Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Síða 14
14 4. janúar 2019FRÉTTIR
Á
laugardag er efnt til
fundar með fólki sem
þekkir mannréttindabrot
af eigin raun. Þetta eru
tyrkneskir Kúrdar, Leyla Imret,
sem hrakin var úr embætti bæjar-
stjóra í borginni Cizre í Suðaust-
ur-Tyrklandi vegna andófs gegn
ríkisstjórn Erdogans og flúði síð-
an land í kjölfar ofbeldis og fang-
elsana, og Faysal Sariyildiz, blaða-
maður og þingmaður, sem sat
árum saman í fangelsi og hefur
kynnst mannréttindabrotum af
eigin raun. Þriðji maðurinn er
Fayik Yagizay, einn helsti talsmað-
ur Kúrda í Evrópu. Sjálfur þekkir
hann vel til tyrkneskra fangelsa –
að innanverðu!
Parísardómstóllinn ekki í vafa
um sekt!
Á síðasta ári fylgdist ég með
Parísar dómstólnum, sem starfað
hefur allar götur frá sjöunda ára-
tug síðustu aldar að frumkvæði
heimspekinganna og mann-
réttindafrömuðanna Bertrands
Russels og Jean-Paul Sartre, rann-
saka hvort rétt væri að tyrknesk
stjórnvöld hefðu framið stríðs-
glæpi og stórfelld mannréttinda-
brot í Kúrdahéruðum Tyrklands,
eins og haldið hefði verið fram.
Niðurstaðan var sú að svo hefði
verið og léki þar enginn vafi á.
Ég ákvað þegar ég hlýddi á
vitnaleiðslurnar að bjóða ein-
hverjum vitnanna til Íslands að
segja sína sögu og gera þau Leyla
Imret og Faysal Sariyildiz það á
umræddum fundi í Safnahús-
inu við Hverfisgötu klukkan 12 á
laugardag.
Vildi opinbera rannsókn og var
þá fangelsaður
Til hafði staðið af minni hálfu að
bjóða hingað einnig Fehrat Encu,
þingmanni Lýðræðisfylkingar-
innar, HDP, sem er flokkur Kúrda
í Tyrklandi. Hann var fangelsaður
í byrjun nóvember árið 2016. Ég
hafði áður valið Fehrat Encu, nán-
ast af handahófi, sem fanga er ég
vildi fylgjast með. Hann sogaðist
inn í stjórnmálin eftir að hann hóf
baráttu fyrir opinberri rannsókn á
fjöldamorðum sem framin voru í
desember árið 2011 í fjallahéruð-
um sem liggja að Írak, en þau sem
þá féllu fyrir sprengjuregni tyrk-
neska lofthersins voru á unglings-
aldri og flest í fjölskyldu Ferhats,
þar á meðal ung systkini hans. Í
kjölfar þessara atburða bauð Fer-
hat sig fram til þings og var kjör-
inn í júníkosningunum 2015, en
þá vann HDP-flokkurinn stórsigur.
Gladdist yfir umfjöllun í
íslenskum fjölmiðlum
Þegar ég síðan fór til Tyrklands
í febrúar árið 2017 í svokallaðri
Imrali-sendinefnd sem hafði val-
ið sér það verkefni að vekja athygli
á mannréttindabrotum í Tyrk-
landi, þar á meðal ómannúðlegri
einangrunarvist Öcalans, leið-
toga Kúrda á Imrali-eyju í Marm-
arahafinu, reyndi ég að grennslast
fyrir um hagi Fehrats Encu. Og
viti menn, daginn sem við kom-
um til Istanbúl eftir för okkar
austur á bóginn var hann látinn
laus úr fangelsi. Tókst að koma á
fundi okkar í millum og gladdist
hann mjög þegar ég sýndi honum
skrif í íslenskum blöðum, meðal
annars í DV, um hlutskipti hans.
En gleðin var skammvinn því fá-
einum klukkustundum eftir fund
okkar var hann aftur kominn á bak
við lás og slá og er þar enn.
Allir velkomnir
Þess vegna verðum við að láta
okkur nægja að minnast á Fehrat
Encu í Safnahúsinu klukkan 12 á
laugardag að honum fjarstöddum.
Á fundinn eru allir velkomnir. n
Höfundur er Ögmundur Jón-
asson, fyrrverandi ráðherra og
þingmaður.Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
Fehrat Encu kemst
ekki á fundinn
Vakti athygli á mannréttindabrotum í Tyrklandi
„Þau sem þá féllu
fyrir sprengjuregni
tyrkneska lofthersins voru
á unglingsaldri og flest í
fjölskyldu Ferhats, þar á
meðal ung systkini hans.
Ferhat Encu
Gladdist vegna
umfjöllunar
í íslenskum
fjölmiðlum.