Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Page 20
20 FÓLK - VIÐTAL 4. janúar 2019
Þ
etta er það sem ég kalla
stórkostleg og dásamleg
refsing,“ segir Malín um
nýja starfið sitt, ritstjórn
blaðs ABC barnahjálpar, sem hún
hefur sinnt frá því í ágúst. „Ég er
búin að taka út minn dóm, mína
refsingu, sem fólst í samfélags-
þjónustu hjá ABC barnahjálp.“
Eftir að hafa hlotið dóm árið
2017 vegna fjárkúgunarmálsins
sem skók þjóðina árið 2015, sótti
Malín um samfélagsþjónustu og
var boðið að starfa hjá ABC, en
fyrst hélt hún að hún ætti að starfa
á nytjamarkaðinum. „Sem hefði
verið dásamlegt líka, en út af Park-
inson-sjúkdómnum þá hefði ég
ekki verið góð í afgreiðslu.“ Í stað-
inn fór hún á skrifstofuna í að
skrifa og þýða greinar og þegar
samfélagsþjónustunni lauk var
henni boðið hlutastarf sem rit-
stjóri blaðsins. Blaðið kemur út
tvisvar sinnum á ári, er sent til
styrktaraðila auk þess að vera að-
gengilegt á netinu og sér Malín
um að taka viðtöl, þýða greinar úr
sænsku og skrifa greinar.
„Það er svo mikil snilld að hafa
fengið að vera hjá þeim, ég er búin
að læra svo margt, ég vissi ekkert
um ABC áður, vissi ekki hvernig
það virkaði,“ segir Malín sem segir
starfsfólkið frábært og ekki dæma
neinn. „Tíminn hjá þeim leið svo
hratt af því að ég var alltaf að fást
við eitthvað sem var svo gefandi.
Eins og kemur fram í ritstjórapistl-
inum mínum byggist starfið á kær-
leika og það er svo fallegt.“
Aðspurð hvort hún telji eitt-
hvað annað en tilviljun hafa stýrt
henni í starfið brosir hún og segir
marga hafa haft orð á því. „Þetta
var stórkostleg blessun og hver
veit nema eitthvað æðra hafi stýrt
mér í starfið.“
Malín er ekki lærð í blaða-
mennskunni, en titlar sig sem
blaðamann og hefur gert síðan
árið 2011, þegar Björn Ingi Hrafns-
son bauð henni vinnu á Pressunni.
„Þar var ég til ársins 2012, síðan fór
ég á RÚV í eitt og hálft ár og síðan á
Morgunblaðið.“
En af hverju ákvaðst þú að
byrja í blaðamennskunni?
„Af því að ég hef svo mikinn
áhuga á fólki. Ég er forvitin, en
ekki hnýsin. Það hafa allir sögu
að segja og það eru allir merki-
legir. Sumir eru skúrkar og allt
það, en það eiga allir sögu og það
er hægt að finna góðu söguna hjá
öllum. Þetta er það sem mig hef-
ur alltaf langað að gera. Í dag, hjá
ABC, þá er ég bara að skrifa um já-
kvæða hluti, vissulega er örbirgð
hjá mörgum, en starfið snýst um
menntun barnanna og þegar þau
eru búin með sitt nám, jafnvel há-
skólanám, þá eru þau svo þakklát
og mörg þeirra gefa af sér áfram,“
segir Malín og nefnir sem dæmi
mann sem útskrifaðist sem barna-
læknir og ferðast í dag í fátækustu
þorpin þar sem hann sinnir fólki
endurgjaldslaust.
Heilluð af endurvinnslu og
rekur bílapartasölu með
unnustanum
Starfið hjá ABC er þó ekki það
eina sem Malín sinnir, því í ágúst
opnuðu hún og unnusti hennar,
Þórður Bragason, bílapartasöluna
Bílabúið. Auk þess eru þau með
vefsíðuna motorsport.is. Líkt og
margir muna þá áttu bílar hug
Malínar allan þegar hún starfaði
á Morgunblaðinu, en af hverju er
Malín með þessa svakalegu dellu
fyrir bílum?
„Ég kalla þetta ekki dellu af því
að della kemur og fer,“ segir Malín
og brosir. „Ég er með meðfæddan
bílaáhuga og man eftir mér pinku-
ponsulítilli að leika mér með bíla.“
Hún hefur átt marga bíla í gegn-
um tíðina, „frekar marga,“ eins og
hún segir, en man hún eftir þeim
fyrsta? „Fyrsti bíllinn var ótrú-
lega hræðilegur, Fiat Uno 1987, 61
hestafl og á honum brunaði ég út
um allt.“
Unnusti Malínar er líka mikill
bílakarl. Þau kynntumst í gegn-
um sportið, keppa saman í rallí
og núna vinna þau líka saman alla
daga, í bílapartasölunni.
„Fyrst hugsuðum við hvort það
væri góð hugmynd, en það gengur
rosa vel,“ segir Malín.
„Fólk hugsar um bílapartasölu
sem eitthvert ógeð, eitthvað
skítugt, en þetta er ekki þannig því
þetta er endurvinnsla í sinni björt-
ustu mynd, því við erum alltaf að
nota aftur hlutina í stað þess að
kaupa nýtt.
Þetta er umhverfisvænt, ef
maður fjarlægir spilliefni þá er
hægt að endurnýta og endurvinna
heilan helling.“
Þórður er tölvunarfræðingur
og hefur hannað kerfi til að halda
Malín Brand er 37 ára og hefur þrátt fyrir ungan
aldur upplifað meira á ævinni en margur annar.
Hún var alin upp við stranga trú Votta Jehóva og
þekkti ekki jól, afmæli eða annað slíkt í æsku og á
unglingsárum og giftist ung manni sömu trúar. Í dag
er hún nýlega trúlofuð ástinni í lífi sínu og komin í
draumastörfin með kærleika og endurvinnslu að
vopni.
Í viðtali við blaðamann DV ræðir Malín uppeldið og
trúna, atvikið sem umturnaði lífi hennar, bíladelluna,
Parkinson-sjúkdóminn, sem hún greindist með í fyrra
og ástríðuna fyrir nýjum verkefnum og áskorunum.
Malín Brand
horfir sátt fram á veg –
„Samfélagsþjónustan var stórkostleg blessun“
MYNDIR: HANNA/DV
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is