrar hans eru Sigurður Grétar Ágústs- son og Svanfríður Arna Jóhannsdóttir og búa þau í Einiteig 1. Drengurinn er þriðja barn þeirra hjóna en fyrir eiga þau Hörpu Dagbjörtu 14 ára og Almar Jökul 6 ára. „Ég átti að eiga hann 1. janúar en hann ákvað að koma þann þriðja. Fæðingin gekk ótrúlega vel, hann kom í rauninni mjög hratt í heiminn. Hann er mjög rólegur og við erum í skýjunum með hann. Við erum búin að búa hér í Mosfellsbænum í rúmt ár. Okkur líkar mjög vel, hér er rólegt og mjög barnvænt,“ segir Svanfríður Arna. drengurinn í góðum höndum Landsleikur í beinni í íþróttahúsinu Fyrir kjör íþótta- fólks Mosfells- bæjar fimmtu- daginn 19. janúar verður lands- leikur Íslands og Makedóníu sýndur. Leiknum verður varpað á stórt tjald í íþróttahúsinu að Varmá og eru allir velkomnir. Gestir fá ís í hálfleik. Leikurinn hefst kl. 16:45.

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.