Mosfellingur - 12.01.2017, Side 10
Undanfarin tvö ár hafa verið viðburðarík hjá strákunum í
mosfellsku hljómsveitinni Kaleo. Blaðamaður Mosfellings
hitti Jökul Júlíusson, söngvara hljómsveitarinnar, sem
staddur er hér á landi í fríi yfir hátíðarnar.
„Það er rosalega gott að koma heim og hlaða batteríin.
En ég er líka búinn að nota tímann vel í að semja ný lög
og texta. Ég fer ekki aftur út fyrr en eftir þorrablótið, sem
er frábært því ég var mjög svekktur að geta ekki komið í
fyrra.“
Ferðast um í tveimur rútum
„Þetta er lengsta fríið sem við höfum fengið síðan við
fórum út fyrir tveimur árum en við höfum verið á fullu
síðan. Við fórum til London í febrúar 2015 til að taka upp
nýtt efni fyrir erlendan markað.
Í kjölfarið fluttum við til Texas í Bandaríkjunum þar sem
við fengum hús í útjaðri Austin. Þar bjuggum við þangað
til í apríl 2016 en þá fluttum við til Nashville. Við erum nú
minnst þar því við erum alltaf á ferðinni. Við ferðumst um
á tveimur lúxusrútum. Ég er með eina rútu og strákarnir
með aðra og við erum alltaf með sirka 10 manna „crew“
með okkur.“
Eru búnir að spila í 48 fylkjum
Kaleo gaf út hljómplötuna A/B í júní en hún hefur nú
þegar hlotið gull í Bandaríkjunum og platínu í Kanada. „Við
vorum að koma úr fimm mánaða túr um Bandaríkin og
Evrópu þar sem við erum að fylgja eftir útgáfu plötunnar.
Við höfum svo til spilað upp á hvern einasta dag.
Svo gengur þetta líka mikið út á að komast að hjá út-
varpsstöðvunum, hitta fólk og byggja upp tengslanet. Þetta
er svo svakalega stór markaður. Þetta er alveg þrotlaus
vinna, við erum búnir að spila í 48 fylkjum í Bandaríkjun-
um á þessum tveimur árum. Við eigum Alaska og Havaí
eftir, en við spilum á Havaí í apríl,“ segir Jökull.
Um 200 manns koma að hljómsveitinni
Hljómsveitin hefur verið tilnefnd til ýmissa viðurkenn-
inga en Billboard útnefndi Kaleo sem bestu nýju rokk-
hljómsveit ársins 2016. Árið 2017 er orðið fullbókað hjá
Kaleo og bókanir farnar að berast fyrir árið 2018.
„Umboðsskrifstofan og plötufyrirtækið sjá um öll þessi
mál fyrir okkur, þetta er orðið rosalegt batterí. Ég myndi
ætla að það séu yfir 200 manns sem koma að hljómsveitinni
á einhvern hátt á hverjum degi.“
Vill sjá aðstöðu fyrir unga listamenn
„Það vekur athygli að við komum frá 9 þúsund manna bæ
á Íslandi. Og að við séum búnir að vera saman í hljómsveit
síðan í Gaggó. Við höfðum æfingaaðstöðu í gamla Selinu
sem bærinn bauð upp á, æfðum þar þegar við vildum,
meðal annars fyrir Músíktilraunir.
Ég myndi vilja sjá að boðið væri upp á svona aðsöðu fyrir
unga listamenn í Mosfellsbæ í dag. Við eigum svo mikið af
hæfileikaríkum ungmennum sem þarf að halda vel utan
um. Það er mér mjög mikilvægt því ég man hvað þetta gerði
mikið fyrir mig. Það er allt annað að spila inni í herbergi
eða syngja og spila í míkrafón og magnara,“ segir Jökull að
lokum.
- Fréttir af bæjarlífinu10
Þrotlaus vinna hjá strákunum í Kaleo • Nýkomnir úr fimm mánaða túr þar sem nýrri plötu hefur verið fylgt eftir
„Gott að koma heim og hlaða batteríin“
M
yn
d/
Ra
gg
iÓ
la
jökull með splunkunýjan
og sérsmíðaðan gítar eftir
gítarsmiðinn peter turner
Kærleiksvikan í Mosfellsbæ hefur verið haldin frá
árinu 2010. Hún er hladin í febrúar og nær alltaf
yfir konudag og stundum líka yfir Valentínusardag.
Markmið Kærleiksvikunnar er að hver einasti íbúi
bæjarins finni fyrir kærleik í sinn garð.
Breytingar hafa orðið á skipulagningnefnd
Kærleiksvikunnar í gegnum árin en Vigdís
Steinþórsdóttir hefur staðið vaktina frá upphafi.
Nú hefur hún fengið til liðs við sig tvær öflugar
konur, þær Oddnýju Magnúsdóttur og Jóhönnu
Magnúsdóttur.
Stjórnendur vikunnar sjá um nokkra viðburði
en aðal atriðið er að fyrirtæki geri eitthvað sem
brýtur upp hversdagsleikann og gleður og hressir.
Og auðvitað öll heimilin líka.
Heiðra fyrir frábær störf
Hefð hefur skapast fyrir því að heiðra einhverja
fyrir frábær störf í þágu Mosfellinga.
Heiðraðir hafa verið: Íbúar að Eirhömrum, eld-
riborgarar í Mosfellsbæ, íbúar hjúkrunarheimil-
inu Hömrum, Björgunarsveitin Kyndill, Leikfélag
Mosfellsbæjar og Skógræktarfélag Mosfellsbæjar.
„Starfsmenn Ásgarðs hafa verið svo elskulegir
að gera fallegar gjafir fyrir okkur í þessu tilefni og
færum við þeim bestu þakkir fyrir, segir Vigdís.“
„Við hvetjum alla til að taka þátt í Kærleiksvik-
unni með okkur með skemmtilegu framtaki. Hægt
er að hafa samband við okkur í gegnum netfangið
vigdisstein@hotmail.com ef einhverjar spurningar
vakna.
Undibúningur hafinn fyrir Kærleiksviku sem fram fer 12.-19. febrúar
Hvetja til þátttöku
í fyrra var skógræktar-
félagið heiðrað
VANTAR ÞIG
PENING?
Átt þú íbúð/hús sem þú getur leigt út
helgina 28.-30. maí þegar öldungamót
í blaki verður haldið í Mosfellsbæ?
Þá endilega hafðu samband í gegnum
netfangið gunnasveins@gmail.com