Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Qupperneq 42
42 4. janúar 2019
Þ
ann 9. apríl 1940 réðst
þýski herinn inn í Dan-
mörku og var landið hern-
umið á skömmum tíma. En
ólíkt því sem gerðist í Þýskalandi
og öðrum herteknum löndum þá
fengu danskir gyðingar lengi vel að
vera í friði fyrir nasistum. Það var
ekki fyrr en þann 1. október 1943
sem Þjóðverjar byrjuðu að leita
þá uppi. Þeim tókst að hafa hend-
ur í hári um 500 danskra gyðinga
en 95 prósent allra gyðinga í Dan-
mörku náðu að komast í öruggt
skjól og snúa heilir heim að stríð-
inu loknum. Þessi saga um björg-
un danskra gyðinga er einstök en
hvernig stóð á því að gyðingarn-
ir fengu viðvörun tímanlega um
hvað væri í bígerð? Hvað var öðru-
vísi í Danmörku en öðrum her-
teknum ríkjum?
Í lok september 1943 fór á kreik
orðrómur um yfirvofandi fjölda-
handtökur á gyðingum. Þessi
orðrómur fór einna hæst í samfé-
lagi gyðinga. G.F. Duckwitz, full-
trúi hjá þýsku hernámsyfirvöldun-
um og sérlegur ráðgjafi Werners
Best, sem var valdamikill Þjóð-
verji, hafði ásamt fleiri Þjóðverjum
komið þeim boðum til danskra
tengiliða sinna að skammt væri í
að farið yrði að handtaka gyðinga.
Stærsti hluti danskra gyðinga
ákvað sem betur fer að taka mark
á þessum orðrómi en það gerði
hann mjög marktækan að upphaf
hans mátti rekja til áreiðanlegra
aðila. Upphaf hans mátti rekja til
æðstu manna hernámsstjórnar-
innar sem höfðu komið henni til
danskra stjórnmálamanna sem
komu henni áfram til gyðinga.
Þá skipti ekki minna máli að hún
barst tímanlega. Annars staðar
í Evrópu höfðu nasistar blekkt
gyðinga áður en að fjöldahand-
tökum kom enda skipti það miklu
máli að koma þeim að óvörum.
Fram í lok ágúst 1943 hafði
danska ríkisstjórnin starfað með
hernámsyfirvöldum en þann 29.
ágúst sagði ríkisstjórnin af sér
og samstarfinu lauk. Þetta sam-
starf hafði meðal annars haft í för
með sér að engin lög höfðu verið
sett sem mismunuðu og aðskildu
gyðinga frá öðrum. En þegar sam-
starfinu lauk féll þessi vernd niður.
Flóttinn
Flestar gyðingafjölskyldur flúðu
frá heimilum sínum um leið og
þær höfðu fengið aðvörunina.
Þær gistu hjá vinum, nágrönnum
og ókunnugum. Á næstu dögum
fóru sjónir fólks að beinast að
hvernig ætti að komast úr landi
og horfðu flestir til Svíþjóðar. Í
skýrslum sænska sjóhersins kem-
ur skýrt fram hversu mikil umferð
danskra gyðinga var yfir Eyrar-
sund til nágrannanna í hinni hlut-
lausu Svíþjóð. Frá 28. september
til 3. október komst að minnsta
kosti 871 gyðingur yfir sundið
og í öryggið í Svíþjóð samkvæmt
skýrsl um sjóhersins.
Annars staðar í Evrópu höfðu
ekki margir gyðingar þennan
möguleika. Þeir bjuggu oft langt
frá landamærum og ekki síst langt
frá landamærum að hlutlausu ríki.
Norskir gyðingar urðu að fara yfir
erfið landamærin við Svíþjóð til að
komast í öryggi en mikil gæsla var
á þeim.
7.056 danskir gyðingar flúðu
til Svíþjóðar í október 1943, þar
af 1.301 hálf-gyðingur, en þá var
annað foreldrið gyðingur. 1.236
börn voru í þessum hópi. Auk þess
flúðu 686 makar, sem ekki voru
gyðingar, með mökum sínum sem
voru gyðingatrúar.
Fólk stóð frammi fyrir tveimur
valkostum. Annar var að flýja
land en hinn að láta sig hverfa og
fara huldu höfði sem hefði þýtt líf
í stanslausum ótta og algjörlega
upp á aðra kominn um mat og
aðrar nauðsynjar. Talið er að 100
danskir gyðingar hafi lifað í felum í
landinu fram til stríðsloka auk 150
gyðingabarna sem var komið fyrir
hjá fósturfjölskyldum.
En það var ekki ókeypis að flýja
land. Í október 1943 var meðal-
verðið fyrir hvern og einn sem flúði
yfir til Svíþjóðar 1.000 danskar
krónur en það svarar til um 20.000
danskra króna í dag. Verðið réðst
af framboði og eftirspurn. Það
voru sjómenn, oft trillukarlar, sem
fluttu fólkið yfir sundið. Eins og
oft vill verða varð græðgin allsráð-
andi hjá sumum og dæmi eru um
gyðingafjölskyldur sem greiddu
50.000 danskar krónur fyrir sigl-
inguna. Aðrir sigldu fyrir mun
lægra verð en danska andspyrnu-
hreyfingin reyndi að halda verðinu
niðri. Sumir tóku síðan ekkert fyrir
greiðann.
Góðar móttökur
Í september 1943 gat enginn
ímyndað sér að svo margir myndu
bjarga lífi sínu með því að flýja
til Svíþjóðar. Þá höfðu margir
ungir menn, hermenn og félagar
í andspyrnuhreyfingunni, flúið
þangað. En hvernig átti að koma
heilu fjölskyldunum yfir sundið
og hvernig myndu Svíar taka á
móti fólki? Þessu veltu margir fyrir
sér. Það barst dönskum gyðingum
til eyrna að sænsk stjórnvöld
hefðu mótmælt gyðingaofsókn-
um Þjóðverja og boðið dönskum
gyðingum hæli. Sænski sendi-
herrann flutti trúfélagi gyðinga
boð sænskra stjórnvalda um hæli
í lok september 1943 og þessu til-
boði var útvarpað í sænsku útvarpi
þann 2. október.
Það var því ekki eftir neinu
að bíða fyrir dönsku gyðingana
og flóttinn yfir sundið hófst með
góðri aðstoð dönsku andspyrnu-
hreyfingarinnar, sjómanna og
góðum móttöku Svía sem töldu
ekki eftir sér að aðstoða frændfólk
sitt á ögurstundu. n
TÍMAVÉLIN - ERLENT
Afgreiðum HÁDEGISMAT Í BÖKKUM
alla daga ársins til fyrirtækja og stofnana
GÆÐA BAKKAMATUR
Mismunandi réttir
ALLA DAGA VIKUNNAR
Hólshraun 3, 220 Hafnarfjörður / S 555 18 10 og 565 1810 / veislulist@veislulist.is / veislulist.is
HRINGDU OG PANTAÐU Í SÍMA 555 1810
FLÓTTINN TIL SVÍÞJÓÐAR
Hetjudáðir á örlagatímum
„Í september 1943
gat enginn ímyndað
sér að svo margir myndu
bjarga lífi sínu með því að
flýja til Svíþjóðar
Danskir gyðingar
Flótti til Svíþjóðar.
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is