Mosfellingur - 12.01.2017, Blaðsíða 10

Mosfellingur - 12.01.2017, Blaðsíða 10
Undanfarin tvö ár hafa verið viðburðarík hjá strákunum í mosfellsku hljómsveitinni Kaleo. Blaðamaður Mosfellings hitti Jökul Júlíusson, söngvara hljómsveitarinnar, sem staddur er hér á landi í fríi yfir hátíðarnar. „Það er rosalega gott að koma heim og hlaða batteríin. En ég er líka búinn að nota tímann vel í að semja ný lög og texta. Ég fer ekki aftur út fyrr en eftir þorrablótið, sem er frábært því ég var mjög svekktur að geta ekki komið í fyrra.“ Ferðast um í tveimur rútum „Þetta er lengsta fríið sem við höfum fengið síðan við fórum út fyrir tveimur árum en við höfum verið á fullu síðan. Við fórum til London í febrúar 2015 til að taka upp nýtt efni fyrir erlendan markað. Í kjölfarið fluttum við til Texas í Bandaríkjunum þar sem við fengum hús í útjaðri Austin. Þar bjuggum við þangað til í apríl 2016 en þá fluttum við til Nashville. Við erum nú minnst þar því við erum alltaf á ferðinni. Við ferðumst um á tveimur lúxusrútum. Ég er með eina rútu og strákarnir með aðra og við erum alltaf með sirka 10 manna „crew“ með okkur.“ Eru búnir að spila í 48 fylkjum Kaleo gaf út hljómplötuna A/B í júní en hún hefur nú þegar hlotið gull í Bandaríkjunum og platínu í Kanada. „Við vorum að koma úr fimm mánaða túr um Bandaríkin og Evrópu þar sem við erum að fylgja eftir útgáfu plötunnar. Við höfum svo til spilað upp á hvern einasta dag. Svo gengur þetta líka mikið út á að komast að hjá út- varpsstöðvunum, hitta fólk og byggja upp tengslanet. Þetta er svo svakalega stór markaður. Þetta er alveg þrotlaus vinna, við erum búnir að spila í 48 fylkjum í Bandaríkjun- um á þessum tveimur árum. Við eigum Alaska og Havaí eftir, en við spilum á Havaí í apríl,“ segir Jökull. Um 200 manns koma að hljómsveitinni Hljómsveitin hefur verið tilnefnd til ýmissa viðurkenn- inga en Billboard útnefndi Kaleo sem bestu nýju rokk- hljómsveit ársins 2016. Árið 2017 er orðið fullbókað hjá Kaleo og bókanir farnar að berast fyrir árið 2018. „Umboðsskrifstofan og plötufyrirtækið sjá um öll þessi mál fyrir okkur, þetta er orðið rosalegt batterí. Ég myndi ætla að það séu yfir 200 manns sem koma að hljómsveitinni á einhvern hátt á hverjum degi.“ Vill sjá aðstöðu fyrir unga listamenn „Það vekur athygli að við komum frá 9 þúsund manna bæ á Íslandi. Og að við séum búnir að vera saman í hljómsveit síðan í Gaggó. Við höfðum æfingaaðstöðu í gamla Selinu sem bærinn bauð upp á, æfðum þar þegar við vildum, meðal annars fyrir Músíktilraunir. Ég myndi vilja sjá að boðið væri upp á svona aðsöðu fyrir unga listamenn í Mosfellsbæ í dag. Við eigum svo mikið af hæfileikaríkum ungmennum sem þarf að halda vel utan um. Það er mér mjög mikilvægt því ég man hvað þetta gerði mikið fyrir mig. Það er allt annað að spila inni í herbergi eða syngja og spila í míkrafón og magnara,“ segir Jökull að lokum. - Fréttir af bæjarlífinu10 Þrotlaus vinna hjá strákunum í Kaleo • Nýkomnir úr fimm mánaða túr þar sem nýrri plötu hefur verið fylgt eftir „Gott að koma heim og hlaða batteríin“ M yn d/ Ra gg iÓ la jökull með splunkunýjan og sérsmíðaðan gítar eftir gítarsmiðinn peter turner Kærleiksvikan í Mosfellsbæ hefur verið haldin frá árinu 2010. Hún er hladin í febrúar og nær alltaf yfir konudag og stundum líka yfir Valentínusardag. Markmið Kærleiksvikunnar er að hver einasti íbúi bæjarins finni fyrir kærleik í sinn garð. Breytingar hafa orðið á skipulagningnefnd Kærleiksvikunnar í gegnum árin en Vigdís Steinþórsdóttir hefur staðið vaktina frá upphafi. Nú hefur hún fengið til liðs við sig tvær öflugar konur, þær Oddnýju Magnúsdóttur og Jóhönnu Magnúsdóttur. Stjórnendur vikunnar sjá um nokkra viðburði en aðal atriðið er að fyrirtæki geri eitthvað sem brýtur upp hversdagsleikann og gleður og hressir. Og auðvitað öll heimilin líka. Heiðra fyrir frábær störf Hefð hefur skapast fyrir því að heiðra einhverja fyrir frábær störf í þágu Mosfellinga. Heiðraðir hafa verið: Íbúar að Eirhömrum, eld- riborgarar í Mosfellsbæ, íbúar hjúkrunarheimil- inu Hömrum, Björgunarsveitin Kyndill, Leikfélag Mosfellsbæjar og Skógræktarfélag Mosfellsbæjar. „Starfsmenn Ásgarðs hafa verið svo elskulegir að gera fallegar gjafir fyrir okkur í þessu tilefni og færum við þeim bestu þakkir fyrir, segir Vigdís.“ „Við hvetjum alla til að taka þátt í Kærleiksvik- unni með okkur með skemmtilegu framtaki. Hægt er að hafa samband við okkur í gegnum netfangið vigdisstein@hotmail.com ef einhverjar spurningar vakna. Undibúningur hafinn fyrir Kærleiksviku sem fram fer 12.-19. febrúar Hvetja til þátttöku í fyrra var skógræktar- félagið heiðrað VANTAR ÞIG PENING? Átt þú íbúð/hús sem þú getur leigt út helgina 28.-30. maí þegar öldungamót í blaki verður haldið í Mosfellsbæ? Þá endilega hafðu samband í gegnum netfangið gunnasveins@gmail.com

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.