Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Side 48
48 4. janúar 2019
E
inu sinni fyrir langa, langa
löngu, 3. apríl 1822, nán-
ar tiltekið, fóru Sam
Whitehouse og mágur hans,
Joe Downing á veiðar í Halesowen
í West Midlands á Englandi. Þeir
höfðu mælt sér mót hjá járnsmið,
Thomas Fox, klukkan átta um
morguninn því Fox þurfti að fá
gert við hlaup af haglabyssu. Fox
tók við hlaupinu og Whitehouse
og Fox fóru til skógar og sáust ekki
aftur fyrr en að fimm klukkustund-
um liðnum.
Klukkan sex um kvöldið settu-
st þremenningarnir að drykkju á
Beech Tree-kránni.
Drykkja, grobb og veðmál
Félagarnir tóku duglega á við
drykkjuna og svolgruðu í sig 24
pintum öls. Einnig gerðust þeir
grobbnir og fyrr en varði upp-
hófust veðmál um hitt og þetta.
Whitehouse dró upp seðlavöndul,
10 sterlingspund, og lagði undir í
einu veðmálinu, en slíka upphæð
gátu Downing og Fox ekki jafnað.
Þeir drukku til klukkan níu um
kvöldið, er þeir ákváðu að halda
heim á leið.
Downing bjó í Rowley og
Whitehouse í West Bromwich og
eftir að Fox hafði hjálpað þeim á
bak klárum sínum lögðu þeir af
stað saman.
Meðvitundarlaus í
vegkantinum
Downing sneri síðan við því hann
þurfti að sækja haglabyssuhlaupið
til Fox. Whitehouse hinkraði ekki
við eftir mági sínum.
Um klukkustund síðar rakst
Richard Aston, sem bjó á kránni,
á hross sem ráfaði stefnulaust
um. Aston skellti sér á bak og reið
sem leið lá heim til Fox. Á leið
sinni þangað reið hann fram á
Whitehouse þar sem hann lá með-
vitundarlaus í vegkantinum.
Downing talinn sekur
Aston hraðaði sér heim til Fox, en
ekki tókst að vekja hann sökum
ölvunar. Því varð úr að eiginkona
Fox fór með Aston og saman komu
þau Whitehouse á krána og þar
kom í ljós að hann hafði svöðusár
á höfði og allt hans fé var horfið.
Hann dó tveimur dögum síðar.
Daginn eftir fór fram réttar-
rannsókn og niðurstaðan varð
sú að Downing hlyti að vera sek-
ur um morð. Hann hefði myrt
Whitehouse með því að berja
hann í höfuðið með haglabyssu-
hlaupinu fyrr nefnda.
Áverkar af völdum þessa eða
hins
Downing var handtekinn og réttað
yfir honum en hann lýsti yfir sak-
leysi sínu. Tvö fyrstu vitnin sem
leidd voru fram fullyrtu að höfuð-
áverkar Whitehouse gætu aðeins
verið eftir haglabyssuhlaup. Þriðja
vitnið var sannfært um að áverk-
arnir hlytu að vera eftir hófa
klársins og enn eitt vitnið sagði að
áverkarnir væru tilkomnir vegna
falls af hestbaki.
Síðan steig fram vitni sem
upplýsti viðstadda um að klár
Whitehouse væri mislyndur
og duttlungafullur og bætti við
að hann hefði séð tvo menn
ganga í átt að þeim stað þar sem
Whitehouse fannst.
Joe Downing var sýknaður og
morðinginn eða morðingjarnir
fundust aldrei – nema það hafi
verið klárinn eftir allt. n
54 ára Kanadamaður, Shawn Cameron Lamb, var árið 2013 dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir að myrða tvær konur í Manitoba í Kanada. Lamb glímdi við eiturlyfjafíkn á
háu stigi og var, að sögn þeirra sem til þekktu, glæpamaður fram í
fingurgóma.
Fjölskyldur beggja kvennanna höfðu lýst eftir þeim um það leyti
sem þær voru myrtar, en Lamb hafði verið í neyslumóðu í marga
mánuði þegar hann myrti þær.
Grunur beindist að Lamb vegna orða sem hann lét falla þegar hann
var í varðhaldi vegna allt annarra atvika, 22. júní 2012. Konurnar
tvær, Lorna Blacksmith og Carolyn Sinclair, myrti Lamb á fimm
mánaða tíma bili, september 2011 til janúar 2012. Morðin framdi
hann á heimili sínu og sagði ástæðuna hafa verið deilur vegna
fíkniefna.
SAKAMÁL
• Bókhald
• Afstemmingar
• Ársreikningar
BÓKHALD
• Launavinnsla
• Árshlutauppgjör
• Virðisaukaskattsskil
3 SKREF
BÓKHALDSÞJÓNUSTA
LÖGFRÆÐIRÁÐGJÖF
EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR
ÞARABAKKA 3
S. 578 6800
HESTURINN GERÐI ÞAÐ
– EÐA HVAÐ?
n Höfuðáverkar Sams Whitehouse ollu heilabrotum
„Einnig gerðust
þeir grobbnir
og fyrr en varði upp-
hófust veðmál um
hitt og þetta
Beech Tree-kráin í dag Hér sátu
félagarnir að sumbli fram á rauðanótt.