Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Síða 16
16 4. janúar 2019FRÉTTIR - ERLENT
N
ú er svo komið að starfs-
menn Open Society
Foundations þora
ekki lengur að starfa
í Ungverjalandi, heimalandi
George Soros, stofnanda sam-
takanna. Viktor Orban, for-
sætisráðherra landsins, er væg-
ast sagt mjög í nöp við Soros,
sem býr í Bandaríkjunum, og
hefur á undanförnum misserum
gert sitt ýtrasta til að gera Soros
skráveifur. Samtökin Open
Society Foundations hafa starf-
að í Ungverjalandi í 30 ár en nú
hefur starfsemin verið flutt til
Berlínar í Þýskalandi.
Atlaga Orban gegn samtök-
unum hófst af fullum þunga á
síðari hluta ársins 2014. Þá sagði
Orban í ræðu að hann hefði í
hyggju að stofna „ófrjálslynt“
ríki í Ungverjalandi þar sem lýð-
ræði væri af skornum skammti.
Þetta hafði meðal annars í för
með sér að hans sögn að tekið
yrði hart á aðgerðasinnum en
ríkisstjórn Orban flokkar Open
Society Foundations sem sam-
tök aðgerðasinna. Í fyrstu at-
lögunni var skattinum beitt
gegn samtökunum og lögum og
reglum breytt til að hamla starf-
semi samtakanna. Til dæmis
voru settar reglur 2017 sem
kveða á um að samtök sem fá
meira en 23.000 evrur í styrk frá
útlenskum styrktaraðilum verða
að lýsa því yfir að þau séu „fjár-
mögnuð erlendis frá“. Ríkis-
stjórn Orban hefur einnig kom-
ið mörgum lögum í gegnum
þingið sem kveða á um að ólög-
legt sé að hjálpa ólöglegum inn-
flytjendum að óska eftir hæli í
landinu. Auk þess mega samtök,
hvaða nafni sem þau nefnast,
ekki blanda sér í hælisumsóknir.
Einnig voru samþykkt lög, sem
heita opinberlega Stop Soros,
sem kveða á um fangelsisrefs-
ingu yfir þeim sem hjálpa ólög-
legum innflytjendum að dvelja
í Ungverjalandi. Refsiákvæðið
nær bæði yfir einstaklinga og
samtök. Ríkis stjórnin hóf einnig
beinskeytta baráttu og auglýs-
inga- og áróðursherferð gegn
Soros.
Fékk styrk frá Soros
Miðað við þetta allt kann það
að hljóma undarlega að Viktor
Orban fékk sjálfur eitt sinn bein-
an fjárstyrk frá Soros eða 10.000
dollara til að kosta nám hans
í stjórnmálafræði við Oxford-
háskóla í Englandi. Á síðari
árum hefur Orban hins vegar
þróað með sér það sem sumir
vestrænir fjölmiðlar kalla þrá-
hyggju í garð Soros. Orban segir
að Soros sé að reyna að ná völd-
um í Ungverjalandi, að hann
vilji ræna kjörna fulltrúa þeim
völdum og stöðum sem þeir
voru kjörnir til að gegna. Í ræðu
2017 sagði Orban að Soros vilji
fækka kristnu fólki í Ungverja-
landi með því að flytja múslíma
til landsins.
Í herferð ríkisstjórnarinnar
gegn Soros var því haldið fram
að Soros hefði í hyggju að flytja
milljónir innflytjenda frá Afríku
til Ungverjalands. Þessu var
haldið fram í auglýsingum í dag-
blöðum, hliðhollum ríkisstjórn-
inni, sjónvarpi og á stórum aug-
lýsingaskiltum víða um land. Á
sumum þeirra var sýnd mynd af
brosandi Soros og undir var texti
á borð við: „Látum ekki Georg
Soros hlæja best að lokum.“
Ungverskir gyðingar hafa
gagnrýnt auglýsingarnar og
segja að í þeim megi greina
gyðingahatur.
Allt hefur þetta borið árang-
ur og að lokum hrökkluðust
starfsmenn Open Society
Foundations til Berlínar. Áður
hugsaði starfsfólk samtakanna
sig vel um áður en það sagði hvar
það starfaði, almenningsálitið
var orðið því svo andsnúið. Ekki
var um beinar árásir á starfsfólk-
ið að ræða en það fann vel að
það var ekki velkomið víða, jafn-
vel gamlir vinir sneru skyndi-
lega við því baki. Skyndilega
voru starfsmenn Open Society
Foundations orðnir óvinir ríkis-
ins númer eitt.
Starfsmönnum samtakanna
var til dæmis mjög brugðið yfir
ljósmynd sem einn þingmaður
stjórnarflokks Orban birti á
Facebook. Á henni sést dautt
svín, nýlega slátruðu, og búið er
að skrifa „O volt a Soros“ á húð
þess. Þetta er ákveðinn orða-
leikur sem getur þýtt: „Hann
var næstur í röðinni“ eða „Þetta
var Soros“. Undir myndina skrif-
aði þingmaðurinn: „Einu svín-
inu færra. Verði þér að góðu!“
Þingmaðurinn hefur ekki viljað
játa að myndin hafi tengingu við
Soros sem er gyðingur.
Veist að háskólanum
En það er ekki aðeins Open
Society Foundations sem eru
skotspónn Orban og stjórnar
hans því Central European Uni-
versity, háskóli sem Soros stofn-
aði og hefur stutt fjárhagslega,
hefur einnig neyðst til að flytja
starfsemi sína frá Ungverja-
landi. Háskólinn neyddist til að
flytja vegna laga sem var sér-
staklega beint gegn honum til að
þvinga hann til að flytja úr landi.
Háskólinn hefur því flutt megn-
ið af starfsemi sinni til Vínar-
borgar í Austurríki. n
n Starfsmenn Open Society Foundations til Þýskalands
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is „Einu svín-inu færra.
Verði þér að góðu!
Hrekur andstæðinga
sína frá Ungverjalandi
George Soros Skotspónn í
heimalandinu Ungverjalandi.
Viktor Orban
Forsætisráðherra
Ungverjalands.