Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Síða 29
Nýtt ár – nýr lífsstíll 4. janúar 2019 KYNNINGARBLAÐ
ÍSEY SKYRBAR:
Gera góða vöru enn betri
Booztbarinn, sem í langan tíma hefur verið leiðandi í sölu á hollusturéttum, skipti um nafn
fyrir skömmu og ber nú heitið Ísey
skyrbar. Þetta eru mikil tímamót í
sögu fyrirtækisins og með þessari
breytingu er skerpt enn frekar á holl-
ustugildi réttanna sem í boði eru.
„Þessi breyting tengist meðal
annars áhuga okkar á því að fylgja
eftir þeirri velgengni sem hefur verið
í útflutningi og framleiðslu á íslensku
skyri í útlöndum. Það hefur orðið
mikil söluaukning á skyri á erlendum
markaði og Ísey skyrið er núna selt
í 17 löndum,“ segir Kristinn Ingi Sig-
urjónsson, framkvæmdastjóri Skyr-
boozt ehf. sem rekur útsölustaði Ísey
skyrbar.
Enn meiri hollusta
„Matseðillinn er svipaður og var á
Booztbarnum en það hefur orðið
ákveðin uppfærsla,“ segir Kristinn.
Hollusta réttanna á Ísey skyrbar er
enn meiri en verið hefur þar sem
innihald grænmetis hefur verið aukið
og mun meira er notað af hreinu skyri
í réttina en áður var.
„Við kynnum til sögunnar nýtt
hreint skyr sem er sérstaklega fram-
leitt fyrir Ísey skyrbar. Það inniheld-
ur dálítið minni súr en hefðbundna
skyrið en heldur að öðru leyti öllum
einkennum vörunnar skyrs. Þetta
skyr hentar einstaklega vel í vörurnar
okkar.
Við nafnabreytinguna og með
nýjum matseðli hefur salan hjá Ísey
skyrbar aukist um 12–15% .
Við erum með á matseðlinum fimm
tegundir af Orkuskálum sem njóta
stöðugt meiri vinsælda.
Ísey skyrbar staðirnir eru á sömu
stöðum og Booztbarinn var áður
áður, það er á N1 á Hringbraut,
Borgartúni 39 og Ártúnshöfða.
Kristinn segir að stefnt sé að fjölgun
útsölustaða í náinni framtíð á Íslandi
og að Ísey skybar stefni jafnframt á
að opna útibú erlendis. Ísey skyrbar
er opinn á öllum stöðunum frá 7.30
til 20 virka daga og frá 10 til 18 um
helgar.
Auk fjölbreyttra skyrdrykkja býð-
ur Ísey skyrbar líka upp Orkuskálar,
vegan hollustudrykki og ávaxta- og
grænmetissafa.
„Minnum jafnframt á Áramóta-
bombu Ísey skyrbar sem og frábæru
tilboði á öllum vörunum okkar hjá
aha.is.“
Sjá nánar á vefsíðunni iseyskyrbar.
is, Facebook-síðunni Booztbar og
aha.is n