Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Blaðsíða 16
16 4. janúar 2019FRÉTTIR - ERLENT N ú er svo komið að starfs- menn Open Society Foundations þora ekki lengur að starfa í Ungverjalandi, heimalandi George Soros, stofnanda sam- takanna. Viktor Orban, for- sætisráðherra landsins, er væg- ast sagt mjög í nöp við Soros, sem býr í Bandaríkjunum, og hefur á undanförnum misserum gert sitt ýtrasta til að gera Soros skráveifur. Samtökin Open Society Foundations hafa starf- að í Ungverjalandi í 30 ár en nú hefur starfsemin verið flutt til Berlínar í Þýskalandi. Atlaga Orban gegn samtök- unum hófst af fullum þunga á síðari hluta ársins 2014. Þá sagði Orban í ræðu að hann hefði í hyggju að stofna „ófrjálslynt“ ríki í Ungverjalandi þar sem lýð- ræði væri af skornum skammti. Þetta hafði meðal annars í för með sér að hans sögn að tekið yrði hart á aðgerðasinnum en ríkisstjórn Orban flokkar Open Society Foundations sem sam- tök aðgerðasinna. Í fyrstu at- lögunni var skattinum beitt gegn samtökunum og lögum og reglum breytt til að hamla starf- semi samtakanna. Til dæmis voru settar reglur 2017 sem kveða á um að samtök sem fá meira en 23.000 evrur í styrk frá útlenskum styrktaraðilum verða að lýsa því yfir að þau séu „fjár- mögnuð erlendis frá“. Ríkis- stjórn Orban hefur einnig kom- ið mörgum lögum í gegnum þingið sem kveða á um að ólög- legt sé að hjálpa ólöglegum inn- flytjendum að óska eftir hæli í landinu. Auk þess mega samtök, hvaða nafni sem þau nefnast, ekki blanda sér í hælisumsóknir. Einnig voru samþykkt lög, sem heita opinberlega Stop Soros, sem kveða á um fangelsisrefs- ingu yfir þeim sem hjálpa ólög- legum innflytjendum að dvelja í Ungverjalandi. Refsiákvæðið nær bæði yfir einstaklinga og samtök. Ríkis stjórnin hóf einnig beinskeytta baráttu og auglýs- inga- og áróðursherferð gegn Soros. Fékk styrk frá Soros Miðað við þetta allt kann það að hljóma undarlega að Viktor Orban fékk sjálfur eitt sinn bein- an fjárstyrk frá Soros eða 10.000 dollara til að kosta nám hans í stjórnmálafræði við Oxford- háskóla í Englandi. Á síðari árum hefur Orban hins vegar þróað með sér það sem sumir vestrænir fjölmiðlar kalla þrá- hyggju í garð Soros. Orban segir að Soros sé að reyna að ná völd- um í Ungverjalandi, að hann vilji ræna kjörna fulltrúa þeim völdum og stöðum sem þeir voru kjörnir til að gegna. Í ræðu 2017 sagði Orban að Soros vilji fækka kristnu fólki í Ungverja- landi með því að flytja múslíma til landsins. Í herferð ríkisstjórnarinnar gegn Soros var því haldið fram að Soros hefði í hyggju að flytja milljónir innflytjenda frá Afríku til Ungverjalands. Þessu var haldið fram í auglýsingum í dag- blöðum, hliðhollum ríkisstjórn- inni, sjónvarpi og á stórum aug- lýsingaskiltum víða um land. Á sumum þeirra var sýnd mynd af brosandi Soros og undir var texti á borð við: „Látum ekki Georg Soros hlæja best að lokum.“ Ungverskir gyðingar hafa gagnrýnt auglýsingarnar og segja að í þeim megi greina gyðingahatur. Allt hefur þetta borið árang- ur og að lokum hrökkluðust starfsmenn Open Society Foundations til Berlínar. Áður hugsaði starfsfólk samtakanna sig vel um áður en það sagði hvar það starfaði, almenningsálitið var orðið því svo andsnúið. Ekki var um beinar árásir á starfsfólk- ið að ræða en það fann vel að það var ekki velkomið víða, jafn- vel gamlir vinir sneru skyndi- lega við því baki. Skyndilega voru starfsmenn Open Society Foundations orðnir óvinir ríkis- ins númer eitt. Starfsmönnum samtakanna var til dæmis mjög brugðið yfir ljósmynd sem einn þingmaður stjórnarflokks Orban birti á Facebook. Á henni sést dautt svín, nýlega slátruðu, og búið er að skrifa „O volt a Soros“ á húð þess. Þetta er ákveðinn orða- leikur sem getur þýtt: „Hann var næstur í röðinni“ eða „Þetta var Soros“. Undir myndina skrif- aði þingmaðurinn: „Einu svín- inu færra. Verði þér að góðu!“ Þingmaðurinn hefur ekki viljað játa að myndin hafi tengingu við Soros sem er gyðingur. Veist að háskólanum En það er ekki aðeins Open Society Foundations sem eru skotspónn Orban og stjórnar hans því Central European Uni- versity, háskóli sem Soros stofn- aði og hefur stutt fjárhagslega, hefur einnig neyðst til að flytja starfsemi sína frá Ungverja- landi. Háskólinn neyddist til að flytja vegna laga sem var sér- staklega beint gegn honum til að þvinga hann til að flytja úr landi. Háskólinn hefur því flutt megn- ið af starfsemi sinni til Vínar- borgar í Austurríki. n n Starfsmenn Open Society Foundations til Þýskalands Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is „Einu svín-inu færra. Verði þér að góðu! Hrekur andstæðinga sína frá Ungverjalandi George Soros Skotspónn í heimalandinu Ungverjalandi. Viktor Orban Forsætisráðherra Ungverjalands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.