Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Blaðsíða 22
22 FÓLK - VIÐTAL 4. janúar 2019 hann mér á að það væri í lagi að gráta. Ég brotnaði ekki niður, en auðvitað var þetta áfall. Margir verða leiðir, jafnvel þunglyndir, en ég hugsaði með mér að slíkt væri ekki að fara að hjálpa mér.“ Malín hélt áfram að keppa í rallí eins og fyrr, en leitaði til Park- inson-samtakanna með ráðgjöf. Segir hún starfsfólk Landspítalans ekki aðstoða með réttindi eða að- stoð, og því sé gott að geta leitað til fjölskylduráðgjafar Parkinson- samtakanna, sem veiti fría ráðgjöf um réttindi sjúklinga, mataræði og fleira. Síðastliðið sumar voru sam- tökin með átak til að vekja athygli á sjúkdómnum en þau safna fyrir húsi sem er ekki til staðar í dag, miðstöð fyrir sjúklinga þar sem hægt væri að halda fundi og bjóða upp á fræðslu, en fundir eru í dag haldnir í sal í Hátúni, sem samtök- in fá afnot af. „Ég og nokkrar aðrar konur fórum inn á völlinn með lands- liðskonunum í fótbolta og aftan á treyjunum stóð Parkinsdóttir, sama gerðu strákarnir og á treyj- um þeirra stóð Parkinson. Þannig vöktum við athygli á sjúkdómnum. Auk þess höfum við vakið athygli á þeirri skelfilegu staðreynd að dánartíðni vegna sjúkdómsins er næsthæst í heimi á Íslandi, sem er ægilegt, en ekki er vitað af hverju svo er. Hvort það er loftslagið, myrkrið, mataræðið. Sem dæmi má nefna þá þekkist Parkinson varla í Mið-Austurlöndum. Það er margt sem er órannsakað.“ Spennt, en hrædd vegna stofn- frumumeðferðar Malín hefur verið í sambandi við lækna erlendis, sem vilja fá hana í stofnfrumumeðferð, meðferð sem ekki hefur verið reynd enn sem komið er á mönnum. „Fyrst þetta virkar á mýs, þá virkar þetta á Malín,“ segir hún og hlær. „Ég er spennt fyrir meðferðinni og langar að fara, þetta væri mikill séns sem ég væri að taka en maður vill reyna allt þegar maður er með ólæknandi sjúkdóm. En með- ferðin kostar um fimm milljónir og það hefur enginn Parkinson- sjúklingur farið og ég þori ekki að fara fyrst. Læknarnir geta auðvit- að engu lofað um árangur, en ég myndi vilja fara fyrr en seinna, ef meðferðin yrði til að stoppa sjúkdómsferlið. Ég verð kannski betri, allavega ekki verri held ég. Ég myndi samt vilja sjá að svona meðferð yrði niðurgreidd í fram- tíðinni.“ Alin upp í Vottum Jehóva – Lögð í einelti alla barnæskuna Malín er alin upp í vottatrú, en móðir hennar, sem fædd var árið 1947, tók trúna árið 1971. „Það vissi enginn af hverju hún gerði þetta, hún hafði sem dæmi búið í Mið-Austurlöndum. Síðan kynnt- ist hún pabba. Hann var aldrei í vottunum, var bara hlutlaus í þessu. Þau gerðu samkomulag, mamma fékk að ala okkur upp með þessu trúardóti og pabbi var alltaf í vinnunni og í flugbjörg- unarsveitinni.“ Vottar halda ekki upp á afmæli eða jól með tilheyrandi hátíðleg- heitum og veisluhöldum: mat, skrauti, pökkum og svo framveg- is. Hvernig var að alast upp sem vottur Jehóva? „Ég átti enga vini í skóla, mér var strítt og ég var lögð í einelti, gróft einelti, alla skólagönguna,“ segir Malín. „Ég talaði aldrei um vottana að fyrra bragði, en ef ég var spurð þá sagði ég ekki ósatt. Sumir héldu einfaldlega að ég væri að fíflast.“ Vottarnir flúðu oft um jólin í sumarbústaði og segir Malín hennar fjölskyldu hafa gert það: „Eitthvert vottaþorp í Ölfusborg- um í Hveragerði, fyndið. Ég hef talað um það áður, að það að alast upp í vottunum sé trúarofbeldi. Maður er svo áber- andi í að skera sig út úr hópnum. Þessar aðstæður kalla bara á að börnum sé strítt. Ég var oft með hnút í maganum við að fara í skól- ann, hann var eitthvað ægilegt í mínum augum.“ Malín segir umburðarlyndi orðið meira í dag í fjölmenningar- samfélagi og þrátt fyrir erfiða æsku segist hún engu vilja breyta úr uppeldinu. „Ég er hér út af þeirri krókaleið sem ég hef farið. Eftir sem áður finnst mér dapurlegt að hugsa til þeirra barna sem eru út undan, sem fá ekki jóla- og afmæl- isgjafir, ekki páskaegg, þau mega ekki mæta í afmæli til annarra barna, það er bannað. Svo sitja þau í tónmennt og mega ekki syngja með jólalögunum. Þegar ég var í kristinfræði, þá var ég tekin út úr þeim.“ Eftir grunnskólann fór Malín í Menntaskólann í Reykjavík og seg- ir menntaskólaárin hafa verið góð og enginn leiðinlegur við hana þar. En hún skar sig þó enn úr fjöldan- um. „Ég var gift kona, ég gifti mig þegar ég var 18 ára, manni sem var líka vottur,“ segir Malín. „Sam- nemendum mínum fannst skrítið þegar ég sagðist þurfa að fara heim að elda fyrir fjölskylduna.“ Úr MR hélt Malín síðan í Há- skóla Íslands, þar sem hún lærði mannfræði og málvísindi. Þar lærði hún meðal annars gagn- rýna hugsun og á sama tíma losaði hún sig undan hlekkjum vottanna og hjónabandsins. „Við skildum á sama tímabili. Það var auðvitað illa séð að ég væri að mennta mig. Ég sá að ég gat ekki gert sjálfri mér þetta lengur,“ segir Malín, sem var í Vottum Jehóva þar til hún var 23 ára. Í kjölfarið skráði hún sig í Ása- trúarfélagið. „Þetta var pínu yfir- lýsing hjá mér, svona ég ræð mér sjálf og ég má skipta um skoðun. Mér finnst heiðin arfleifð okkar mjög merkileg og Ásatrúarfélagið er mjög flott félag. Ég er ekki rosa virk, en ég fylgist samt með,“ seg- ir Malín. „Ég er ekki trúuð, ég segi stund- um að ég sé guðleysingi, en ekki trúleysingi, fólk heldur oft að það sé eitt og hið sama. Það er svo margt ótrúlegt búið að gerast að ég get ekki neitað því að það fyllir mig auðmýkt. Eins og allt þetta stór- kostlega fólk sem ég hef kynnst, til dæmis í gegnum ABC. Ég get ekki neitað því að hugsa að það sé til eitthvað æðra og það væri hroka- fullt af mér að halda því fram að svo sé ekki.“ Uppeldið mótaði móðurhlutverkið Í dag elskar Malín jólin, sem hún fékk ekki að njóta sem barn. „Við Óðinn erum mikið jólafólk og mér sýnist bæði Doddi og Bragi sáttir við það. Ég er ekki á síðustu stundu með neitt, því ég vil njóta þess í desember að japla á jólun- um.“ Mótaði æskan hvernig þú ólst eigið barn upp? „Ég held ég sé pínu öfga jóla og afmælis, af því ég vil ekki að eitt- hvað úr minni æsku skyggi á. Mitt uppeldi er víti til varnaðar og ég leitast við að veita Óðni vitsmuna- lega örvun,“ segir Malín, sem seg- ist ekki hafa þolað þegar hún sem barn, fékk sama svar við spurning- um sínum: „Þú færð að vita það seinna, þegar þú verður stór“. „Ég svara honum alveg óhik- að með að ég viti ekki eitthvað, en þá förum við saman og leitum upplýsinga. Óðinn er tíu ára og við ræðum mikið málin; trúmál, pólitík og margt fleira. Ég legg líka ríka áherslu á að þó að ég trúi ekki á guð, þá hefur hann frelsi til að velja og frelsi til að hafna. Sem barn mátti ég ekki lesa allar bækur sem ég vildi, ég man til dæmis að mamma fór með Veröld Soffíu og skilaði henni á bókasafnið, sagði bókina heim- speki og ég mætti ekki lesa svo- leiðis.“ „Þetta var mín versta martröð“ Það er ekki hægt annað en spyrja Malín um atburðinn sem kollvarp- aði lífi hennar árið 2015, þegar hún og systir hennar voru hand- teknar í júní fyrir að kúga fé af Sig- mundi Davíð Gunnlaugssyni, þá- verandi forsætisráðherra. „Mig langar alls ekki að tala um þetta mál, það snýst um veika manneskju sem ég er í eng- um samskiptum við í dag. Það er agalegt að hafa blandast inn í þetta,“ segir Malín, en dómur féll í apríl 2017 og eins og áður segir hefur Malín tekið út sína refsingu. Verður þú fyrir aðkasti í dag vegna málsins? „Já, það gerist, fólk er stundum að benda á mig og þekkir mig úti á götu. Ég hefði viljað vera þekkt fyrir eitthvað jákvætt, ekki þetta. En svona er þetta, ég gerði mistök, stór mistök og ég er búin að taka út refsingu fyrir það,“ segir Malín, sem var fyrir þetta atvik þekkt and- lit, allavega hjá hluta þjóðarinnar. „Það er afspyrnu neikvætt að vera þekkt fyrir svona, ég verð ekki fyrir skítkasti, en ég fer til dæmis í afmæli og heyri svo eftir á að fólk hafi verið að spyrja hvort ég væri ekki konan sem var í málinu með Sigmundi. Ég vil geta sagt við fólk: „Ef þetta er að trufla þig, þá skul- um við bara klára að ræða það og höldum svo áfram,“ ef fólk vill það ekki þá fer ég bara. Það er stór og mikil spurning af hverju við gerum það sem gerum og af hverju við segjum það sem við segjum. Og hvernig í ósköpun- um gerðist þetta? ef ég ætti „kon- kret“ svar við því þá væri ég búin að svara. Þetta eru aðstæður sem ég kom mér í og sem ég kom mér ekki út úr. Þetta var mín versta martröð.“ Í kjölfar málsins missti Malín vinnuna í maí 2015 og einangraði sig mikið. „Það var allt gjörsam- lega sturlað í samfélaginu, þetta var bara hamagangur eins og með Klaustursmálið núna. Það var stöðugt hringt í mig og ég var bara hrædd. Mér leið svo illa með þetta allt saman, en sem betur fer er ég komin í gegnum það.“ Langar þig ekki að fara aftur í vinnu í blaðamennskunni? „Mér finnst það ekki við hæfi, þetta var dásamlegur vinnustaður og frábært fólk. En trúverðugleik- inn og traustið fór og ég held að það verði að líða lengri tími. Ég gæti ekki bara gengið þar aftur inn eins og ekkert hefði gerst. Líka út af virðingu við lesendur, en svo sannarlega væri ég til í að vinna þar aftur einhvern tímann.“ Aðspurð hvort að hún sé í ein- hverju sambandi við systur sína í dag, sem hlaut einnig dóm fyrir málið, svarar Malín að svo sé ekki. „Ég hef ekki talað við hana síðan 29. maí 2015, en ég vona heitt og innilega að það gangi vel hjá henni. Auðvitað ber ég alltaf kær- leika til hennar, en ég held að það sé ekki góð hugmynd að við séum í samskiptum og hún hefur ekki teygt út sáttarhönd til mín. Ég er þó löngu búin að fyrirgefa systur minni, þó að hún hafi ekki beðið mig afsökunar. Ég gæti líklega sagt eitthvað ljótt um hana, en ég sé engan tilgang í slíku, það væri bara að lýsa mínu innra rusli. Ég el ekki á reiði og gremju, og ef slík- ar hugsanir eða tilfinningar koma upp, þá klára ég þær strax. Slæm- ar hugsanir og neikvæðni kemur manni fyrr í gröfina og ég er ekkert að flýta mér þangað.“ Finnst þér fólk eiga rétt á öðru tækifæri eftir að hafa tekið út sína refsingu? „Ég tel að þegar einstaklingur er búinn að taka út sína refsingu, þá sé ekki fallegt að rifja mál hans endalaust upp, en málið mun alltaf loða við viðkomandi. Ég þarf ekki að skammast mín fyrir að vera sú sem ég er, mín gildi eru á hreinu, ég er að sýna með verkum mínum í dag hver þau eru. Fólk á skilið annað tækifæri í líf- inu, ég fæ sting í hjartað þegar mál er tekið upp í fjölmiðlun og fólk drullar yfir viðkomandi einstak- ling. Mér líður illa fyrir hönd við- komandi af því að ég hef verið sjálf í þessum sporum og þetta á enginn að þurfa að ganga í gegn- um. Við eigum ekki að gera svona, þannig byggjum við ekki hvert annað upp. Með mannkærleika að leiðarljósi þá getum við ekki gert svona. Hver sá sem ætlar að dæma mig fyrir mistök sem ég gerði í for- tíðinni verður bara að eiga það við sig,“ segir Malín og bætir við að hvað varðar þetta mál, líkt og upp- eldið, vildi hún þrátt fyrir allt engu breyta. „Ég myndi engu vilja breyta þótt þetta hafi verið erfitt tímabil, vegna þess að ég er rosalega ham- ingjusöm þar sem ég er núna og mér hefur aldrei liðið betur. Þrátt fyrir öll áföllin; andlát mömmu og pabba, þetta hryllilega mál, Parkinson, ég er á svo góðum stað. Við,“ bætir hún við og lítur á Óðinn, sem kom með móður sinni í viðtalið og hefur lesið í bók, með- an það fer fram. „Þetta er bara stormandi lukka, Doddi, þetta er bara yndislegt. Stundum finnst mér þetta vera of gott til að vera satt, ef þetta er draumur þá vil ég ekki vakna, alla- vega ekki strax,“ segir Malín ein- læglega. Hvað ber framtíðin í skauti sér, hvað langar þig að gera? „Mig langar að þýða fleiri bækur, en ég hef áður þýtt bók, bæklinga og greinar. Ég er að læra þýðinga- fræði núna í Háskóla Íslands til að vera með tæknina og verkfærin rétt. Námið er svo skemmtilegt, en ég tek bara eitt fag í einu til að of- gera mér ekki. Ég var hálfnuð með lögfræði í Háskólanum í Reykja- vík, en ég held ég klári hana ekki. Stundum er ég líka beðin um að taka myndir fyrir aðra, ég tek líka myndir fyrir vefinn okkar. Mig langar að breyta heimin- um og bæta hann, til dæmis með umhverfisvakningunni og bíla- endurvinnslunni. Þetta er svo já- kvætt, þú ert að hugsa um jörðina og að gera heiminn að betri stað fyrir næstu kynslóð. Það er fram- tíðin, að halda áfram að gera gott,“ segir Malín, sem hefur háð marga hildina í lífsins ólgusjó, unnið sumar og tapað öðrum, rétt eins og við flest, en horfir nú sátt til framtíðar, nýtrúlofuð og í starfi sem gefur af sér kærleik til kom- andi kynslóða. n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.