Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Blaðsíða 18
18 4. janúar 2019 Þ ýskir karlmenn eru að meðaltali feitari en aðrir evrópskir karlmenn og þeir eru ekki að gera neitt til að reyna að draga úr þessu. Þýskir karlar virðast beinlínis ekki hafa mikinn áhuga á að gera eitthvað í málunum en til að reyna að hvetja þá áfram hefur nýju verkefni ver- ið hleypt af stokkunum. Það nefn- ist Fussball-Fans im Training en mörg af helstu knattspyrnulið- um landsins taka þátt í verkefn- inu. Þátttakendurnir verða að vera minnst 100 kíló og málbandið verður að sýna minnst einn metra þegar magamálið er mælt. Auk þess verður líkamsþyngdarstuð- ullinn BMI að vera minnst 28, sem þýðir að viðkomandi er greinilega of þungur. Einnig verða þátttak- endurnir að vera félagar í stuðn- ingsmannaklúbbum félaganna. Þegar Dynamo Dresden aug- lýsti í haust að stuðningsmenn hefðu nú tækifæri til að spila und- ir merkjum félagsins og komast í betra form streymdu umsóknirnar inn. Margir vildu spila í XXL liði félagsins. Aðeins tuttugu sluppu í gegnum nálaraugað og komust í liðið. Einn þeirra er Matthias Eichhorn, 58 ára, sem er 134,4 kíló og 1,95 metrar á hæð. Í þýskum fjölmiðlum hefur verið haft eftir honum að það sem reki hann og aðra liðsmenn áfram sé stolt yfir að spila undir merkjum félags síns og löngunin til að léttast aðeins. „Enginn vill vera sá sem tapar. Við æfum allir af krafti, eitthvað sem við höfum ekki gert árum saman, og höfum ánægju af.“ Stórt vandamál Fyrir 18 árum drukku Þjóðverjar að meðaltali 18 lítra af áfengi á ári. Í dag er neyslan komin niður í 12 lítra. Þetta er þó vel yfir meðal- tali ESB-ríkjanna sem er 8 lítrar. Þjóðverjar neyta að meðaltali 90 gramma af sykri á dag en það er tvöfalt það magn sem Alþjóðaheil- brigðismálastofnunin WHO mælir með. Gosdrykkjaneysla Þjóðverja er mikil og óvíða í Evrópu er hún meiri og þá með tilheyrandi sykur- neyslu. Um 65 prósent þýskra karl- manna eru of þungir en það er nokkrum prósentustigum hærra hlutfall en að meðaltali í Evrópu samkvæmt niðurstöðu rannsóknar WHO. Fjórði hver þýskur karlmaður er í mikilli yfir- þyngd. Hjá þýsku konunum er staðan önnur en um helmingur þeirra er í yfirþyngd og fimmta hver er svo þung að það er hættu- legt heilsufarslega. En að meðal- tali eru þýskar konur grennri en aðrar evrópskar konur. Kostnað- urinn vegna heilsufarsvandamála, tengdum ofþyngd, er mikill og má nefna að áætlað er að kostnaður þýska ríkisins vegna sykursjúkra landsmanna sé 35 milljarðar evra á ári. Kostnaður vegna fólks í mjög mikilli yfirþyngd er um 63 millj- arðar evra á ári. Pylsur og bjór En af hverju taka þýskir karl- ar því svo rólega að þurfa í sífellu að víkka beltið á meðan konurn- ar glíma ekki við sama vanda? Michael Despeghel næringarsér- fræðingur sagði í samtali við Die Welt að ein af ástæðunum sé að körlum finnist gott að lifa frá degi til dags og borða það sem þá langar í hverju sinni. Hann segir að bein- hörð tölfræði styðji þetta. Þýskir karlar borða að meðaltali rúmlega kíló af kjöti og pylsum í viku hverri en það er tvöfalt meira en konurn- ar innbyrða og tvöfalt meira en er talið ráðlegt. Þá drekka þeir tvöfalt meira af gosdrykkjum en konurn- ar og sex sinnum meiri bjór. Desphegel segir að ein af ástæðunum fyrir að karlarnir lifi töluvert óhollara lífi sé að þeir geti bolað þeirri staðreynd að matur- inn, sem þeir vilja helst borða, sé sá óhollasti, í burtu. „Þetta er hugarfar sem drepur mann.“ Þá er það ekki til að bæta mál- in að sögn hans að karlarnar telja oft að þeir séu grennri en þeir eru í raun og veru en þennan vanda glíma konurnar ekki við. Könnun sem var gerð fyrir nokkrum árum leiddi í ljós að aðeins fjórði hver karlmaður taldi sig vera of þungan. n FRÉTTIR - ERLENT UMHVERFISVÆNI RUSLAPOKINN www.igf.is SEGÐ U NE I VIÐ P LAST I Tveir af hverjum þremur þýskum karlmönnum glíma við offitu Kjöt, pylsur og bjór eiga stóran hlut að máli „Þetta er hugarfar sem drepur mann Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is Offita Gríðar- legt vandamál í Þýskalandi. Bratwurst Ástæða offitu margra þýskra karla. Átak með knattspyrnu Þátttakendur verða að vera að minnsta kosti 100 kíló.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.