Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Side 46
46 4. janúar 2019FÓKUS
LOKAÐIR STURTUKLEFAR
MEÐ TOPPI, SPORNA
GEGN RAKA OG MYGLU
Kíktu á sturta.is og
skoðaðu úrvalið
S. 856 5566
Uppáhaldsliðið
í enska boltanum
Enski boltinn er nokkurs konar sófaþjóðaríþrótt Ís-
lendinga. Fáar ef nokkrar þjóðir hafa meiri áhuga á
bresku boltasparki og flestir eiga sitt lið sem þeir styðja
fram í rauðan dauðann. DV tók hús á nokkrum gallhörð-
um stuðningsmönnum og spurði þá hvernig þeim litist á
tímabilið sem nú er í gangi.
„Þetta er
það lið sem
pabbi held
ur með og
hélt með
þegar ég byrj
aði að fylgjast með enska bolt
anum. Sannaðist þá máltæk
ið „Hvað ungur nemur, gamall
temur.“ Þótt það gildi ekki um
pólitískar skoðanir okkar feðga.
Mér líst að mörgu leyti vel
á tímabilið núna, eftir nýju
stu vendingar. Þar sem leik
gleðin og hjartað er aftur farið
að einkenna enska boltann.
Ég er ánægður að sjá lang
þráðan neista hjá Manche
ster United og vona að hann
haldist. Ég vil frekar horfa á
liðið spila þannig heldur en
að spila leiðinlegan og hug
myndasnauðan taktískan bolta.
Ég hef hingað til frekar horft á
leiki með Liverpool og Totten
ham, sem hafa verið að spila
frábæran bolta, en vona að það
verði breyting þar á.“
„Einu sinni
gældi ég við
að halda
með Man
chester United á
meðan ég bjó þar um skeið. Ég
hætti þeim pælingum þó snar
lega eftir að ég prófaði sömu
sólbaðsstofu og David Beck
ham. Núna held ég með Liver
pool og hef gert það í gegn
um súrt og sætt. Núna er
aldeilis góður tími fyrir okkur.
Við erum með gott forskot og
höfum alla burði til að halda
áfram þessari sigurgöngu þótt
tímabilið sé langt og allt geti
gerst. Mér finnst hins vegar
kominn tími á sigur og ég held
að Klopp og allir Púlarar geti
tekið undir það.“
„Ástæða fyrir því er nokkuð óljós en benda má á að árin 1973 til
1983 var Ipswich næstsigursælasta lið ensku knattspyrnunnar á eft
ir Liverpool. Svo eru búningarnir bláir og hvítir. Má nefna að það eru
litir íslenska landsliðsins og Víkings frá Ólafsvík. Mér líst viðbjóðs
lega illa á tímabilið núna, sem er jafnframt versti árangur liðsins í
60 ár. Þá er árangur liðsins einnig sá versti í sögu Championship
deildarinnar. Þannig að ég hef verið fokking betri þegar kemur að
knattspyrnumálum á Englandi. En annars hef ég sjaldan verið betri.“
„Liðið mitt
hefur alltaf
verið og
verð
ur alltaf
Manchester
United, sama
hvað bjátar á. Þegar
ég var sjálf í fótboltanum hélt
ég mikið upp á Eric Cantona
og ég hélt þar af leiðandi með
Manchester United. Það hef
ur ekki verið ástæða til þess að
endurskoða þá ákvörðun síðan
þá. Þetta hefur ekki verið okk
ar besta tímabil en ég er alveg
hrikalega bjartsýn á framtíðina
þar sem liðið losaði sig loks
ins við José Mourinho og Ole
Gunnar Solskjær svaraði kall
inu um að koma heim.“
„Leeds United er
liðið alveg frá
1970. Þá var
liðið að koma
upp úr annarri
deildinni og sló strax í gegn.
Svo var Skoti aðalmaður
inn, Billy Bremner! Nú sýnist
mér góðar líkur á því að liðið
komist upp úr annari deildinni
upp í deild þeirra bestu og þá
mun Leeds United eins og þá
fara beint á toppinn.“
„Ég bjó um
nokkurra ára
skeið í London og
komst vart hjá
því að halda
með Arsenal enda sótti Jón,
maðurinn minn, leiki liðsins
reglulega. Í fyrsta sinn sem ég
sá þá spila sofnaði ég reyndar
við öxl Jóns. Það kom þó ekki
að sök enda vann Arsenal 61
gegn Southampton ef ég man
rétt.
Mér líst bærilega á
tímabilið, þó að ég sakni ei
lítið Arsene Wenger. Manni
fannst hann einhvern veg
inn ætla að verða eilífur og
með honum hvarf tenging
við fallegri og saklausari
tíma, fyrir tíma olíufursta
og ólígarka. Unai Emery er
samt ágætur, reyndar svolítið
vondur við Özil greyið.“
„Ég styð West Ham, líkt og Barack Obama, og hef gert það frá barn
æsku. Þá voru margar frægar kempur í liðinu en mest hélt ég upp
á framherjann knáa Clyde Best, frá Bermúda en hann var einn fyrsti
þeldökki leikmaður efstu deildar. Þrátt fyrir rysjótt gengi hjá þessu
gamla austurbæjarliði hef ég þó verið því trúr og þekki það svo
sem ágætlega hvernig það er að síga upp og niður töfluna í pólitík
inni. Ég gleðst þegar vel gengur og hef dáðst að einstaka afburðaleik
manni sem skolað hefur á fjörur klúbbsins. Ég er alltaf svolítið veikur
fyrir litríkum sólóistum á fótboltavellinum og þar eru minnisstæð
astir Ítalinn Paolo Di Canio og Argentínumaðurinn Carlos Tevez. Nú
er West Ham um miðja deild og það svalar mínum metnaði fullkom
lega.“ „Ég var sjö ára þegar Leeds var
á toppnum. Þú getur fundið
nokkra fylgni milli þess með
hvaða liði á Bret
landseyjum menn
halda með því að
líta til þess hvaða
lið var á toppnum
þegar viðkomandi var
sjö ára. Leeds lenti svo í hremm
ingum og kannski má segja að
eyðimerkurganga liðsins undan
farið hafi orðið til þess að áhugi
minn er fremur takmarkaður; ef
ég á að vera alveg heiðarlegur.
Þannig að ég hef ekki fylgst með
þessu þannig að ég geti nokk
uð spáð í spilin, nema bara með
það að Leeds er að koma á sigl
ingu. Þá vaknar kannski áhuginn
eftir Þyrnirósarsvefn.“
Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar
– West Ham United
Gunnar Sigurðarson, grínisti – Ipswich Town
Líf Magneudóttir,
borgarfulltrúi VG
– Liverpool
Ragnar Þór Ingólfsson,
formaður VR – Manchest-
er United
Kristinn H. Gunnarsson,
fyrrverandi þingmaður
– Leeds United
Sema Erla Serdar,
mannréttindafrömuður
– Manchester United
Hildur Björnsdóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins – Arsenal
Jakob Bjarnar Grétarsson,
blaðamaður – Leeds United
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is