Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Blaðsíða 46
46 4. janúar 2019FÓKUS LOKAÐIR STURTUKLEFAR MEÐ TOPPI, SPORNA GEGN RAKA OG MYGLU Kíktu á sturta.is og skoðaðu úrvalið S. 856 5566 Uppáhaldsliðið í enska boltanum Enski boltinn er nokkurs konar sófaþjóðaríþrótt Ís- lendinga. Fáar ef nokkrar þjóðir hafa meiri áhuga á bresku boltasparki og flestir eiga sitt lið sem þeir styðja fram í rauðan dauðann. DV tók hús á nokkrum gallhörð- um stuðningsmönnum og spurði þá hvernig þeim litist á tímabilið sem nú er í gangi. „Þetta er það lið sem pabbi held­ ur með og hélt með þegar ég byrj­ aði að fylgjast með enska bolt­ anum. Sannaðist þá máltæk­ ið „Hvað ungur nemur, gamall temur.“ Þótt það gildi ekki um pólitískar skoðanir okkar feðga. Mér líst að mörgu leyti vel á tímabilið núna, eftir nýju­ stu vendingar. Þar sem leik­ gleðin og hjartað er aftur farið að einkenna enska boltann. Ég er ánægður að sjá lang­ þráðan neista hjá Manche­ ster United og vona að hann haldist. Ég vil frekar horfa á liðið spila þannig heldur en að spila leiðinlegan og hug­ myndasnauðan taktískan bolta. Ég hef hingað til frekar horft á leiki með Liverpool og Totten­ ham, sem hafa verið að spila frábæran bolta, en vona að það verði breyting þar á.“ „Einu sinni gældi ég við að halda með Man­ chester United á meðan ég bjó þar um skeið. Ég hætti þeim pælingum þó snar­ lega eftir að ég prófaði sömu sólbaðsstofu og David Beck­ ham. Núna held ég með Liver­ pool og hef gert það í gegn­ um súrt og sætt. Núna er aldeilis góður tími fyrir okkur. Við erum með gott forskot og höfum alla burði til að halda áfram þessari sigurgöngu þótt tímabilið sé langt og allt geti gerst. Mér finnst hins vegar kominn tími á sigur og ég held að Klopp og allir Púlarar geti tekið undir það.“ „Ástæða fyrir því er nokkuð óljós en benda má á að árin 1973 til 1983 var Ipswich næstsigursælasta lið ensku knattspyrnunnar á eft­ ir Liverpool. Svo eru búningarnir bláir og hvítir. Má nefna að það eru litir íslenska landsliðsins og Víkings frá Ólafsvík. Mér líst viðbjóðs­ lega illa á tímabilið núna, sem er jafnframt versti árangur liðsins í 60 ár. Þá er árangur liðsins einnig sá versti í sögu Championship­ deildarinnar. Þannig að ég hef verið fokking betri þegar kemur að knattspyrnumálum á Englandi. En annars hef ég sjaldan verið betri.“ „Liðið mitt hefur alltaf verið og verð­ ur alltaf Manchester United, sama hvað bjátar á. Þegar ég var sjálf í fótboltanum hélt ég mikið upp á Eric Cantona og ég hélt þar af leiðandi með Manchester United. Það hef­ ur ekki verið ástæða til þess að endurskoða þá ákvörðun síðan þá. Þetta hefur ekki verið okk­ ar besta tímabil en ég er alveg hrikalega bjartsýn á framtíðina þar sem liðið losaði sig loks­ ins við José Mourinho og Ole Gunnar Solskjær svaraði kall­ inu um að koma heim.“ „Leeds United er liðið alveg frá 1970. Þá var liðið að koma upp úr annarri deildinni og sló strax í gegn. Svo var Skoti aðalmaður­ inn, Billy Bremner! Nú sýnist mér góðar líkur á því að liðið komist upp úr annari deildinni upp í deild þeirra bestu og þá mun Leeds United eins og þá fara beint á toppinn.“ „Ég bjó um nokkurra ára skeið í London og komst vart hjá því að halda með Arsenal enda sótti Jón, maðurinn minn, leiki liðsins reglulega. Í fyrsta sinn sem ég sá þá spila sofnaði ég reyndar við öxl Jóns. Það kom þó ekki að sök enda vann Arsenal 6­1 gegn Southampton ef ég man rétt. Mér líst bærilega á tímabilið, þó að ég sakni ei­ lítið Arsene Wenger. Manni fannst hann einhvern veg­ inn ætla að verða eilífur og með honum hvarf tenging við fallegri og saklausari tíma, fyrir tíma olíufursta og ólígarka. Unai Emery er samt ágætur, reyndar svolítið vondur við Özil greyið.“ „Ég styð West Ham, líkt og Barack Obama, og hef gert það frá barn­ æsku. Þá voru margar frægar kempur í liðinu en mest hélt ég upp á framherjann knáa Clyde Best, frá Bermúda en hann var einn fyrsti þeldökki leikmaður efstu deildar. Þrátt fyrir rysjótt gengi hjá þessu gamla austurbæjarliði hef ég þó verið því trúr og þekki það svo sem ágætlega hvernig það er að síga upp og niður töfluna í pólitík­ inni. Ég gleðst þegar vel gengur og hef dáðst að einstaka afburðaleik­ manni sem skolað hefur á fjörur klúbbsins. Ég er alltaf svolítið veikur fyrir litríkum sólóistum á fótboltavellinum og þar eru minnisstæð­ astir Ítalinn Paolo Di Canio og Argentínumaðurinn Carlos Tevez. Nú er West Ham um miðja deild og það svalar mínum metnaði fullkom­ lega.“ „Ég var sjö ára þegar Leeds var á toppnum. Þú getur fundið nokkra fylgni milli þess með hvaða liði á Bret­ landseyjum menn halda með því að líta til þess hvaða lið var á toppnum þegar viðkomandi var sjö ára. Leeds lenti svo í hremm­ ingum og kannski má segja að eyðimerkurganga liðsins undan­ farið hafi orðið til þess að áhugi minn er fremur takmarkaður; ef ég á að vera alveg heiðarlegur. Þannig að ég hef ekki fylgst með þessu þannig að ég geti nokk­ uð spáð í spilin, nema bara með það að Leeds er að koma á sigl­ ingu. Þá vaknar kannski áhuginn eftir Þyrnirósarsvefn.“ Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar – West Ham United Gunnar Sigurðarson, grínisti – Ipswich Town Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi VG – Liverpool Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR – Manchest- er United Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður – Leeds United Sema Erla Serdar, mannréttindafrömuður – Manchester United Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins – Arsenal Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður – Leeds United Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.