Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Blaðsíða 30
Nýtt ár – nýr lífsstíll 4. janúar 2019KYNNINGARBLAÐ Það hefur aldrei verið mikil-vægara en nú að breyta rétt gegn umhverfinu og það er margt sem hvert og eitt okkar get- ur gert til að minnka neikvæð áhrif lífshátta okkar á náttúruna. Eitt mikilvægasta framlag einstaklinga til umhverfisverndar er að flokka heimilissorp til endurvinnslu. Græna tunnan frá Íslenska Gámafélaginu einfaldar flokkun til endurvinnslu. Í hana má setja allan pappír, plastumbúðir og smáhluti úr málmi. Allar þær umbúðir og annað sem við notum við daglegt heimilishald er unnið úr hráefnum sem eiga sér uppruna í náttúr- unni. Plast er til dæmis unnið úr olíu, málmar unnir úr námum með tilheyrandi jarðraski og tré felld til að framleiða pappír og pappa. Markmiðið með endurvinnslu er að mynda hringrás sem miðar að því að draga úr frumvinnslu hráefna og minnka þannig álag á auðlindir jarðar. Með þessu má einnig draga úr magni úrgangs sem endar í urðun. Pappír Nánast allan pappír má endur- vinna, bylgjupappa, dagblöð, tímarit, skrifstofupappír, kvittanir, pítsukassa, mjólkurfernur og fleiri umbúðir úr sléttum pappa. Vissir þú að með því að endur- vinna 10 kg. af pappír sparast orka sem mætti nota til að ryksuga stöðugt í tæpa viku? Plast Plast brotnar ekki niður í náttúr- unni svo mikilvægt er að flokka plast til að koma í veg fyrir að það sé urðað eða endi úti í náttúrunni. Hreinar plastumbúðir má flokka til endurvinnslu og annað plast, sem ekki ber úrvinnslugjald, er hægt að flokka og skila á næsta gáma- svæði. Einnig er mikilvægt að koma í veg fyrir óþarfa plastúrgang með því að minnka notkun á einnota plasti eins og plastglösum, hnífa- pörum úr plasti og plastpokum. Gott er því að nota fjölnota poka eða jarðgeranlega poka við inn- kaup í stað plastpoka og fjölnota drykkjarmál í stað einnota kaffi- bolla. Fyrir heimilissorpið er hægt að nota jarðgeranlega poka, eins og t.d. umhverfisvæna ruslapokann frá Íslenska Gámafélaginu sem gerður er úr maíssterkju. Málmar Smáhluti úr málmi eins og niður- suðudósir, álpappír, krukkulok og sprittkertakoppa má flokka í Grænu tunnuna. Vissir þú að með því að endur- vinna 12 áldósir er hægt að spara rafmagn sem dugar í 20 km. akstur á rafbíl? Lífrænt Um það bil 30–35% af heildarmagni sorps er lífrænn eldhúsúrgangur sem hægt er að jarðgera. Afurð jarðgerðar- innar, moltan, nýtist sem næringar- ríkur jarðvegsbætir fyrir garðinn eða í landgræðslu og skógrækt. Hjá Íslenska Gámafélaginu er hægt að fá moltu- gerðartunnu og í hana má setja ýmsa matarafganga eins og ávexti, græn- meti, brauð, eggjaskurn, kaffikorg, telauf, pasta og hrísgrjón. Frekari flokkunarleiðbeiningar fyrir Grænu tunnuna, á íslensku, ensku og pólsku, má nálgast á vefsíðunni igf.is n ÍSLENSKA GÁMAFÉLAGIÐ: Flokkum meira á nýju ári
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.