Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Page 31
Nýtt ár – nýr lífsstíll 4. janúar 2019 KYNNINGARBLAÐ
LEANBODY:
Hágæða fæðubótarefni
sem gera gott betra
Leanbody ehf. er fæðubótar-efnaverslun sem hóf göngu sína í byrjun desember 2015,“ segir
Agnes Kr. Gestsdóttir, sem á og rekur
Leanbody ásamt kærastanum sínum,
Alfreð Pálssyni. „Við byrjuðum smátt í
Bæjarhrauninu í Hafnarfirði, en síðan
hefur verslunin vaxið jafnt og þétt og
gengið vonum framar. Í október opn-
uðum við síðan aðra Leanbody-verslun
sem staðsett er í Síðumúla 11 í Reykja-
vík. Það gerðum við til að auka enn
fremur þjónustuna við okkar viðskipta-
vini. Fagleg og góð þjónusta er það
sem við leggjum hvað mesta áherslu á.
Labrada er okkar aðal vörumerki og er
það eitt af elstu fæðubótarmerkjum í
heiminum. Það merki kemur frá Banda-
ríkjunum og er þekkt fyrir mikil gæði en
miðast ekki eingöngu við keppnisfólk,
heldur er fyrir alla sem vilja ástunda
hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl.“
Hjá Leanbody er boðið upp á
heildarlausnir. „Við höfum boðið fólki
upp á ráðleggingar um hvað eina sem
varðar heilbrigðan lífsstíl,“ segir Alfreð,
sem hefur æft og keppt í vaxtarrækt og
kraftlyftingum, en Agnes keppti mikið í
sundi á árum áður. Þau vísa viðskipta-
vinum meðal annars á þjálfara af báð-
um kynjum. „Þetta eru þjálfarar sem við
þekkjum til og berum traust til.“
Á þessum þremur árum hefur
Leanbody hjálpað mörgum í átt að
sínum markmiðum, bæði keppnisfólki
og einstaklingum sem náð hafa góðum
árangri í sinni grein eða náð að breyta
lífsstíl sínum í átt að betri heilsu. Fólk
sem hefur breytt um lífsstíl, hefur hvatt
aðra og eru góðar fyrirmyndir, hvort
sem það er með því að grenna sig eða
ná góðum árangri, heillumst við af.
Okkur finnst mikilvægt að hafa mikla
jákvæðni í kringum okkur því það skilar
sér best til viðskiptavina okkar, það er
mikilvægt að gefa gott frá sér,“ segir
Agnes.
Eva Dögg var 139 kíló
Eva Dögg er starfsmaður Leanbody
í Síðumúla 11. „Hún Eva Dögg byrj-
aði sem viðskiptavinur hjá okkur. Við
kynntumst henni alltaf betur með
hverri heimsókninni og það endaði
á því að ég bauð henni vinnu. Eva er
engin venjuleg kona, hún er gull og við
gætum ekki verið heppnari með starf-
mann. Sagan hennar Evu er mögnuð
og fengum við hana til að deila henni,“
segir Agnes:
Eva skrifar:
„Ég var á tímabili þyngst 139 kíló
eftir ótal misheppnaðar tilraunir til að
missa aukakílóin, allskonar megrunar-
kúra sem virkuðu í smá tíma eða bara
alls ekki. Ég missti kílóin hratt en var
alltaf jafn fljót, ef ekki fljótari að fá þau
öll til baka og nokkur í plús stundum.
Ég var búin að reyna allt og komin í
þrot bæði líkamlega og andlega.
En ég ákvað að gera eina tilraun í
viðbót til að koma sjálfri mér í betra
líkamlegt og andlegt form, bæði fyrir
mig og dóttur mína. Því ég vil geta
verið til staðar fyrir hana. En í þetta
sinn fór ég af stað með það hugarfar
að þetta væri ekki kapphlaup um að
missa kílóin heldur lífsstílsbreyting.
Ég var búin að vera dugleg í ræktinni
og í mataræðinu og kílóin byrjuðu að
fjúka. En samt vantaði mér eitthvað,
fannst ég standa svolítið í stað. Þegar
ég labbaði inn í Leanbody-búðina í
Bæjarhrauninu tók Agnes vel á móti
mér. Það var eitthvað við það hvernig
hún aðstoðaði mig, ég var tilbúin að
koma inn og kaupa alla búðina með
fína nýja VISA-kortinu mínu.
Hún stoppaði mig af og benti mér
á að raunhæf markmið væru best,
en hún mælti með að ég byrjaði á að
prófa eina vöru (sem er Fatburner),
koma svo aftur ef mér fyndist varan
virka, sem ég gerði. Því varan svo
sannarlega virkaði. Fatburner hjálpaði
mér gríðarlega mikið, síðan smátt og
smátt bætti ég inn vörum í samráði
við Agnesi. Þetta hjálpaði mér gríðar-
lega í átt að mínum markmiðum.
Aldrei hefði mig grunað að „feita
stelpan“ ég myndi einhvern tíma
starfa í fæðubótarefnabúð. En í dag
vinn ég í nýju Leanbody-búðinni í
Síðumúla 11, er búin að mennta mig
sem heilsumarkþjálfi og er um um 60
kílóum léttari. Líður betur en nokkru
sinni fyrr og nýt þess að lifa lífinu með
dóttur minni. Hlutir sem ég gat ekki
gert áður með henni eru leikur einn í
dag.
Fæðubótarefni eru fyrir alla sem
kjósa heilbrigðan lífsstíl
„Viðskiptavinahópurinn hefur breyst
frá því að fæðubótarefni komu fyrst á
markað, áður var þetta aðallega fyrir
vaxtarræktar- og kraftlyftingafólk, í
dag eru viðskiptavinir fólk sem leggur
stund á allar íþróttagreinar, hvort sem
er til keppni eða sem hluti af heilbrigð-
um lífsstíll, auk fólks sem fer eingöngu
út að ganga. Það má þó ekki gleyma
að um er að ræða fæðubótarefni,
þau gera gott betra, en koma aldrei
í stað matar, heilbrigðs lífsstíl, hreyf-
ingar og svefns,“ segir Agnes.
Leanbody er að Bæjarhrauni 2,
Hafnarfirði og í Síðumúla 11 í Reykja-
vík. Opið er alla virka daga kl. 11–18
og laugardaga kl. 12–15. Sími er
533-2616 í Hafnarfirði en 419-2616
í Síðumúla og netfang leanbody@
leanbody.is. n
NÝ VERSLUN Í SÍÐUMÚLA 11