Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Blaðsíða 4
4 4. janúar 2019FRÉTTIR
Þ
etta eru kaldar kveðjur til
manneskju sem hefur lagt
sig alla fram í starfi,“ seg
ir Guðmunda Jenný Her
mannsdóttir í samtali við DV.
Guðmunda lauk störfum hjá Heil
brigðisstofnun Suðurnesja um
áramótin en þá lauk eins mánað
ar uppsagnarfresti hennar. Ástæða
uppsagnarinnar var sú að Guð
munda Jenný neitaði að skipta um
stéttarfélag sem var krafa stofn
unarinnar. Þá fékk hún aðeins
einn mánuð í uppsagnarfrest en
hún taldi sig eiga rétt á þremur
mánuðum.
Setti skilyrði um að vera í gamla
stéttarfélaginu
Forsaga málsins er sú að Guð
munda Jenný sótti um starf hjá
HSS í júní á þessu ári. Um var að
ræða starf í móttökueldhúsi Víði
hlíðar, dvalarheimili aldraðra í
Grindavík. Að hennar sögn hefur
hún um tveggja áratuga reynslu
af sambærilegum störfum og svo
fór að henni var boðið starfið.
„Þegar ég var að semja um kaup
og kjör þá kom fram að ég ætti að
greiða í Verkalýðsfélag Grinda
víkur. Ég gerði þá að skilyrði að ég
fengi að greiða í Starfsmannafé
lag Suðurnesja enda hafði ég greitt
lengi í það félag og unnið mér inn
ýmis réttindi. Starfsmannastjóri
féllst á það skilyrði mitt og ég skrif
aði undir ótímabundinn ráðn
ingarsamning þann 12. júlí,“ segir
Guðmunda Jenný. Hún hóf síðan
störf í tímavinnu í byrjun júlí, til
þess að komast inn í starfið, en hóf
síðan vaktavinnu í ágúst.
„Starf mitt fólst í því að taka
við tilbúnum mat, hita hann upp
fyrir vistmenn og bera hann á
borð. Það var mikil ánægja með
mín störf. Ég fékk að heyra það frá
deildarstjóra og samstarfsfólki. Þá
var ég ítrekað beðin um að vinna
yfirvinnu og tók að mér allar þær
aukavaktir sem ég gat,“ segir Guð
munda Jenný.
Í október hafði nýr starfs
mannastjóri, sem hafði þá nýlega
tekið til starfa hjá HSS, samband
og bar nýjan ráðningarsamning
undir Guðmundu Jennýju. Eina
breytingin var sú að hún ætti að
ganga í Verkalýðsfélag Grindavík
ur. „Afleiðingin af því hefði orðið
að laun mín myndu lækka um 30
þúsund krónur. Ég hafnaði því að
skrifa undir þennan nýja ráðn
ingarsamning,“ segir hún. Í kjöl
farið ræddi hún málið við deildar
stjóra sinn og fékk munnlegt
vilyrði fyrir því að laun hennar
myndu haldast óbreytt.
Telur á sér brotið
„Í nóvember var síðan borinn
undir mig annar ráðningarsamn
ingur. Þar voru launin vissulega
óbreytt en ég átti að ganga í Verka
lýðsfélag Grindavíkur. Ég hafði þá
kynnt mér ýmis önnur réttindi hjá
félögunum og komist að því að
staða mín væri mun sterkari inn
an Starfsmannafélags Suðurnesja.
Á þeim forsendum hafnaði ég
því ráðningarsamningnum öðru
sinni,“ segir Guðmunda Jenný.
Rúmri klukkustund síðar var
henni afhent uppsagnarbréf.
„Mér var auðvitað brugðið en
varð síðar einfaldlega reið. Ég var
að standa mig vel í vinnunni og tel
að á mér sé brotið með því að reyna
að neyða mig til þess að breyta
um stéttarfélag,“ segir Guðmunda
Jenný. Hún hefur haft samband
við forsvarsmenn Starfsmanna
félags Suðurnesja vegna málsins
en segir að málið gangi afar hægt.
Hún vann því uppsagnarfrest sinn
samviskusamlega en lét af störfum
í lok árs. „Mér skilst að á árum áður
hafi stéttarfélögin á Suðurnesjum
skipt með sér áhrifasvæðum. Það
er alveg fráleitt að slíkir starfshætt
ir séu enn iðkaðir árið 2018,“ segir
Guðmunda Jenný.
Ekki höfðu borist viðbrögð frá
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
þegar blaðið fór í prentun. n
Bönnum ýlur
H
eimur versnandi fer. Fyrir
rúmu ári byrjaði einhver
spjátrungur úr barnaefn
inu á RÚV að úthúða flug
eldum. Íslendingar hafa sprengt
flugelda í meira en öld og ekki
orðið meint af. Það er þjóðlegt að
sprengja púður í upphafi hvers
árs og algjör óþarfi að bölsótast út
af því. Þess vegna fór Svarthöfði
beinustu leið til Einars félaga síns
áttavillta og keypti útbólginn fjöl
skyldupakka og fimm tertur. Her
legheitin sprengdi Svarthöfði svo á
gamlársdag, eftir skaupið, eins og
Íslendingar gera.
Svarthöfði komst hins vegar að
því að vælið í spjátrungnum hef
ur haft einhver áhrif. Það var ná
kvæmlega sama veður nú um ára
mótin og fyrir ári, stillt og kalt.
Engu að síður sá Svarthöfði ekkert
mengunarský yfir Breiðholtinu.
Fyrir ári voru nefhárin sviðin
vegna brennisteinsins og hlustirn
ar við það að gefa sig klukkan hálf
eitt.
Svarthöfði lenti á spjalli við ná
granna sinn. Mann sem sprengir
að jafnaði fyrir um hundrað þús
und krónur. Þetta kvöld lét hann
stjörnuljósin nægja og strollaði
út með fjölskylduna til að glápa
á sprengjurnar frá hinum. Þvílík
níska og frekja. Svarthöfði spurði
hann þá hvernig ætti að bjarga öll
um túristunum og rjúpnaskytt
unum sem týnast á fjöllum. Hann
sagðist þá hafa styrkt björgunar
sveitirnar með því að planta trjám.
Hvaða álög lagði spjátrungurinn
eiginlega á þjóðina? Blandaði
hann einhverju efnasulli út í
drykkjarvatnið?
Svarthöfði er búinn að vera
mjög hugsi yfir þessu og er kom
inn með fyrirtaks málamiðlun. Nú
líður að þrettándanum, sem er án
nokkurs vafa tilgangslausasta og
leiðinlegasta hátíð dagatalsársins.
Þá klárar fólk úr flugeldapökkun
um sínum og hvað er það eina sem
er eftir …? Ýlur!
Ætli ýlur séu ekki mesta óþurft
sem mannkynið hefur alið af
sér. Það kemur enginn blossi
heldur aðeins hvumleitt og sker
andi hljóð. Svipað hljóð og heyr
ist í hrossi þegar það er bundið
niður til geldingar. Eins mikið og
Svarthöfði kann að meta góðar
rakettur þá hefur hann aldrei skil
ið þörf landans til að kveikja í öll
um þessum ýlum á þrettándanum.
Þvílíkur masókismi.
Tillaga Svarthöfða er þessi.
Banna ýlur og hætta að halda upp
á þennan fjandans þrettánda. Að
sama skapi sprengja enn betur á
gamlárskvöld. Ætli þetta komi ekki
út á svipuðum stað út frá þessum
blessuðu umhverfisstöðlum. n
Svarthöfði
Það er
staðreynd að…
Í Eþíópíu eru mánuðirnir þrettán. Þar er
enn árið 2011.
Á Suðurskautslandinu fer fram
tónlistarhátíðin „Icestock“ ár hvert á
gamlársdag.
Klókir gestir á gamlársfagnaði á
Time Square í New York hafa gripið
til þess bragðs að mæta til leiks með
bleyju til þess að vinna gegn erfiðu
aðgengi að salernum á svæðinu á
meðan nýja árið gengur í garð.
Það eru bara fjórtán mögulegar
útgáfur af dagatölum. Árið 2019
getur þú grafið upp dagatalið þitt frá
árinu 2013, 2002 og 1991, svo dæmi
séu tekin, og endurnýtt þau.
Margir Ítalir klæðast rauðum nær-
fötum á gamlárskvöld. Þeir telja það
boða gæfu fyrir hið nýja ár.
„Svipað
hljóð og
heyrist í hrossi
þegar það er
bundið niður til
geldingar
Ýlur Óþarfar og hvumleiðar.
Hver er
hann
n Hann er fæddur
árið 1956 og hefur verið
duglegur að halda upp á
afmæli sitt með stæl.
n Móðir hans var dönsk
og pabbi hans hálfíslenskur og
hálfnorskur.
n Hann tók virkan þátt í ýmsum
mótmælafundum veturinn 2008
vegna bankahrunsins.
n Haustið 2015 gaf hann út ljóða-
bókina Öskraðu gat á myrkrið.
n Hann er fæddur í tvíburamerkinu.
SVAR: BUBBI MORTHENS.
Guðmunda var rekin því hún
neitaði að skipta um stéttarfélag
„Það var mikil ánægja
með mín störf.
Ég fékk að heyra það frá
deildarstjóra og samstarfs-
fólki. Þá var ég ítrekað
beðin um að vinna yfirvinnu
og tók að mér allar þær
aukavaktir sem ég gat.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Guðmunda Jenný
Hermannsdóttir
Víðihlíð