Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Síða 22
22 FÓLK - VIÐTAL 4. janúar 2019
hann mér á að það væri í lagi að
gráta. Ég brotnaði ekki niður, en
auðvitað var þetta áfall. Margir
verða leiðir, jafnvel þunglyndir, en
ég hugsaði með mér að slíkt væri
ekki að fara að hjálpa mér.“
Malín hélt áfram að keppa í
rallí eins og fyrr, en leitaði til Park-
inson-samtakanna með ráðgjöf.
Segir hún starfsfólk Landspítalans
ekki aðstoða með réttindi eða að-
stoð, og því sé gott að geta leitað
til fjölskylduráðgjafar Parkinson-
samtakanna, sem veiti fría ráðgjöf
um réttindi sjúklinga, mataræði og
fleira.
Síðastliðið sumar voru sam-
tökin með átak til að vekja athygli
á sjúkdómnum en þau safna fyrir
húsi sem er ekki til staðar í dag,
miðstöð fyrir sjúklinga þar sem
hægt væri að halda fundi og bjóða
upp á fræðslu, en fundir eru í dag
haldnir í sal í Hátúni, sem samtök-
in fá afnot af.
„Ég og nokkrar aðrar konur
fórum inn á völlinn með lands-
liðskonunum í fótbolta og aftan
á treyjunum stóð Parkinsdóttir,
sama gerðu strákarnir og á treyj-
um þeirra stóð Parkinson. Þannig
vöktum við athygli á sjúkdómnum.
Auk þess höfum við vakið athygli
á þeirri skelfilegu staðreynd að
dánartíðni vegna sjúkdómsins er
næsthæst í heimi á Íslandi, sem er
ægilegt, en ekki er vitað af hverju
svo er. Hvort það er loftslagið,
myrkrið, mataræðið. Sem dæmi
má nefna þá þekkist Parkinson
varla í Mið-Austurlöndum. Það er
margt sem er órannsakað.“
Spennt, en hrædd vegna stofn-
frumumeðferðar
Malín hefur verið í sambandi við
lækna erlendis, sem vilja fá hana
í stofnfrumumeðferð, meðferð
sem ekki hefur verið reynd enn
sem komið er á mönnum. „Fyrst
þetta virkar á mýs, þá virkar þetta
á Malín,“ segir hún og hlær.
„Ég er spennt fyrir meðferðinni
og langar að fara, þetta væri mikill
séns sem ég væri að taka en maður
vill reyna allt þegar maður er með
ólæknandi sjúkdóm. En með-
ferðin kostar um fimm milljónir
og það hefur enginn Parkinson-
sjúklingur farið og ég þori ekki að
fara fyrst. Læknarnir geta auðvit-
að engu lofað um árangur, en ég
myndi vilja fara fyrr en seinna,
ef meðferðin yrði til að stoppa
sjúkdómsferlið. Ég verð kannski
betri, allavega ekki verri held ég.
Ég myndi samt vilja sjá að svona
meðferð yrði niðurgreidd í fram-
tíðinni.“
Alin upp í Vottum Jehóva –
Lögð í einelti alla barnæskuna
Malín er alin upp í vottatrú, en
móðir hennar, sem fædd var árið
1947, tók trúna árið 1971. „Það
vissi enginn af hverju hún gerði
þetta, hún hafði sem dæmi búið í
Mið-Austurlöndum. Síðan kynnt-
ist hún pabba. Hann var aldrei
í vottunum, var bara hlutlaus í
þessu. Þau gerðu samkomulag,
mamma fékk að ala okkur upp
með þessu trúardóti og pabbi var
alltaf í vinnunni og í flugbjörg-
unarsveitinni.“
Vottar halda ekki upp á afmæli
eða jól með tilheyrandi hátíðleg-
heitum og veisluhöldum: mat,
skrauti, pökkum og svo framveg-
is. Hvernig var að alast upp sem
vottur Jehóva?
„Ég átti enga vini í skóla, mér
var strítt og ég var lögð í einelti,
gróft einelti, alla skólagönguna,“
segir Malín. „Ég talaði aldrei um
vottana að fyrra bragði, en ef ég
var spurð þá sagði ég ekki ósatt.
Sumir héldu einfaldlega að ég
væri að fíflast.“
Vottarnir flúðu oft um jólin
í sumarbústaði og segir Malín
hennar fjölskyldu hafa gert það:
„Eitthvert vottaþorp í Ölfusborg-
um í Hveragerði, fyndið.
Ég hef talað um það áður, að
það að alast upp í vottunum sé
trúarofbeldi. Maður er svo áber-
andi í að skera sig út úr hópnum.
Þessar aðstæður kalla bara á að
börnum sé strítt. Ég var oft með
hnút í maganum við að fara í skól-
ann, hann var eitthvað ægilegt í
mínum augum.“
Malín segir umburðarlyndi
orðið meira í dag í fjölmenningar-
samfélagi og þrátt fyrir erfiða æsku
segist hún engu vilja breyta úr
uppeldinu. „Ég er hér út af þeirri
krókaleið sem ég hef farið. Eftir
sem áður finnst mér dapurlegt að
hugsa til þeirra barna sem eru út
undan, sem fá ekki jóla- og afmæl-
isgjafir, ekki páskaegg, þau mega
ekki mæta í afmæli til annarra
barna, það er bannað. Svo sitja
þau í tónmennt og mega ekki
syngja með jólalögunum. Þegar ég
var í kristinfræði, þá var ég tekin út
úr þeim.“
Eftir grunnskólann fór Malín í
Menntaskólann í Reykjavík og seg-
ir menntaskólaárin hafa verið góð
og enginn leiðinlegur við hana þar.
En hún skar sig þó enn úr fjöldan-
um. „Ég var gift kona, ég gifti mig
þegar ég var 18 ára, manni sem
var líka vottur,“ segir Malín. „Sam-
nemendum mínum fannst skrítið
þegar ég sagðist þurfa að fara heim
að elda fyrir fjölskylduna.“
Úr MR hélt Malín síðan í Há-
skóla Íslands, þar sem hún lærði
mannfræði og málvísindi. Þar
lærði hún meðal annars gagn-
rýna hugsun og á sama tíma losaði
hún sig undan hlekkjum vottanna
og hjónabandsins. „Við skildum
á sama tímabili. Það var auðvitað
illa séð að ég væri að mennta mig.
Ég sá að ég gat ekki gert sjálfri mér
þetta lengur,“ segir Malín, sem var
í Vottum Jehóva þar til hún var 23
ára.
Í kjölfarið skráði hún sig í Ása-
trúarfélagið. „Þetta var pínu yfir-
lýsing hjá mér, svona ég ræð mér
sjálf og ég má skipta um skoðun.
Mér finnst heiðin arfleifð okkar
mjög merkileg og Ásatrúarfélagið
er mjög flott félag. Ég er ekki rosa
virk, en ég fylgist samt með,“ seg-
ir Malín.
„Ég er ekki trúuð, ég segi stund-
um að ég sé guðleysingi, en ekki
trúleysingi, fólk heldur oft að það
sé eitt og hið sama. Það er svo
margt ótrúlegt búið að gerast að ég
get ekki neitað því að það fyllir mig
auðmýkt. Eins og allt þetta stór-
kostlega fólk sem ég hef kynnst, til
dæmis í gegnum ABC. Ég get ekki
neitað því að hugsa að það sé til
eitthvað æðra og það væri hroka-
fullt af mér að halda því fram að
svo sé ekki.“
Uppeldið mótaði
móðurhlutverkið
Í dag elskar Malín jólin, sem hún
fékk ekki að njóta sem barn. „Við
Óðinn erum mikið jólafólk og
mér sýnist bæði Doddi og Bragi
sáttir við það. Ég er ekki á síðustu
stundu með neitt, því ég vil njóta
þess í desember að japla á jólun-
um.“
Mótaði æskan hvernig þú ólst
eigið barn upp?
„Ég held ég sé pínu öfga jóla og
afmælis, af því ég vil ekki að eitt-
hvað úr minni æsku skyggi á. Mitt
uppeldi er víti til varnaðar og ég
leitast við að veita Óðni vitsmuna-
lega örvun,“ segir Malín, sem seg-
ist ekki hafa þolað þegar hún sem
barn, fékk sama svar við spurning-
um sínum: „Þú færð að vita það
seinna, þegar þú verður stór“.
„Ég svara honum alveg óhik-
að með að ég viti ekki eitthvað,
en þá förum við saman og leitum
upplýsinga. Óðinn er tíu ára og
við ræðum mikið málin; trúmál,
pólitík og margt fleira. Ég legg líka
ríka áherslu á að þó að ég trúi ekki
á guð, þá hefur hann frelsi til að
velja og frelsi til að hafna.
Sem barn mátti ég ekki lesa
allar bækur sem ég vildi, ég man
til dæmis að mamma fór með
Veröld Soffíu og skilaði henni á
bókasafnið, sagði bókina heim-
speki og ég mætti ekki lesa svo-
leiðis.“
„Þetta var mín versta martröð“
Það er ekki hægt annað en spyrja
Malín um atburðinn sem kollvarp-
aði lífi hennar árið 2015, þegar
hún og systir hennar voru hand-
teknar í júní fyrir að kúga fé af Sig-
mundi Davíð Gunnlaugssyni, þá-
verandi forsætisráðherra.
„Mig langar alls ekki að tala
um þetta mál, það snýst um
veika manneskju sem ég er í eng-
um samskiptum við í dag. Það
er agalegt að hafa blandast inn í
þetta,“ segir Malín, en dómur féll
í apríl 2017 og eins og áður segir
hefur Malín tekið út sína refsingu.
Verður þú fyrir aðkasti í dag
vegna málsins?
„Já, það gerist, fólk er stundum
að benda á mig og þekkir mig úti
á götu. Ég hefði viljað vera þekkt
fyrir eitthvað jákvætt, ekki þetta.
En svona er þetta, ég gerði mistök,
stór mistök og ég er búin að taka
út refsingu fyrir það,“ segir Malín,
sem var fyrir þetta atvik þekkt and-
lit, allavega hjá hluta þjóðarinnar.
„Það er afspyrnu neikvætt að
vera þekkt fyrir svona, ég verð ekki
fyrir skítkasti, en ég fer til dæmis í
afmæli og heyri svo eftir á að fólk
hafi verið að spyrja hvort ég væri
ekki konan sem var í málinu með
Sigmundi. Ég vil geta sagt við fólk:
„Ef þetta er að trufla þig, þá skul-
um við bara klára að ræða það og
höldum svo áfram,“ ef fólk vill það
ekki þá fer ég bara.
Það er stór og mikil spurning af
hverju við gerum það sem gerum
og af hverju við segjum það sem
við segjum. Og hvernig í ósköpun-
um gerðist þetta? ef ég ætti „kon-
kret“ svar við því þá væri ég búin
að svara. Þetta eru aðstæður sem
ég kom mér í og sem ég kom mér
ekki út úr. Þetta var mín versta
martröð.“
Í kjölfar málsins missti Malín
vinnuna í maí 2015 og einangraði
sig mikið. „Það var allt gjörsam-
lega sturlað í samfélaginu, þetta
var bara hamagangur eins og með
Klaustursmálið núna. Það var
stöðugt hringt í mig og ég var bara
hrædd. Mér leið svo illa með þetta
allt saman, en sem betur fer er ég
komin í gegnum það.“
Langar þig ekki að fara aftur í
vinnu í blaðamennskunni?
„Mér finnst það ekki við hæfi,
þetta var dásamlegur vinnustaður
og frábært fólk. En trúverðugleik-
inn og traustið fór og ég held að
það verði að líða lengri tími. Ég
gæti ekki bara gengið þar aftur inn
eins og ekkert hefði gerst. Líka út
af virðingu við lesendur, en svo
sannarlega væri ég til í að vinna
þar aftur einhvern tímann.“
Aðspurð hvort að hún sé í ein-
hverju sambandi við systur sína
í dag, sem hlaut einnig dóm fyrir
málið, svarar Malín að svo sé ekki.
„Ég hef ekki talað við hana síðan
29. maí 2015, en ég vona heitt
og innilega að það gangi vel hjá
henni. Auðvitað ber ég alltaf kær-
leika til hennar, en ég held að það
sé ekki góð hugmynd að við séum
í samskiptum og hún hefur ekki
teygt út sáttarhönd til mín. Ég er
þó löngu búin að fyrirgefa systur
minni, þó að hún hafi ekki beðið
mig afsökunar. Ég gæti líklega
sagt eitthvað ljótt um hana, en ég
sé engan tilgang í slíku, það væri
bara að lýsa mínu innra rusli. Ég
el ekki á reiði og gremju, og ef slík-
ar hugsanir eða tilfinningar koma
upp, þá klára ég þær strax. Slæm-
ar hugsanir og neikvæðni kemur
manni fyrr í gröfina og ég er ekkert
að flýta mér þangað.“
Finnst þér fólk eiga rétt á öðru
tækifæri eftir að hafa tekið út sína
refsingu?
„Ég tel að þegar einstaklingur
er búinn að taka út sína refsingu,
þá sé ekki fallegt að rifja mál hans
endalaust upp, en málið mun
alltaf loða við viðkomandi. Ég þarf
ekki að skammast mín fyrir að
vera sú sem ég er, mín gildi eru á
hreinu, ég er að sýna með verkum
mínum í dag hver þau eru.
Fólk á skilið annað tækifæri í líf-
inu, ég fæ sting í hjartað þegar mál
er tekið upp í fjölmiðlun og fólk
drullar yfir viðkomandi einstak-
ling. Mér líður illa fyrir hönd við-
komandi af því að ég hef verið
sjálf í þessum sporum og þetta á
enginn að þurfa að ganga í gegn-
um. Við eigum ekki að gera svona,
þannig byggjum við ekki hvert
annað upp. Með mannkærleika að
leiðarljósi þá getum við ekki gert
svona.
Hver sá sem ætlar að dæma
mig fyrir mistök sem ég gerði í for-
tíðinni verður bara að eiga það við
sig,“ segir Malín og bætir við að
hvað varðar þetta mál, líkt og upp-
eldið, vildi hún þrátt fyrir allt engu
breyta.
„Ég myndi engu vilja breyta
þótt þetta hafi verið erfitt tímabil,
vegna þess að ég er rosalega ham-
ingjusöm þar sem ég er núna og
mér hefur aldrei liðið betur. Þrátt
fyrir öll áföllin; andlát mömmu
og pabba, þetta hryllilega mál,
Parkinson, ég er á svo góðum
stað. Við,“ bætir hún við og lítur á
Óðinn, sem kom með móður sinni
í viðtalið og hefur lesið í bók, með-
an það fer fram.
„Þetta er bara stormandi lukka,
Doddi, þetta er bara yndislegt.
Stundum finnst mér þetta vera
of gott til að vera satt, ef þetta er
draumur þá vil ég ekki vakna, alla-
vega ekki strax,“ segir Malín ein-
læglega.
Hvað ber framtíðin í skauti sér,
hvað langar þig að gera?
„Mig langar að þýða fleiri bækur,
en ég hef áður þýtt bók, bæklinga
og greinar. Ég er að læra þýðinga-
fræði núna í Háskóla Íslands til að
vera með tæknina og verkfærin
rétt. Námið er svo skemmtilegt, en
ég tek bara eitt fag í einu til að of-
gera mér ekki. Ég var hálfnuð með
lögfræði í Háskólanum í Reykja-
vík, en ég held ég klári hana ekki.
Stundum er ég líka beðin um að
taka myndir fyrir aðra, ég tek líka
myndir fyrir vefinn okkar.
Mig langar að breyta heimin-
um og bæta hann, til dæmis með
umhverfisvakningunni og bíla-
endurvinnslunni. Þetta er svo já-
kvætt, þú ert að hugsa um jörðina
og að gera heiminn að betri stað
fyrir næstu kynslóð. Það er fram-
tíðin, að halda áfram að gera
gott,“ segir Malín, sem hefur háð
marga hildina í lífsins ólgusjó,
unnið sumar og tapað öðrum, rétt
eins og við flest, en horfir nú sátt
til framtíðar, nýtrúlofuð og í starfi
sem gefur af sér kærleik til kom-
andi kynslóða. n