Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Blaðsíða 32
Nýtt ár – nýr lífsstíll 4. janúar 2019KYNNINGARBLAÐ
Innanhússklifur er sívaxandi áhuga-mál á Íslandi og víða um heim. „Hér á landi eru um tæplega 1.500
félagar sem stunda klifur reglulega í
Klifurhúsinu,“ segir Benjamin Mokry,
framkvæmdastjóri Klifurhússins.
Klifursambandið sótti fyrir stuttu
um aðild að ÍSÍ og hafa sprottið upp
Klifurhús um land allt.
Klifur er lífsstíll
„Þeir eru að byggja klifurhús á
Grundarfirði, einnig er verið að
stækka klifurhús á Akureyri og svo
er verið að setja upp klifurveggi
í Skaftafelli,“ segir Benjamin sem
stundar klifur bæði utanhúss og inn-
an af miklum krafti. „Klifur er lífsstíll
og þegar menn byrja þá eiga þeir
erfitt með að hætta, þetta er svo
gaman,“ segir Benjamin.
Allir geta klifrað
Í Klifurhúsinu eru í boði ýmist opnir
tímar eða lokaðir og margs konar
námskeið fyrir alla aldurshópa. „Við
erum með barna- og unglinganám-
skeið hér fyrir 5 til 18 ára en einnig
kennslu fyrir alla aldurshópa. Elstu
þátttakendurnir eru um sextugt,“
segir Benjamin. Klifurveggirnir eru
smíðaðir úr timbri og á gólfinu fyrir
neðan er stór dýna sem þátttak-
endur hoppa niður á í lok klifursins.
„Í Klifurhúsinu er stunduð svokölluð
„grjótglíma“, þar sem klifurveggurinn
er mjög brattur en klifurhæðin lítil,
eða um 4–6 metrar. Einnig eru lagð-
ar línuklifurleiðir fyrir þá sem eru að
æfa það,“ segir Benjamin.
Eflir styrk, liðleika og þol
Að sögn Benjamins reynir klifrið bæði
á styrk og liðleika. „Það er enginn
munur á getu stráka og stelpna.
Þótt strákarnir fari langt á kraftinum
þá eru stelpurnar oftast með betri
tækni. Hugtakið tækniklifur er þekkt
enda eru tækni og liðleiki mikilvægir
þættir í þessu sporti.“ Klifrið eflir allt í
senn, þol, liðleika og styrk, og hentar
fólki á öllum aldri. „Til dæmis getur
maður aldrei orðið of sterkur í fingr-
unum en klifrið eflir mjög fingrastyrk.
Það er nokkuð sem fólk er almennt
ekki að þjálfa með sér. Fyrsta skiptið
er í raun alltaf erfiðast þó svo að sé
óneitanlega alltaf skemmtilegt að
prófa klifur. En þegar maður byrjar
að mæta reglulega í klifur, kannski
2–3 skipti í viku, er maður fljótur að
sjá árangurinn og er ótrúlegt hvað
sumir hafa náð langt á stuttum tíma,“
segir Benjamin.
Klifur fyrir byrjendur og lengra
komna
Það þarf ekki að fara á námskeið til
að kynnast klifrinu né þarf að kaupa
sér aðgöngukort, hægt er að mæta
á staðinn og kaupa sér stakan tíma
og leigja klifurskó. Klifurleiðunum er
raðað upp í mismunandi erfiðleika-
stig þannig að byrjendur geta valið
leið sem hentar þeim fullkomlega
á meðan meira krefjandi leiðir eru í
boði fyrir þá sem eru lengra komnir.
Hópar klifra
„Það er kjörið fyrir litla hópa að koma
hingað og eiga góða stund saman.
Klifurhús spretta víða upp erlend-
is og eru að verða mjög vinsælir
samkomustaðir. Fólk hittist, fær
sér kaffi og spjallar, og klifrar síð-
an saman í tvo tíma. Þetta kemur
algerlega í staðinn fyrir að hittast á
barnum. Það er alveg jafn sjálfsagt
að hittast í klifri eins og að hittast á
kaffihúsi eða krá. Og svo fær maður
mikla og góða hreyfingu í leiðinni,“
segir Benjamin, en bætir svo við
að það megi líka kíkja á barinn eftir
klifrið, hann hafi ekkert á móti því.
Gefðu klifur
Gjafabréf hjá Klifurhúsinu eru mjög
vinsæl í jólagjafir. „Fólk er ýmist að
kaupa mörg skipti fyrir þá sem hafa
komið áður, eða bara eitt skipti fyrir
þá sem hafa ekki prófað klifur. Þetta
er skemmtileg gjöf sem menn búast
ekki endilega við,“ segir Benjamin.
Nánari upplýsingar um Klifurhúsið
er að finna á vefsíðunni klifurhusid.is
og Facebook-síðunni Klifurhúsið.
Opið er alla virka daga frá 11.30–
22.00 og um helgar 12.00–18.00
Netfang: klifurhusid@klifurhusid.is n
KLIFURHÚSIÐ:
Það er engin leið að hætta að klifra