Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Blaðsíða 36
36 FERÐALÖG 4. janúar 2019 Hvert eiga stjörnumerkin að ferðast á nýju ári Hrútar eru þekktir fyrir hugrekki og elska áskoranir. Eldurinn logar innra með þeim. Þeir eru sjálfstæðir, vilja hafa hlutina eftir sínu höfði frekar en skipulagð- ar ferðir. Það er því kjörið fyrir hrúta að bregða sér til Dólómítafjalla í Norður-Ítalíu og njóta alls þess sem sá frábæri staður hefur upp á að bjóða. Hvort sem um er að ræða skíðaferð að vetri til eða gönguferðir að sumri til. Nautið elskar lúxus og því væri dvöl á Amalfi-ströndinni á Ítalíu kjörin. Venus er sterkt í nautinu og því elskar tuddinn lífsins lystisemdir eins og góð vín og mat. Þá er nautið með sterk tengsl við móður jörð og kann því vel að meta fallega náttúru og tilkomumikið útsýni. Hafnarborgin Salerno mun sérstaklega höfða til nautsins. Borgin sem aldrei sefur hentar einstaklingum í tví- buramerkinu vel. Það er aldrei dauð stund í borginni og afþreyingarmöguleikarnir nánast óþrjótandi. Tví- burar elska fjölbreytni og hana munu þeir finna í Stóra eplinu. Þar er eitthvað í gangi allan sólarhringinn. Krabbar eru yfirleitt heimakærir og kunna vel að meta öryggi. Þegar þeir þó á annað borð hætta sér út úr skelinni þá gera þeir það almennilega og vilja yfirleitt vera í tengslum við vatn. Staða himintunglanna er á þá leið að ævintýraferð til Kóralrifsins mikla úti fyrir ströndum Ástralíu algjörlega málið. Þar myndi krabb- inn blómstra, hvort sem er við afslappaða köfun eða í útsýnisflugi í þyrlu yfir hið stórbrotna náttúruundur. Ljón elska að dvelja á stöðum þar sem þau geta leyft eðlis- lægri tign sinni að njóta sín. Þess vegna myndi dvöl á eyj- unni Balí í Indónesíu henta þeim vel. Balí er áhrifaríkur og spennandi staður þar sem listagyðjunni er gert hátt undir höfði. Það kunna ljón vel að meta auk þess sem konungur dýranna vill gera vel við sig. Mikið úrval af hvers kyns nudd- og snyrtimeðferðum á Balí er því sérstaklega ákjósanlegt fyrir ljón. Meyjur kunna að meta heilsutengda ferðamennsku. Það myndi því henta þeim vel að fara í ævintýraferð til Perú og ganga upp að Inkaborginni goðsagnakenndu, Machu Picchu. Upplifun af stórbrotinni náttúrunni sem og fábrotnu en næringarríku fæði er eitthvað sem meyjan mun elska. Vogir kunna vel að meta fáguð, listræn kvöld, full af tónlist og hvers konar menningu. Ekki skemmir fyrir ef smá róm- antík svífur yfir vötnum. Borgin ótrúlega við Signubakka, París, myndi því henta vog vel þetta árið. Sporðdrekar eru ástríðufullir og djúpþenkjandi. Þeir kunna að meta fjölbreytni og því myndi dvöl í borg draumanna, Los Angeles, vera vel við hæfi. Það mun höfða vel til sporðdreka að dvelja innan um fríþenkj- andi listaspírur með „matchalatte“ í annarri og jóga- dýnu í hinni. Bogmenn eru með óseðjandi þrá fyrir nýrri upplifun og leitinni að æðri lærdómi. Fræðin segja að þeir sem eru í merki bogmannsins heillist oft af heimspeki, fornum menningarheimum og hvers konar dulfræði. Þessum lærdómsþorsta getur bogmaðurinn svalað í hinni fornu borg Angkor Wat í Kambódíu. Einstaklingar í merki steingeitarinnar leggja sig yfirleitt alla fram í vinnunni. Frí þeirra þarf því að vera til staðar þar sem þeir geta slappað af en einnig upplifað áhugaverðan stað með sögu. Steingeitur slappa best af í fámenni og því væri Páskaeyja, úti fyrir ströndum Chile, ákjósanlegur áfanga- staður. Þar býr ekki nokkur maður en saga staðarins er afar áhugaverð. Vatnsberinn hefur mikinn áhuga á tækninýjungum, tísku og í raun öllu sem tengist framtíðinni. Fyrir slík- an einstakling er ferð til Japans sem draumi líkust, sér- staklega til höfuðborgarinnar Tókýó. Þó er ómissandi fyrir vatnsbera að bregða sér í Shinkansen-leifturlest- irnar milli stórborga landsins. Fiskar hafa sérstakan áhuga á öllum andlegum mál- efnum og útiveru.  Staður sem sameinar þennan áhuga fiskanna er ganga upp um Himalæjafjöll í Nepal. Slíkar ferðir verða sífellt vinsælli hjá Íslending- um og þar yrðu þessir einstaklingar eins og fiskar í vatni. Krabbi Ljón Vatnsberinn Hrútur Nautið Tvíburar Meyja Vog Sporðdreki Fiskar Steingeit Bogmaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.