Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Blaðsíða 40
40 4. janúar 2019
Tímavélin
H
ermann Göring var einn
af þekktustu og alræmd
ustu nasistum Þýskalands
og þekktastur fyrir að leiða
þýska flugherinn. Hann gegndi
þó mörgum öðrum stöðum innan
þriðja ríkisins, þar á meðal að halda
utan um veiðifugla. Árið 1937 sendi
Göring tvo sendiboða til Íslands til
að sækja fálka. Fengu þeir alls tólf
fálka sem þeir fluttu til Þýskalands
og dreifðu um fálkabúin þar. Síðar
var opnað stórt fálkabú við útrým
ingarbúðirnar Buchenwald sem
Heinrich Himmler hafði umsjón
með. Var það reist með blóði, svita
og tárum þræla úr búðunum.
Fengu tólf fálka
Sumarið 1937 sendi Göring til Ís
lands tvo menn til þess að kaupa
fálka fyrir ríkisfálkabú Þýskalands.
Sá sem leiddi þann leiðangur var
doktor að nafni Heinz Brull, mjög
þekktur fuglafræðingur í Þýskalandi
og frændi Göring. Með honum var
fálkatemjari að nafni Knoespel.
Sendiboðum Göring var mjög
ágengt í leit sinni að íslenskum
fálkum. Þeir komu með skipinu
Dettifossi til Reykjavíkur og komu
við á Ísafirði og á Akureyri. Ferð
uðust þeir um Vestfirði, Norður
land og Austurland og fengu alls
tólf fálkaunga. Níu keyptu þeir,
tvo fengu þeir að gjöf frá Búnaðar
félagi Íslands og einn að gjöf frá
Gísla „Gitler“ Sigurbjörnssyni,
sem eitt sinn leiddi flokk Íslenskra
þjóðernissinna. Einnig kvikmynd
uðu félagarnir fálkana og hreiður
þeirra. Skýrsla er til um leiðangur
inn og geymd hjá Bændasamtök
unum. Gerði sagnfræðingurinn
Auðun Arnórsson grein fyrir henni
í tímaritinu Frey árið 2005.
Sýndir við höfnina
Fálkarnir voru til sýnis við Reykja
víkurhöfn þegar Brull og Knoespel
héldu á brott aftur með Dettifossi.
Fengu þeir rjúpur og dúfur að éta
og þrifust vel. Morgunblaðið tók þá
viðtal við dr. Brull og hann sagði:
„Þessum tólf fálkum verður
dreift á ýmis fálkabú í Þýskalandi, í
Thuringen, Sachsen, í veiðimanna
bú Hermann Göringstofnunar
innar í Braunschweig og tvo tek ég
sjálfur með mér á eigið bú á norð
urströnd Þýskalands.“
Sagðist hann þá þegar hafa tek
ið eftir læknisfræðilegu atriði í sam
bandi við fálkana. Að eitlanabbar
söfnuðust í efri góm þeirra yngstu.
Þessi sömu einkenni leiddu jafn
an þýska fálka til dauða og kæmu
yfirleitt fram þegar kalt var og rakt.
Brull kippti því nöbbunum út með
töng, hreinsaði sárin og geymdi þá
í þurru og hlýju herbergi. Urðu þeir
þá aftur heilbrigðir.
„Þegar við erum komnir með
fálkana til Þýskalands, verður þeim
fyrst sleppt lausum um þriggja
vikna skeið, en við getum treyst því,
að þeir komi til okkar jafnan aftur
til þess að láta gefa sér. Að þessum
þremur vikum loknum verður far
ið að venja þá við veiðar,“ sagði dr.
Brull.
Þýsku félagarnir voru meðvitað
ir um að hægt væri að ganga mjög
nærri stofninum. Brýndu þeir fyrir
íslenskum bændum og þeim sem
veiddu fálka að skilja einn unga eft
ir í hverju hreiðri. Annars myndi
stofninn deyja út.
Dýpri skilningur á
kynþáttahugtakinu
Nasistarnir höfðu mikinn áhuga
á fálkaveiðum og fálkatamningu.
Þessi íþrótt hafði alltaf verið til stað
ar í Þýskalandi en var hún ríkis
vædd þegar Hitler komst til valda.
Fálkaveiðar voru taldar forn germ
anskur siður sem bæri að endur
lífga og halda í heiðri. Kynþáttahug
takið kom einnig við sögu. Í erindi
dr. O. Kleinschmits á ráðstefnu í
ríkisfálkabúinu haustið 1937 var
sagt að veiðifálkinn væri óum
deilanlega ein af göfugustu verum
jarðkringlunnar. Væri hann eitt
mikilvægasta dæmið um kynþátta
hugtakið og dýpri skilning á því.
SS hafði yfirumsjón með
fálkatamningunni og margir nafn
togaðir nasistar sýndu henni mik
inn áhuga. Hermann Göring var
sá sem hafði hvað mestan áhuga,
auk Heinrichs Himmler, leiðtoga
SSsveitanna.
Hermann Göring var einn af
valdamestu mönnum Þriðja rík
isins. Nánast alla valdatíð Hitlers
gegndi Göring stöðu þingforseta.
Þekktastur var hann þó fyrir að stýra
hinum volduga flugher nasista,
Luftwaffe. Færri vita að Göring bar
einnig titilinn yfirveiðistjóri Þriðja
ríkisins. Göring var æðsti embætt
ismaðurinn sem náðist á lífi eftir
stríð og var dreginn fyrir dómstóla
í Nurnberg. Þar var hann dæmdur
til dauða en náði að fremja sjálfsvíg
nóttina áður en átti að hengja hann.
Ríkisfálkabúið var stofnað árið
1935 og staðsett í Riddagshausen
í norðurhluta Þýskalands. Árið
1940 voru opnaðar bækistöðvar
fálkatamningar og fálkaveiða,
SS Falkenhof, og voru þær stað
settar í námunda við Weimar
Buchenwald útrýmingarbúðirnar
í austurhluta landsins. Svæðið var
opið almenningi og þar nálægt var
einnig dýragarður með alls kyns
skepnum. Flestir sem heimsóttu
svæðið voru háttsettir menn úr
hernum og embættismannakerf
inu og fjölskyldur þeirra. Fálkarn
ir voru fengnir víða að. Sérstaklega
margir voru keyptir frá Norður
Afríku og MiðAusturlöndum. Í Fal
kenhof voru einnig aðrir ránfuglar,
svo sem margar tegundir af örnum
og haukum. Þrælar úr Buchenwald
voru notaðir til að byggja svæðið og
halda því við.
Örlögin ókunn
Kaup Göring á íslensku fálkunum
voru ekki síður gerð í vísindaleg
um tilgangi en upp á sport. Fjöl
margir fálkar sem sendir voru úr
landi höfðu drepist. Hvort sem var í
Bretlandi eða á meginlandi Evrópu.
Vildi Göring skera úr um hvort að
íslensku fálkarnir þyldu suðrænna
loftslag. Einnig vildi hann kort
leggja íslenska fálkastofninn og að
Þjóðverjar fræddust um lifnaðar
hætti þeirra. Ekki er vitað hvað varð
um íslensku fálkana sem Göring lét
flytja til Þýskalands, hvort þeir hafi
drepist eins og svo margir eða lifað.
Jafnvel endað í Falkenhof.
Viðhorf Íslendinga sjálfra til út
flutnings fálka á þessum tíma var
misjafnt. Sumir töldu að fálkarnir
yrðu Íslandi til prýði erlendis og góð
landkynning. Aðrir höfðu áhyggjur
af því að gengið yrði of nærri stofn
inum því að þetta væru sjaldgæfir
fuglar. Lengi höfðu Danakonungar
sóst mjög eftir íslenskum fálkum,
bæði til eigin nota en einnig til að
gefa erlendum þjóðhöfðingjum.
Árið 1764 voru til að mynda 210
fálkar fluttir frá Íslandi til Danmerk
ur. Á 19. öld dró þó mjög úr útflutn
ingi á íslenskum fálkum og árið
1806 var fálkabú konungs lagt nið
ur. n
Gamla
auglýsingin
Vísir 25. nóvember 1971
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
ALLAR ALMENNAR
FATAVIÐGERÐIR
TÖKUM AÐ OKKUR
www.l
ost.is
581 3330 / Malarhöfði 2
GÖRING LÉT SÆKJA ÍSLENSKA FÁLKA
n Dr. Brull og Knoespel ferðuðust um landið n Fálkabú reist með þrælum úr útrýmingarbúðum
„Þegar við erum komnir með
fálkana til Þýskalands, verður
þeim fyrst sleppt lausum um þriggja
vikna skeið, en við getum treyst því,
að þeir komi til okkar jafnan aftur til
þess að láta gefa sér.
Dr. Heinz Brull Morgunblaðið
7. júlí 1937..
Hermann Göring Veiðimálastjóri
þriðja ríkisins.