Morgunblaðið - 04.09.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 04.09.2018, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2018 Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15 Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi HÁGÆÐA BLÖNDUNARTÆKI Þýska fyrirtækið Hansa hefur framleitt bað- og eldhústæki í meira en 100 ár. Tengi hefur mikla og góða reynslu af vörunum frá Hansa. Sigrún Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur á 50 ára afmæli í dag.Hún er svæfingarhjúkrunarfræðingur að mennt en hefurunnið á augndeild Landspítalans síðastliðin tvö ár. Á augndeild er göngudeild og bráðamóttaka, einnig eru gerðar augasteina- og glákuaðgerðir og lyf gefin í augu t.d. vegna hrörnunar í augnbotnum. „Áhugamálin eru þetta klassíska, fjölskyldan, ferðalög og að hreyfa mig til heilsubótar. Ég hef lengi verið í Hreyfingu og þar er alltaf líf og fjör. Við stundum skíði á veturna, Bláfjöll, Hlíðarfjall og af og til er farið til útlanda á skíði sem er alveg frábært. Á sumrin förum við í ferðalög innanlands og erlendis. Við vorum í bongóblíðu í Kaup- mannahöfn í sumar og svo fórum við í skemmtilega ferð á Snæfells- nesið, þar er alltaf gaman að koma, Svo fylgjum við okkar yngsta í fótboltaferðir og vorum á Orkumótinu í Eyjum í sumar, þar var mikil gleði þrátt fyrir ausandi rigningu. Í september ætlum við að heim- sækja Amsterdam, skoða og njóta borgarinnar. Tengdaforeldrar mínir byggðu bústað fyrir nokkrum árum sem er í Efstadal í Bláskógabyggð og þar á fjölskyldan oft góðar stundir saman.“ Eiginmaður Sigrúnar er Helgi Júlíusson verkfræðingur sem vinnur hjá Landsbréfum. Börn þeirra eru Orri, f. 1994, Harpa, f. 2000 og Hrannar, f. 2008. „Í tilefni dagsins ætla ég að bjóða fjölskyldunni út að borða. Þetta verður góður þriðjudagur.“ Hjúkrunarfræðingurinn Sigrún vinnur á augndeild Landspítalans. „Þetta verður góður þriðjudagur“ Sigrún Gunnarsdóttir er fimmtug í dag G uðrún Zoëga fæddist 4. september 1948 í Reykjavík og ólst upp í Laugarásnum. Hún gekk í Langholtsskóla og síðar í Vogaskóla. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1967, fyrri- hlutaprófi í verkfræði frá HÍ 1970 og prófi í byggingarverkfræði frá DTH (nú DTU) í Kaupmannahöfn 1974. Guðrún var verkfræðingur hjá verkfræðistofunni Fjarhitun hf. 1974-87, aðstoðarmaður Friðriks Sophussonar iðnaðarráðherra 1987-88, framkvæmdastjóri Félags ráðgjafarverkfræðinga 1989-95 og formaður Kjaranefndar og síðar Kjararáðs frá 1993 til 2011. „Ég var fyrst bæði í kjaranefnd og kjaradómi sem þá var og var formaður frá upphafi. Það skiptust á skin og skúrir í starfinu, það var að mörgu leyti erfitt en líka að mörgu leyti gefandi og ég kynntist mörgu góðu fólki þar. Við reyndum að setja okkur inn í störf þeirra sem við ákváðum laun hjá og það var mjög fróðlegt, enda stór og fjölbreyttur hópur. Til að byrja með var launasetningin mjög flókin og ógagnsæ. Launin voru eitt og svo var borgað fyrir allt mögulegt annað sem var misjafnt hvernig var ákveðið. Við einfölduðum launauppbygginguna mjög og það var tímafrekt fyrstu árin. Svo var mjög erfiður tími í hruninu þegar við þurftum að lækka launin.“ Guðrún var formaður Stéttar- félags verkfræðinga 1981-83, og um leið í stjórn Verkfræðinga- félags Íslands, í stjórn Hvatar, fé- lags sjálfstæðiskvenna, 1985-90 og formaður 1988-90, var varaborg- arfulltrúi í Reykjavík 1986-90 og borgarfulltrúi í Reykjavík 1990-98 og sat þá í ýmsum nefndum og stjórnum á vegum borgarstjórnar, m.a. skólamála- og fræðsluráði, Guðrún Zoëga, fv. formaður Kjararáðs og borgarfulltrúi – 70 ára Í Alsace-héraði Guðrún og fjölskylda stödd í bænum Colmar og var myndin tekin í gær. Erfitt en gefandi að sitja í Kjararáði Hjónin Guðrún og Ernst í Sapa- fjöllum í Víetnam 2015. Hella Baldur Eikar Fjalars- son fæddist 15. desember 2017 kl. 3.14. Hann vó 4.120 g og var 54 cm lang- ur. Foreldrar hans eru Thelma Dögg Róberts og Jónas Fjalar Kristjánsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einnmánuð. Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.