Mosfellingur - 12.01.2017, Blaðsíða 33

Mosfellingur - 12.01.2017, Blaðsíða 33
Eitt hrós á dag Það er ótrúlegt hvað neikvæðni smitar út frá sér. Ég ákvað fyrir nokkrum mánuðum að taka mig sjálfa á, ég var orðin rosalega neikvæð sem hafði áhr if á alla í kringum mig. Ég var ekki einu sinni meðvituð um það hversu neikvæ ð ég var fyrr en vinkona mín sagði það hreint út við mig. Þá fór ég að átta mig á hvað allir eru neikvæðir í daglegu lífi. Ég var ekki meðvituð um hvað allt er neikvætt fyrr en ég tók mig á, þá fyrst áttar maður sig á öllu. Ég las ekkert nema neikvæðar greinar og fréttir þegar ég opnaði samfélagsmiðla. Allta f þarf að gagnrýna allt með neikvæðni o g segja hvað er ómögulegt. En hvað er gott? Af hverju skoðum við það ekki oftar? Þegar maður les og sér ekkert nema neikvæðar fréttir og grei n- ar þá verður maður ómeðvitað nei- kvæður líka, það eru allir alltaf ómögu - legir og aldrei hægt að finna neitt gott við neinn. Þegar ég fór í menntaskóla núna síðastliðið haust þá ákvað ég að ég skyldi ekki vera svona neikvæð því ekki vill maður fá það orðspor á sig þegar maður kynnist nýju fólki. „Vá hvað þú ert sæt,“ „þú ert með svo flotta n fatastí,l“ „vá hvað hárið á þér er falleg t“ eru dæmi um setningar sem ég heyri daglega í nýja skólanum mínum vegna þess að fólk er ennþá að kynnast en um leið og einstaklingar hafa kynnst betu r þá er eins og hrósið gleymist. Ég ákvað að opna facebook-ið mitt og skoða aðeins statusana. Langflestir statusarnir voru um það hvað fólk var óánægt með þetta og hitt. Hvað ef allir myndu taka sig á og setja eitt hrós með í statusinn sinn? Það er rosalega miki ll skortur á hrósi og því sem gengur vel í dag. Þegar ég horfði á fréttir um dagin n þá var meirihlutinn af öllu sem fram kom neikvæð gagnrýni, en af hverju ekki að segja okkur hvað er gott við okkar samfélag? Við búum í svo flottu samfélagi að það á ekki að þurfa þessa neikvæðni alltaf. Nú er nýtt ár og margir búnir að setja sér ný markmið. Eitt af mínum markmiðum þetta ár er að sjá alltaf það jákvæða í öllu og taka ekki inn all a þessa neikvæðni í umhverfinu. Það myndi breyta svo miklu að tala vel um allt og alla. Þjónusta við mosfellinga verslum í heimabyggðsmá auglýsingar Ísskápur óskast Óska eftir nothæfum ískáp í búið. Væri gott ef hann væri tvöfaldur og með frystihólfi. Ef einhver má missa sinn þá hafið samband við Hafdísi í síma 665-1187. Smáauglýsingarnar eru fríar fyrir einstaklinga mosfellingur@mosfellingur.is Þjónusta við Mosfellinga - 33 Skýja luktirnar fáSt í BymoS Þorsteinn Lúðvíksson 865 7518 Leirutangi 35a 270 Mosfellsbær Sími: 865 7518 Netfang: steinismidar@gmail.com Öll almenn trésmíðavinna Viðhald fasteigna Sólpallar og girðingar Uppsetning á innréttingum Þorsteinn Lúðvíksson 865 7518 Leirutangi 35a 270 Mosfellsbær Sími: 865 7518 Netfang: steinismidar@gmail.com Öll almenn trésmíðavinna Viðhald fasteigna Só p l ar og girðingar Uppsetning á innréttingum Snyrti-, nudd- & fótaaðgerðastofan Líkami og sál Þverholti 11 - s. 566 6307 www.likamiogsal.is Verið hjartanlega velkomin! www.bmarkan.is ÞARF AÐ MÁLA? Öll almenn málningarvinna Fagmennska, vönduð vinnubrögð, góð umgengni og reynsla Einnig smiðir með mikla reynslu af allri smíðavinnu Fast verð eða tímavinna Athugaðu hvað við getum gert fyrir þig Málun og Smíði malunogsmidi@gmail.com S: 860 7896 Traust þjónusta Öll almenn málningarvinna Fagmennska, vönduð vinnubrögð, góð umgengni og reynsla Einnig smiðir með mikla reynslu af allri smíðavinnu Fast verð eða tímavinna - Athugaðu hvað við getum gert fyrir þig Málun og Smíði - malunogsmidi@gmail.com - S: 860-7896 TrausT þjónusTa Kiwanishúsið í Mosfellsbæ geysir.kiwanis.is Salur til útleigu fyrir fundi og mannfagnaði Pantanir hjá Guðrúnu í síma 863-1188 eða á kiwanishus.moso@gmail.com Sendu okkur þína smáauglýsingu í gegnum tölvupóst: mosfellingur@mosfellingur.is Þú getur auglýSt frÍtt (...allt að 50 orð) www.nstf.is Heilsu- og líkamsrækt Einkaþjálfun og kennsla www.malbika.is - sími 864-1220 Almenn lögfræðiráðgjöf Innheimtumál - Slysamál - Skilnaðarmál Erfðamál - Skipti dánarbúa Persónuleg þjónusta Margrét Guðjónsdóttir hdl. Háholti 14 - Sími 588 1400 - mglogmenn@mglogmenn.is - www.mglogmenn.is MG Lögmenn ehf.

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.