Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Side 18
18 4. janúar 2019
Þ
ýskir karlmenn eru að
meðaltali feitari en aðrir
evrópskir karlmenn og þeir
eru ekki að gera neitt til að
reyna að draga úr þessu. Þýskir
karlar virðast beinlínis ekki hafa
mikinn áhuga á að gera eitthvað í
málunum en til að reyna að hvetja
þá áfram hefur nýju verkefni ver-
ið hleypt af stokkunum. Það nefn-
ist Fussball-Fans im Training en
mörg af helstu knattspyrnulið-
um landsins taka þátt í verkefn-
inu. Þátttakendurnir verða að vera
minnst 100 kíló og málbandið
verður að sýna minnst einn metra
þegar magamálið er mælt. Auk
þess verður líkamsþyngdarstuð-
ullinn BMI að vera minnst 28, sem
þýðir að viðkomandi er greinilega
of þungur. Einnig verða þátttak-
endurnir að vera félagar í stuðn-
ingsmannaklúbbum félaganna.
Þegar Dynamo Dresden aug-
lýsti í haust að stuðningsmenn
hefðu nú tækifæri til að spila und-
ir merkjum félagsins og komast í
betra form streymdu umsóknirnar
inn. Margir vildu spila í XXL liði
félagsins. Aðeins tuttugu sluppu
í gegnum nálaraugað og komust
í liðið. Einn þeirra er Matthias
Eichhorn, 58 ára, sem er 134,4 kíló
og 1,95 metrar á hæð. Í þýskum
fjölmiðlum hefur verið haft eftir
honum að það sem reki hann og
aðra liðsmenn áfram sé stolt yfir
að spila undir merkjum félags síns
og löngunin til að léttast aðeins.
„Enginn vill vera sá sem tapar.
Við æfum allir af krafti, eitthvað
sem við höfum ekki gert árum
saman, og höfum ánægju af.“
Stórt vandamál
Fyrir 18 árum drukku Þjóðverjar
að meðaltali 18 lítra af áfengi á
ári. Í dag er neyslan komin niður í
12 lítra. Þetta er þó vel yfir meðal-
tali ESB-ríkjanna sem er 8 lítrar.
Þjóðverjar neyta að meðaltali 90
gramma af sykri á dag en það er
tvöfalt það magn sem Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunin WHO mælir
með. Gosdrykkjaneysla Þjóðverja
er mikil og óvíða í Evrópu er hún
meiri og þá með tilheyrandi sykur-
neyslu.
Um 65 prósent þýskra karl-
manna eru of þungir en það
er nokkrum prósentustigum
hærra hlutfall en að meðaltali í
Evrópu samkvæmt niðurstöðu
rannsóknar WHO. Fjórði hver
þýskur karlmaður er í mikilli yfir-
þyngd. Hjá þýsku konunum er
staðan önnur en um helmingur
þeirra er í yfirþyngd og fimmta
hver er svo þung að það er hættu-
legt heilsufarslega. En að meðal-
tali eru þýskar konur grennri en
aðrar evrópskar konur. Kostnað-
urinn vegna heilsufarsvandamála,
tengdum ofþyngd, er mikill og má
nefna að áætlað er að kostnaður
þýska ríkisins vegna sykursjúkra
landsmanna sé 35 milljarðar evra
á ári. Kostnaður vegna fólks í mjög
mikilli yfirþyngd er um 63 millj-
arðar evra á ári.
Pylsur og bjór
En af hverju taka þýskir karl-
ar því svo rólega að þurfa í sífellu
að víkka beltið á meðan konurn-
ar glíma ekki við sama vanda?
Michael Despeghel næringarsér-
fræðingur sagði í samtali við Die
Welt að ein af ástæðunum sé að
körlum finnist gott að lifa frá degi
til dags og borða það sem þá langar
í hverju sinni. Hann segir að bein-
hörð tölfræði styðji þetta. Þýskir
karlar borða að meðaltali rúmlega
kíló af kjöti og pylsum í viku hverri
en það er tvöfalt meira en konurn-
ar innbyrða og tvöfalt meira en er
talið ráðlegt. Þá drekka þeir tvöfalt
meira af gosdrykkjum en konurn-
ar og sex sinnum meiri bjór.
Desphegel segir að ein af
ástæðunum fyrir að karlarnir lifi
töluvert óhollara lífi sé að þeir geti
bolað þeirri staðreynd að matur-
inn, sem þeir vilja helst borða, sé
sá óhollasti, í burtu.
„Þetta er hugarfar sem drepur
mann.“
Þá er það ekki til að bæta mál-
in að sögn hans að karlarnar telja
oft að þeir séu grennri en þeir eru
í raun og veru en þennan vanda
glíma konurnar ekki við. Könnun
sem var gerð fyrir nokkrum
árum leiddi í ljós að aðeins fjórði
hver karlmaður taldi sig vera of
þungan. n
FRÉTTIR - ERLENT
UMHVERFISVÆNI
RUSLAPOKINN
www.igf.is
SEGÐ
U NE
I
VIÐ P
LAST
I
Tveir af hverjum þremur þýskum
karlmönnum glíma við offitu
Kjöt, pylsur og bjór eiga stóran hlut að máli
„Þetta er
hugarfar
sem drepur mann
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Offita Gríðar-
legt vandamál í
Þýskalandi.
Bratwurst
Ástæða offitu
margra þýskra
karla.
Átak með
knattspyrnu
Þátttakendur
verða að vera að
minnsta kosti
100 kíló.