Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Side 36
36 FERÐALÖG 4. janúar 2019
Hvert eiga stjörnumerkin
að ferðast á nýju ári
Hrútar eru þekktir fyrir hugrekki og elska áskoranir.
Eldurinn logar innra með þeim. Þeir eru sjálfstæðir,
vilja hafa hlutina eftir sínu höfði frekar en skipulagð-
ar ferðir. Það er því kjörið fyrir hrúta að bregða sér til
Dólómítafjalla í Norður-Ítalíu og njóta alls þess sem
sá frábæri staður hefur upp á að bjóða. Hvort sem um
er að ræða skíðaferð að vetri til eða gönguferðir að
sumri til.
Nautið elskar lúxus og því væri dvöl á Amalfi-ströndinni á
Ítalíu kjörin. Venus er sterkt í nautinu og því elskar tuddinn
lífsins lystisemdir eins og góð vín og mat. Þá er nautið með
sterk tengsl við móður jörð og kann því vel að meta fallega
náttúru og tilkomumikið útsýni. Hafnarborgin Salerno mun
sérstaklega höfða til nautsins.
Borgin sem aldrei sefur hentar einstaklingum í tví-
buramerkinu vel. Það er aldrei dauð stund í borginni
og afþreyingarmöguleikarnir nánast óþrjótandi. Tví-
burar elska fjölbreytni og hana munu þeir finna í Stóra
eplinu. Þar er eitthvað í gangi allan sólarhringinn.
Krabbar eru yfirleitt heimakærir og kunna vel að meta
öryggi. Þegar þeir þó á annað borð hætta sér út úr
skelinni þá gera þeir það almennilega og vilja yfirleitt
vera í tengslum við vatn. Staða himintunglanna er á
þá leið að ævintýraferð til Kóralrifsins mikla úti fyrir
ströndum Ástralíu algjörlega málið. Þar myndi krabb-
inn blómstra, hvort sem er við afslappaða köfun eða í
útsýnisflugi í þyrlu yfir hið stórbrotna náttúruundur.
Ljón elska að dvelja á stöðum þar sem þau geta leyft eðlis-
lægri tign sinni að njóta sín. Þess vegna myndi dvöl á eyj-
unni Balí í Indónesíu henta þeim vel. Balí er áhrifaríkur og
spennandi staður þar sem listagyðjunni er gert hátt undir
höfði. Það kunna ljón vel að meta auk þess sem konungur
dýranna vill gera vel við sig. Mikið úrval af hvers kyns nudd-
og snyrtimeðferðum á Balí er því sérstaklega ákjósanlegt
fyrir ljón.
Meyjur kunna að meta heilsutengda ferðamennsku.
Það myndi því henta þeim vel að fara í ævintýraferð til
Perú og ganga upp að Inkaborginni goðsagnakenndu,
Machu Picchu. Upplifun af stórbrotinni náttúrunni
sem og fábrotnu en næringarríku fæði er eitthvað sem
meyjan mun elska.
Vogir kunna vel að meta fáguð, listræn kvöld, full af tónlist
og hvers konar menningu. Ekki skemmir fyrir ef smá róm-
antík svífur yfir vötnum. Borgin ótrúlega við Signubakka,
París, myndi því henta vog vel þetta árið.
Sporðdrekar eru ástríðufullir og djúpþenkjandi. Þeir
kunna að meta fjölbreytni og því myndi dvöl í borg
draumanna, Los Angeles, vera vel við hæfi. Það mun
höfða vel til sporðdreka að dvelja innan um fríþenkj-
andi listaspírur með „matchalatte“ í annarri og jóga-
dýnu í hinni.
Bogmenn eru með óseðjandi þrá fyrir nýrri upplifun
og leitinni að æðri lærdómi. Fræðin segja að þeir sem
eru í merki bogmannsins heillist oft af heimspeki,
fornum menningarheimum og hvers konar dulfræði.
Þessum lærdómsþorsta getur bogmaðurinn svalað í
hinni fornu borg Angkor Wat í Kambódíu.
Einstaklingar í merki steingeitarinnar leggja sig yfirleitt alla
fram í vinnunni. Frí þeirra þarf því að vera til staðar þar sem
þeir geta slappað af en einnig upplifað áhugaverðan stað
með sögu. Steingeitur slappa best af í fámenni og því væri
Páskaeyja, úti fyrir ströndum Chile, ákjósanlegur áfanga-
staður. Þar býr ekki nokkur maður en saga staðarins er afar
áhugaverð.
Vatnsberinn hefur mikinn áhuga á tækninýjungum,
tísku og í raun öllu sem tengist framtíðinni. Fyrir slík-
an einstakling er ferð til Japans sem draumi líkust, sér-
staklega til höfuðborgarinnar Tókýó. Þó er ómissandi
fyrir vatnsbera að bregða sér í Shinkansen-leifturlest-
irnar milli stórborga landsins.
Fiskar hafa sérstakan áhuga á öllum andlegum mál-
efnum og útiveru. Staður sem sameinar þennan
áhuga fiskanna er ganga upp um Himalæjafjöll í
Nepal. Slíkar ferðir verða sífellt vinsælli hjá Íslending-
um og þar yrðu þessir einstaklingar eins og fiskar í
vatni.
Krabbi Ljón
Vatnsberinn
Hrútur
Nautið Tvíburar
Meyja
Vog
Sporðdreki
Fiskar Steingeit Bogmaður