Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Page 30
Nýtt ár – nýr lífsstíll 4. janúar 2019KYNNINGARBLAÐ
Það hefur aldrei verið mikil-vægara en nú að breyta rétt gegn umhverfinu og það er
margt sem hvert og eitt okkar get-
ur gert til að minnka neikvæð áhrif
lífshátta okkar á náttúruna. Eitt
mikilvægasta framlag einstaklinga
til umhverfisverndar er að flokka
heimilissorp til endurvinnslu.
Græna tunnan frá Íslenska
Gámafélaginu einfaldar flokkun til
endurvinnslu. Í hana má setja allan
pappír, plastumbúðir og smáhluti
úr málmi. Allar þær umbúðir og
annað sem við notum við daglegt
heimilishald er unnið úr hráefnum
sem eiga sér uppruna í náttúr-
unni. Plast er til dæmis unnið úr
olíu, málmar unnir úr námum með
tilheyrandi jarðraski og tré felld
til að framleiða pappír og pappa.
Markmiðið með endurvinnslu er að
mynda hringrás sem miðar að því
að draga úr frumvinnslu hráefna
og minnka þannig álag á auðlindir
jarðar. Með þessu má einnig draga
úr magni úrgangs sem endar í
urðun.
Pappír
Nánast allan pappír má endur-
vinna, bylgjupappa, dagblöð,
tímarit, skrifstofupappír, kvittanir,
pítsukassa, mjólkurfernur og fleiri
umbúðir úr sléttum pappa.
Vissir þú að með því að endur-
vinna 10 kg. af pappír sparast orka
sem mætti nota til að ryksuga
stöðugt í tæpa viku?
Plast
Plast brotnar ekki niður í náttúr-
unni svo mikilvægt er að flokka
plast til að koma í veg fyrir að það
sé urðað eða endi úti í náttúrunni.
Hreinar plastumbúðir má flokka til
endurvinnslu og annað plast, sem
ekki ber úrvinnslugjald, er hægt
að flokka og skila á næsta gáma-
svæði. Einnig er mikilvægt að koma
í veg fyrir óþarfa plastúrgang með
því að minnka notkun á einnota
plasti eins og plastglösum, hnífa-
pörum úr plasti og plastpokum.
Gott er því að nota fjölnota poka
eða jarðgeranlega poka við inn-
kaup í stað plastpoka og fjölnota
drykkjarmál í stað einnota kaffi-
bolla.
Fyrir heimilissorpið er hægt að
nota jarðgeranlega poka, eins og
t.d. umhverfisvæna ruslapokann
frá Íslenska Gámafélaginu sem
gerður er úr maíssterkju.
Málmar
Smáhluti úr málmi eins og niður-
suðudósir, álpappír, krukkulok
og sprittkertakoppa má flokka í
Grænu tunnuna.
Vissir þú að með því að endur-
vinna 12 áldósir er hægt að spara
rafmagn sem dugar í 20 km. akstur
á rafbíl?
Lífrænt
Um það bil 30–35% af heildarmagni
sorps er lífrænn eldhúsúrgangur sem
hægt er að jarðgera. Afurð jarðgerðar-
innar, moltan, nýtist sem næringar-
ríkur jarðvegsbætir fyrir garðinn eða í
landgræðslu og skógrækt. Hjá Íslenska
Gámafélaginu er hægt að fá moltu-
gerðartunnu og í hana má setja ýmsa
matarafganga eins og ávexti, græn-
meti, brauð, eggjaskurn, kaffikorg,
telauf, pasta og hrísgrjón.
Frekari flokkunarleiðbeiningar fyrir
Grænu tunnuna, á íslensku, ensku og
pólsku, má nálgast á vefsíðunni igf.is n
ÍSLENSKA GÁMAFÉLAGIÐ:
Flokkum meira á nýju ári