Morgunblaðið - 04.09.2018, Síða 8

Morgunblaðið - 04.09.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2018 Loftpressur - stórar sem smáar Páll Vilhjálmsson er undrandieins og fleiri:    RÚV gæti verið bandarískurfjölmiðill sé tekið mið af hvernig fjallað er um Trump. Bandarískum fjöl- miðlum til afsök- unar má segja að opinbert stríð sé á milli þeirra og forsetans. Trump tístir og fjöl- miðlar gala.    RÚV býr ekki við þá afsökun aðHvíta húsið sé valdamiðstöð á Íslandi. Fréttirnar af Trump gefa þó annað til kynna; RÚV er í mun að gjaldfella forsetann.    RÚV bauð til sín geðlækni aðræða andlegt heilsufar Trumps.    Er líklegt að geðlæknir yrði kall-aður til að fjalla um May í Bretlandi, Merkel í Þýskalandi eða Macron í Frakklandi?    Nei, líklega ekki.Óttar Guðmundsson geð- læknir sagði undan og ofan af sér- kennum Trump eins og þau blasa við fjölmiðlaneytendum en harð- neitaði að lýsa manninn geðveikan. Heldur ekki siðblindan, þótt hann hafi verið um það þýfgaður.    Við þurfum ekki fjölmiðla til aðvita að Trump er maður sinnar gerðar. En fjölmiðlar ættu að fara varlega í að nota hugtök úr geð- læknisfræði. Við gætum sannfærst um að við byggjum í geðveikum heimi.    Í framhaldi farið að haga okkurskringilega – eins og RÚV þeg- ar fréttaefnið er Trump.“ Útlend fréttastofa STAKSTEINAR Veður víða um heim 3.9., kl. 18.00 Reykjavík 9 alskýjað Bolungarvík 9 súld Akureyri 14 léttskýjað Nuuk 6 skýjað Þórshöfn 11 léttskýjað Ósló 20 heiðskírt Kaupmannahöfn 20 léttskýjað Stokkhólmur 22 heiðskírt Helsinki 20 léttskýjað Lúxemborg 20 léttskýjað Brussel 19 skýjað Dublin 15 léttskýjað Glasgow 14 súld London 23 skýjað París 23 skýjað Amsterdam 20 léttskýjað Hamborg 25 heiðskírt Berlín 28 heiðskírt Vín 21 skýjað Moskva 20 léttskýjað Algarve 24 léttskýjað Madríd 31 heiðskírt Barcelona 26 þrumuveður Mallorca 29 léttskýjað Róm 24 rigning Aþena 32 heiðskírt Winnipeg 19 léttskýjað Montreal 25 skúrir New York 29 heiðskírt Chicago 28 léttskýjað Orlando 29 skúrir Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 4. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:20 20:35 ÍSAFJÖRÐUR 6:18 20:46 SIGLUFJÖRÐUR 6:01 20:29 DJÚPIVOGUR 5:48 20:06 Krabbameins- deild 11E á Land- spítalanum hefur verið flutt upp um tvær hæðir í laust rými vegna framkvæmda á spítalanum. Verið er að skipta um gler í gluggum og breyta opn- anlegum fögum í álmum spítalans sem hýsa legu- deildir. Eru framkvæmdirnar langt á veg komnar að sögn Ingólfs Þór- issonar, framkvæmdastjóra rekstr- arsviðs Landspítalans. „Þetta stóð alltaf til og það vildi þannig til að við vorum með laust rými tveimur hæðum ofar. Þá er hægt að vinna óhikað í allri deildinni í staðinn fyrir að vera losa alltaf eitt og eitt herbergi,“ segir Ingólfur í samtali við Morgunblaðið um flutn- ing á krabbameinsdeildinni. Nauð- synlegt var að ráðast í viðhald á gluggum á álmum Landspítalans. Reynt hefur verið að halda áhrifum frá raski og hávaða vegna þessara framkvæmda sem og öðrum við spít- alann í lágmarki. axel@mbl.is Krabba- meinsdeild flutt upp  Deildir færðar vegna framkvæmda Ingólfur Þórisson Hlýra var úthlutað í aflamarki í fyrsta sinn við upphaf nýs fiskveiðiárs 1. september, en leyfilegur heildarafli í honum er 1.001 tonn upp úr sjó. Með kvótasetningu hlýra fjölgar skipum með aflamark. Kvóti skipanna er þó ærið misjafn eða frá einu kílói upp í 20-30 tonn og eru stór línuskip með mestan kvóta í tegundinni. Bátar með krókaaflamark eru nú 315 og fjölgar um 38, einkum vegna úthlutunar á hlýra. Skipum í afla- markskerfinu fjölgar um 13 á milli ára og eru nú 225. Alls fengu því 540 skip úthlutað aflamarki nú saman- borið við 489 á fyrra fiskveiðiári. Alls fá því 540 skip úthlutað aflamarki að þessu sinni samanborið við 489 á fyrra fiskveiðiári. „Skýringin á þessari miklu fjölgun liggur í því að fjöldi skipa hefur veiði- reynslu í hlýra því hann veiðist víða í litlu magni sem meðafli. Fyrir vikið eru fjölmörg skip sem ekki hafa búið yfir neinum hlutdeildum nú komin með hlutdeild í hlýra og fá því úthlut- að aflamarki í honum,“ segir á heima- síðu Fiskistofu. Aflahlutdeildinni er úthlutað á grundvelli veiðireynslu í hlýra á síðustu þremur árum. Erfitt hefur verið talið að stjórna veiðum á hlýra með aflamarki þar sem hann veiðist einkum sem meðafli en nú verður látið reyna á það. Síð- ustu ár hefur hlýrastofninn við landið átt í vök að verjast. aij@mbl.is Hlýri fjölgar fiskiskipum í aflamarki  Með frá einu kílói upp í tæp 30 tonn í kvóta  Fæst einkum sem meðafli Morgunblaðið/Ómar Meðafli Hlýrinn er kominn í kvóta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.