Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Page 40
40 4. janúar 2019 Tímavélin H ermann Göring var einn af þekktustu og alræmd­ ustu nasistum Þýskalands og þekktastur fyrir að leiða þýska flugherinn. Hann gegndi þó mörgum öðrum stöðum innan þriðja ríkisins, þar á meðal að halda utan um veiðifugla. Árið 1937 sendi Göring tvo sendiboða til Íslands til að sækja fálka. Fengu þeir alls tólf fálka sem þeir fluttu til Þýskalands og dreifðu um fálkabúin þar. Síðar var opnað stórt fálkabú við útrým­ ingarbúðirnar Buchenwald sem Heinrich Himmler hafði umsjón með. Var það reist með blóði, svita og tárum þræla úr búðunum. Fengu tólf fálka Sumarið 1937 sendi Göring til Ís­ lands tvo menn til þess að kaupa fálka fyrir ríkisfálkabú Þýskalands. Sá sem leiddi þann leiðangur var doktor að nafni Heinz Brull, mjög þekktur fuglafræðingur í Þýskalandi og frændi Göring. Með honum var fálkatemjari að nafni Knoespel. Sendiboðum Göring var mjög ágengt í leit sinni að íslenskum fálkum. Þeir komu með skipinu Dettifossi til Reykjavíkur og komu við á Ísafirði og á Akureyri. Ferð­ uðust þeir um Vestfirði, Norður­ land og Austurland og fengu alls tólf fálkaunga. Níu keyptu þeir, tvo fengu þeir að gjöf frá Búnaðar­ félagi Íslands og einn að gjöf frá Gísla „Gitler“ Sigurbjörnssyni, sem eitt sinn leiddi flokk Íslenskra þjóðernissinna. Einnig kvikmynd­ uðu félagarnir fálkana og hreiður þeirra. Skýrsla er til um leiðangur­ inn og geymd hjá Bændasamtök­ unum. Gerði sagnfræðingurinn Auðun Arnórsson grein fyrir henni í tímaritinu Frey árið 2005. Sýndir við höfnina Fálkarnir voru til sýnis við Reykja­ víkurhöfn þegar Brull og Knoespel héldu á brott aftur með Dettifossi. Fengu þeir rjúpur og dúfur að éta og þrifust vel. Morgunblaðið tók þá viðtal við dr. Brull og hann sagði: „Þessum tólf fálkum verður dreift á ýmis fálkabú í Þýskalandi, í Thuringen, Sachsen, í veiðimanna­ bú Hermann Göring­stofnunar­ innar í Braunschweig og tvo tek ég sjálfur með mér á eigið bú á norð­ urströnd Þýskalands.“ Sagðist hann þá þegar hafa tek­ ið eftir læknisfræðilegu atriði í sam­ bandi við fálkana. Að eitlanabbar söfnuðust í efri góm þeirra yngstu. Þessi sömu einkenni leiddu jafn­ an þýska fálka til dauða og kæmu yfirleitt fram þegar kalt var og rakt. Brull kippti því nöbbunum út með töng, hreinsaði sárin og geymdi þá í þurru og hlýju herbergi. Urðu þeir þá aftur heilbrigðir. „Þegar við erum komnir með fálkana til Þýskalands, verður þeim fyrst sleppt lausum um þriggja vikna skeið, en við getum treyst því, að þeir komi til okkar jafnan aftur til þess að láta gefa sér. Að þessum þremur vikum loknum verður far­ ið að venja þá við veiðar,“ sagði dr. Brull. Þýsku félagarnir voru meðvitað­ ir um að hægt væri að ganga mjög nærri stofninum. Brýndu þeir fyrir íslenskum bændum og þeim sem veiddu fálka að skilja einn unga eft­ ir í hverju hreiðri. Annars myndi stofninn deyja út. Dýpri skilningur á kynþáttahugtakinu Nasistarnir höfðu mikinn áhuga á fálkaveiðum og fálkatamningu. Þessi íþrótt hafði alltaf verið til stað­ ar í Þýskalandi en var hún ríkis­ vædd þegar Hitler komst til valda. Fálkaveiðar voru taldar forn germ­ anskur siður sem bæri að endur­ lífga og halda í heiðri. Kynþáttahug­ takið kom einnig við sögu. Í erindi dr. O. Kleinschmits á ráðstefnu í ríkisfálkabúinu haustið 1937 var sagt að veiðifálkinn væri óum­ deilanlega ein af göfugustu verum jarðkringlunnar. Væri hann eitt mikilvægasta dæmið um kynþátta­ hugtakið og dýpri skilning á því. SS hafði yfirumsjón með fálkatamningunni og margir nafn­ togaðir nasistar sýndu henni mik­ inn áhuga. Hermann Göring var sá sem hafði hvað mestan áhuga, auk Heinrichs Himmler, leiðtoga SS­sveitanna. Hermann Göring var einn af valdamestu mönnum Þriðja rík­ isins. Nánast alla valdatíð Hitlers gegndi Göring stöðu þingforseta. Þekktastur var hann þó fyrir að stýra hinum volduga flugher nasista, Luftwaffe. Færri vita að Göring bar einnig titilinn yfirveiðistjóri Þriðja ríkisins. Göring var æðsti embætt­ ismaðurinn sem náðist á lífi eftir stríð og var dreginn fyrir dómstóla í Nurnberg. Þar var hann dæmdur til dauða en náði að fremja sjálfsvíg nóttina áður en átti að hengja hann. Ríkisfálkabúið var stofnað árið 1935 og staðsett í Riddagshausen í norðurhluta Þýskalands. Árið 1940 voru opnaðar bækistöðvar fálkatamningar og fálkaveiða, SS Falkenhof, og voru þær stað­ settar í námunda við Weimar Buchenwald­ útrýmingarbúðirnar í austurhluta landsins. Svæðið var opið almenningi og þar nálægt var einnig dýragarður með alls kyns skepnum. Flestir sem heimsóttu svæðið voru háttsettir menn úr hernum og embættismannakerf­ inu og fjölskyldur þeirra. Fálkarn­ ir voru fengnir víða að. Sérstaklega margir voru keyptir frá Norður­ Afríku og Mið­Austurlöndum. Í Fal­ kenhof voru einnig aðrir ránfuglar, svo sem margar tegundir af örnum og haukum. Þrælar úr Buchenwald voru notaðir til að byggja svæðið og halda því við. Örlögin ókunn Kaup Göring á íslensku fálkunum voru ekki síður gerð í vísindaleg­ um tilgangi en upp á sport. Fjöl­ margir fálkar sem sendir voru úr landi höfðu drepist. Hvort sem var í Bretlandi eða á meginlandi Evrópu. Vildi Göring skera úr um hvort að íslensku fálkarnir þyldu suðrænna loftslag. Einnig vildi hann kort­ leggja íslenska fálkastofninn og að Þjóðverjar fræddust um lifnaðar­ hætti þeirra. Ekki er vitað hvað varð um íslensku fálkana sem Göring lét flytja til Þýskalands, hvort þeir hafi drepist eins og svo margir eða lifað. Jafnvel endað í Falkenhof. Viðhorf Íslendinga sjálfra til út­ flutnings fálka á þessum tíma var misjafnt. Sumir töldu að fálkarnir yrðu Íslandi til prýði erlendis og góð landkynning. Aðrir höfðu áhyggjur af því að gengið yrði of nærri stofn­ inum því að þetta væru sjaldgæfir fuglar. Lengi höfðu Danakonungar sóst mjög eftir íslenskum fálkum, bæði til eigin nota en einnig til að gefa erlendum þjóðhöfðingjum. Árið 1764 voru til að mynda 210 fálkar fluttir frá Íslandi til Danmerk­ ur. Á 19. öld dró þó mjög úr útflutn­ ingi á íslenskum fálkum og árið 1806 var fálkabú konungs lagt nið­ ur. n Gamla auglýsingin Vísir 25. nóvember 1971 Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is ALLAR ALMENNAR FATAVIÐGERÐIR TÖKUM AÐ OKKUR www.l ost.is 581 3330 / Malarhöfði 2 GÖRING LÉT SÆKJA ÍSLENSKA FÁLKA n Dr. Brull og Knoespel ferðuðust um landið n Fálkabú reist með þrælum úr útrýmingarbúðum „Þegar við erum komnir með fálkana til Þýskalands, verður þeim fyrst sleppt lausum um þriggja vikna skeið, en við getum treyst því, að þeir komi til okkar jafnan aftur til þess að láta gefa sér. Dr. Heinz Brull Morgunblaðið 7. júlí 1937.. Hermann Göring Veiðimálastjóri þriðja ríkisins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.