Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Qupperneq 46

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Qupperneq 46
46 MATUR 26. október 2018 A llur okkar matur er svo sterkur að það er nánast ekki hægt að éta hann. Þetta er hálfgerð pungakeppni þar sem við keppumst við að reyna að halda andlitinu. Þetta er mjög skemmtilegt,“ segir Egilsstaðabúinn Guðmundur Bj. Hafþórsson. Hann er einn af átta karlmönnum sem skipa sérstakan chilimatarklúbb austur á fjörðum. Eins og nafnið gefur til kynna er chilipipar heilag- ur kaleikur klúbbsins. „Fyrst þegar við stofnuðum klúbbinn keyptum við fullt af fersk- um chilipipar, til dæmis habanero og jafnvel sterkari pipar en það. Þetta átti að vera þrepaskipt smökk- un þar sem fyrst yrði smakkaður daufur chili, svo aðeins sterkari og loks mjög sterkur. Nema ég greip óvart sterkasta í þrepi tvö og hélt að ég myndi drepast. Þá rauk ég beint í mjólkina. Hún er alltaf til þegar við hittumst,“ segir Guðmundur, oftast kallaður Gummó. Engin kona sótt um inngöngu Í klúbbnum eru tveir Norðfirðingar, einn Húsvíkingur og fimm Egils- staðabúar. Klúbburinn var stofn- aður í fyrra og var það í raun ástin á chili sem sameinaði þessa átta karl- menn. „Ég hafði mikla ást á chili og hitti annan í vinnunni sem deildi þessari ást. Síðan bættust samstarfsfélagar Bjarna yfirkokks við. Þetta er samt alls ekki lokaður klúbbur og góð- ir vinir eru hjartanlega velkomnir,“ segir Gummó, en kvenmenn hafa ekki sýnt því áhuga að ganga í hóp- inn enn sem komið er. „Það hefur engin kona viljað taka þátt. Þær eru eitthvað smeykar við þetta. Það eru fáar konur sem ég þekki sem þola mikið af chili. Ég veit ekki af hverju það er. Ég man allavega ekki eftir neinni sem ég hef hitt sem hefur þolað mikið magn af chilipipar.“ Hráefni sótt suður Gummó segir mikinn undirbúning fylgja hverju matarboði klúbbsins og því þurfi að festa niður dagsetn- ingar með góðum fyrirvara. „Við getum bara keypt rauðan og grænan chili hér fyrir austan þannig að við þurfum að leita suð- ur eftir hráefni. Við þurfum því að plana þetta vel og getum ekki tek- ið skyndiákvörðun á fimmtudegi um að halda matarklúbb á laugar- degi,“ segir Gummó. „Dagurinn er mjög skemmtilegur. Við hittu- mst snemma og spjöllum og erum búnir að undirbúa daginn með margra vikna fyrirvara. Við nýtum undirbúningstímabilið í að viða að okkur hráefni sem þarf í matinn. Síðan hittumst við og fáum okk- ur kaldan bjór í rólegheitum – einn Porter, Stout eða IPA – góðgæti, sko. Svo byrjum við að elda. Sumir eru með ástríðu fyrir eldamennsku og sumir með ástríðu fyrir chili,“ seg- ir Gummó og bætir við að hann undirbúi sig vel fyrir matarboðin. „Ég byrja í ferli um tveimur vik- um fyrir matarboðið að gera allan matinn minn sterkari. Maður stekk- ur ekki bara til daginn fyrir og gúffar í sig chili,“ segir hann og hlær. Drap nánast hálft liðið Matarklúbburinn hittist í heimahúsum og skiptast með- limirnir á að vera gestgjafar. Átt- menningarnir leggja kapp á að elda bragðgóðan mat en ekki aðeins ganga fram af hver öðrum í sterk- leika. En auðvitað verður maturinn gríðarlega sterkur, enda strákarnir orðnir ýmsu vanir. „Þetta er alltaf eins og spark í kjaftinn á manni,“ segir Gummó og hlær. „Ég býst við að aðeins um hálft prósent landsmanna geti borðað þennan mat. Eins og gefur að skilja þegar svona matur er gerður verð- ur asískur matur oft fyrir valinu. Ég man mjög vel eftir því þegar einn okkar gerði mjög sterkan Vinda- loo-kjúkling sem drap nánast hálft liðið,“ segir Gummó. Mikil og góð hreinsun Gummó segir þessi matarboð ávallt skilja eftir sig ljúfar minningar – og að salernið sé í mikilli notkun þessi kvöld. „Við fáum styrk frá hver öðrum. Það er hamingja og gleði í þessu. Við tökum góðan tíma í þetta allt og höfum alltaf nóg af klósettpapp- ír á heimilinu. Það getur alltaf kom- ið upp eitthvert ástand,“ segir Gum- mó. „Og papprírinn verður að vera þriggja laga – allt annað er vont, sjáðu til.“ Klúbburinn hélt síðasta matar- boð laugardagskvöldið 20. október og var ýmislegt á boðstólum, eins og meðfylgjandi myndir sýna. Meðal þess sem var borið fram var rótsterk fiskisúpa, Spice Girls-kjúklingavængir og nauta- leggur á beini. Gummó segir kvöldið hafa tekist með eindæm- um vel. „Þetta var í einu orði sagt geggj- að. Og mikil og góð hreinsun.“ n Jóhann keyrði aftan á bíl og tognaði á hálsi. Hann fékk 3,7 m.kr. í bætur. Lifðu lífinu - Við sækjum bæturnar. n Átta karlmenn mynda chilimatarklúbb austur á fjörðum n Þegar þeir hittast er nóg til af klósettpappír á heimilinu „Þetta er alltaf eins og spark í kjaftinn á manni“ Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is „Ég býst við að að- eins um hálft pró- sent landsmanna geti borðað þennan mat.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.