Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Side 32
Nýtt ár – nýr lífsstíll 4. janúar 2019KYNNINGARBLAÐ Innanhússklifur er sívaxandi áhuga-mál á Íslandi og víða um heim. „Hér á landi eru um tæplega 1.500 félagar sem stunda klifur reglulega í Klifurhúsinu,“ segir Benjamin Mokry, framkvæmdastjóri Klifurhússins. Klifursambandið sótti fyrir stuttu um aðild að ÍSÍ og hafa sprottið upp Klifurhús um land allt. Klifur er lífsstíll „Þeir eru að byggja klifurhús á Grundarfirði, einnig er verið að stækka klifurhús á Akureyri og svo er verið að setja upp klifurveggi í Skaftafelli,“ segir Benjamin sem stundar klifur bæði utanhúss og inn- an af miklum krafti. „Klifur er lífsstíll og þegar menn byrja þá eiga þeir erfitt með að hætta, þetta er svo gaman,“ segir Benjamin. Allir geta klifrað Í Klifurhúsinu eru í boði ýmist opnir tímar eða lokaðir og margs konar námskeið fyrir alla aldurshópa. „Við erum með barna- og unglinganám- skeið hér fyrir 5 til 18 ára en einnig kennslu fyrir alla aldurshópa. Elstu þátttakendurnir eru um sextugt,“ segir Benjamin. Klifurveggirnir eru smíðaðir úr timbri og á gólfinu fyrir neðan er stór dýna sem þátttak- endur hoppa niður á í lok klifursins. „Í Klifurhúsinu er stunduð svokölluð „grjótglíma“, þar sem klifurveggurinn er mjög brattur en klifurhæðin lítil, eða um 4–6 metrar. Einnig eru lagð- ar línuklifurleiðir fyrir þá sem eru að æfa það,“ segir Benjamin. Eflir styrk, liðleika og þol Að sögn Benjamins reynir klifrið bæði á styrk og liðleika. „Það er enginn munur á getu stráka og stelpna. Þótt strákarnir fari langt á kraftinum þá eru stelpurnar oftast með betri tækni. Hugtakið tækniklifur er þekkt enda eru tækni og liðleiki mikilvægir þættir í þessu sporti.“ Klifrið eflir allt í senn, þol, liðleika og styrk, og hentar fólki á öllum aldri. „Til dæmis getur maður aldrei orðið of sterkur í fingr- unum en klifrið eflir mjög fingrastyrk. Það er nokkuð sem fólk er almennt ekki að þjálfa með sér. Fyrsta skiptið er í raun alltaf erfiðast þó svo að sé óneitanlega alltaf skemmtilegt að prófa klifur. En þegar maður byrjar að mæta reglulega í klifur, kannski 2–3 skipti í viku, er maður fljótur að sjá árangurinn og er ótrúlegt hvað sumir hafa náð langt á stuttum tíma,“ segir Benjamin. Klifur fyrir byrjendur og lengra komna Það þarf ekki að fara á námskeið til að kynnast klifrinu né þarf að kaupa sér aðgöngukort, hægt er að mæta á staðinn og kaupa sér stakan tíma og leigja klifurskó. Klifurleiðunum er raðað upp í mismunandi erfiðleika- stig þannig að byrjendur geta valið leið sem hentar þeim fullkomlega á meðan meira krefjandi leiðir eru í boði fyrir þá sem eru lengra komnir. Hópar klifra „Það er kjörið fyrir litla hópa að koma hingað og eiga góða stund saman. Klifurhús spretta víða upp erlend- is og eru að verða mjög vinsælir samkomustaðir. Fólk hittist, fær sér kaffi og spjallar, og klifrar síð- an saman í tvo tíma. Þetta kemur algerlega í staðinn fyrir að hittast á barnum. Það er alveg jafn sjálfsagt að hittast í klifri eins og að hittast á kaffihúsi eða krá. Og svo fær maður mikla og góða hreyfingu í leiðinni,“ segir Benjamin, en bætir svo við að það megi líka kíkja á barinn eftir klifrið, hann hafi ekkert á móti því. Gefðu klifur Gjafabréf hjá Klifurhúsinu eru mjög vinsæl í jólagjafir. „Fólk er ýmist að kaupa mörg skipti fyrir þá sem hafa komið áður, eða bara eitt skipti fyrir þá sem hafa ekki prófað klifur. Þetta er skemmtileg gjöf sem menn búast ekki endilega við,“ segir Benjamin. Nánari upplýsingar um Klifurhúsið er að finna á vefsíðunni klifurhusid.is og Facebook-síðunni Klifurhúsið. Opið er alla virka daga frá 11.30– 22.00 og um helgar 12.00–18.00 Netfang: klifurhusid@klifurhusid.is n KLIFURHÚSIÐ: Það er engin leið að hætta að klifra

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.