Morgunblaðið - 13.09.2018, Page 2

Morgunblaðið - 13.09.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt 595 1000 Gríska eyjan Krít tin ga ás lík u. . br e 17. SEPTEMBER Í 11 NÆTUR Frá kr. 89.995 STÖKKTU TIL KRÍTAR 17. SEPTEMBER Sunna Ósk Logadóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu og mbl.is, Kjartan Kjartansson, blaðamaður á Vísir.is, Bylgjunni og Stöð 2, og þeir Tómas Guðbjartsson og Ólafur Már Björnsson eru til- nefnd til fjöl- miðlaverðlauna umhverfis- og auðlindaráðu- neytisins sem verða veitt mánu- daginn 17. sept- ember. Í fréttatilkynn- ingu segir m.a. að Sunna Ósk hafi fjallað um togstreitu nýtingar og náttúruverndar í greina- flokknum Mættinum og dýrðinni, sem birtist í Morgunblaðinu. Þar var sérstaklega fjallað um virkjunar- áform á Vestfjörðum og áhrif þeirra á samfélag og umhverfi. „Sunna Ósk tengir tölulegar staðreyndir, skýr- ingarmyndir og viðhorf saman á áhugaverðan hátt fyrir lesandann og gefur heildstæða og yfirgripsmikla mynd af þeim hagsmunum og sjón- armiðum náttúruverndar og nátt- úrunýtingar sem vegast á.“ Kjartan Kjartansson er tilnefndur fyrir umfjöllun um loftslagsmál. Ráðuneytið segir að hann hafi fjallað á vandaðan og upplýsandi hátt um brýnasta umhverfismál samtímans. Umfjöllun hans hafi „verið stöðug og umfangsmikil á tímum mikilla breyt- inga í íslenskri fjölmiðlun. Kjartani er lagið að útskýra áhrif loftslags- breytinga á aðgengilegan hátt fyrir almenna lesendur“. Þeir Tómas Guðbjartsson og Ólaf- ur Már Björnsson eru tilnefndir fyr- ir myndefni, upplýsingar og greina- skrif um íslenska náttúru. Þeir hafa „nýtt fjölmiðla og samfélagsmiðla til að fjalla um íslenska náttúru, friðun og verðmæti náttúruminja. Þeir hafa heimsótt fjölmarga staði og sótt þangað nýtt efni, bæði ljósmyndir og myndskeið og nýtt sér til hins ýtr- asta möguleika samfélagsmiðla til að koma þessu efni á framfæri“. gudni@mbl.is Sunna Ósk tilnefnd fyrir Máttinn og dýrðina  Fjölmiðlaverðlaun í tilefni af Degi íslenskrar náttúru Morgunblaðið/Golli Ófeigsfjarðarheiði Sunna Ósk fjallaði m.a. um Hvalárvirkjun. Sunna Ósk Logadóttir „Við viljum fara í raunverulegt samráð. Viðkvæmt mál eins og lok- un gatna kallar á aukið samráð,“ segir Eyþór Laxdal Arnalds, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í skipu- lags- og samgönguráði Reykjavík- ur, um tillögu skrifstofu samgöngu- stjóra og borgarhönnunar um að framlengja út árið það fyrirkomu- lag sem verið hefur í sumar á göngugötum í miðbænum, á meðan unnið er að deiliskipulagstillögu um umfang og fyrirkomulag göngu- gatna til framtíðar. Borgarstjórn samþykkti án mót- atkvæða í byrjun mánaðarins að hafa göngugöturnar allt árið. Um- hverfis- og skipulagssviði var falið að undirbúa tillögur um það og sér- staklega tekið fram að útfærslur yrðu í samráði við notendur og hagsmunasamtök. Afgreiðslu tillögunnar í skipu- lagsráði var frestað á fundi í gær en Kristín Soffía Jónsdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í ráðinu, reiknar með að hún verði afgreidd á fundi ráðsins í næstu viku. Hún segir að skipulagsráðið standi frammi fyrir því að borgarstjórn hafi samþykkt að hafa göngugötur allt árið. Spurn- ingin sé hvort rétt sé að framlengja núverandi fyrirkomulag á meðan unnið sé að útfærslu – eða að opna göturnar tímabundið fyrir umferð. „Það er búið að ákveða að þetta verði framtíðin. Mér finnst að skýr- ustu skilaboðin sem við getum sent séu að hafa göturnar sem göngu- götur áfram og fá reynslu á þær en ekki taka upp eitthvert millibils- ástand,“ segir Kristín Soffía. Spurð um samráð við íbúa og hagsmunaaðila segir hún að boðað hafi verið til fundar með íbúum og hagsmunaaðilum næstkomandi mánudag. Eyþór lýsir vonbrigðum með vinnubrögðin. Aðeins sé vika frá því borgarstjórn hafi samþykkt að farið verði í gott samráð við notendur og hagsmunasamtök. Það hafi ekki far- ið fram og verði ekki unnið á einni viku. Hann segir að málið varði marga og vill að þeir sem hafa skoðanir á því verði hvattir til að láta álit sitt í ljós. „Mikilvægt er að miðborgin sé lifandi með verslunum sem eiga sér sögu þar en verði ekki aðeins túr- istastræti. Miðborgin er á viðkvæm- um punkti, íbúum hefur fækkað og við verðum að fara varlega í breyt- ingar,“ segir hann. Vilja fara í raunverulegt samráð  Lagt til í skipulagsráði að sumartímabil göngugatna verði framlengt til áramóta Kristín Soffía Jónsdóttir Eyþór Laxdal Arnalds Helgi Bjarnason Arnar Þór Ingólfsson Ríkið mun veita um 400 milljónir króna til að bæta rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla á Íslandi. Það verður meðal annars gert með því að endurgreiða hluta ritstjórn- arkostnaðar rit- og ljósvakamiðla. Þá verða umsvif Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði minnkuð. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, kynnti í gær aðgerðir til að styrkja rekstur einkarekinna fjölmiðla. Það er liður í að efla íslenska tungu. „Það er alveg ljóst að rekstur fjöl- miðla er mjög þungur og samkeppn- isstaðan skökk,“ sagði Lilja á blaða- mannafundi í gær. Er þetta í fyrsta skipti sem stjórnvöld grípa til beinna aðgerða til að styðja við rekstur fjölmiðla. Styrkirnir eru að norrænni fyrirmynd en annars stað- ar á Norðurlöndunum hafa verið veittir ríkisstyrkir til einkamiðla, aðallega dagblaða, í áratugi. 20-25% endurgreiðsla Aðgerðunum er ætlað að bæta rekstrarumhverfi ritstýrðra ís- lenskra fjölmiðla sem miðla fréttum, fréttatengdu efni og gegna mikil- vægu samfélagshlutverki og efla einkarekna fjölmiðla í samkeppni við Ríkisútvarpið og erlenda vef- miðla. Verið er að semja frumvarp sem ætlunin er að leggja fram á Al- þingi í byrjun næsta árs. Fjárfrekasta aðgerðin er endur- greiðsla á kostnaði við ritstjórnir rit- og ljósvakamiðla. Rætt er um endurgreiðslu á 20-25% tiltekins kostnaðar sem bundinn verður við ákveðið hámark. Reiknað er með að verja 350 milljónum til þess og að fyrsta endurgreiðslan verði innt af hendi vegna rekstrarársins 2019. Dregið verður úr umsvifum Rík- isútvarpsins á auglýsingamarkaði um 560 milljónir á ári til að skapa svigrúm fyrir aðra til að auka tekjur sínar. Fram kom hjá Lilju að til skoðunar er að banna kostun dag- skrárliða og lækka hámarksfjölda auglýsingamínútna úr 8 í 6 á klukkustund. Ráðherra sagði á fundinum að það ætti eftir að koma í ljós hvort Ríkisútvarpið þyrfti að skera niður. Ríkisstjórnin stefndi þó ekki að því að skerða þjónustu RÚV. Meðal annarra aðgerða er að samræma skattlagningu virðisauka- skatts vegna sölu og áskrifta dag- blaða, tímarita og landsmála- og héraðsfréttablaða, hvort heldur sem útgáfuform þeirra er á prentuðu eða rafrænu formi. Rafrænar áskriftir munu því bera 11% virðisaukaskatt í stað 24%. Til skoðunar er að skattleggja kaup á erlendum netauglýsingum til þess að jafna stöðu innlendra fjöl- miðla og erlendra vefmiðla. Þá munu einkareknir fjölmiðlar geta sótt um endurgreiðslur til að mæta kostnaði vegna lögbundinnar text- unar og talsetningar yfir á íslensku. Sérstök áhersla verður lögð á efni fyrir börn og ungmenni. Loks er rætt um að auka gagnsæi við kaup hins opinbera á auglýsingum. „Ég er vongóð um að þessar að- gerðir muni valda straumhvörfum á íslenskum fjölmiðlamarkaði,“ sagði Lilja. »45 Styrkja einkarekna fjölmiðla  Menntamálaráðherra kynnir aðgerðir til að bæta rekstrarumhverfi fjölmiðla  Hluti ritstjórnar- kostnaðar verður endurgreiddur  Umsvif Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði verða takmörkuð Morgunblaðið/Eggert Bókaþjóð Fjölmiðlar skipta sköpum fyrir vöxt og viðgang tungumálsins okkar, sagði Lilja Alfreðsdóttir í gær. Gert er ráð fyrir útsýnispalli á tækniskýli sem Sýn hf. (Stöð 2 og tengdir miðlar) hyggst reisa ásamt fjarskiptamastri á toppi Úlfarsfells. Tillaga að deiliskipu- lagi fyrir rúman hektara var lögð fram á fundi skipulags- og um- hverfisráðs Reykjavíkur í gær. Tillagan hlaut ekki afgreiðslu, var frestað. Fjarskiptamastrið á að verða 50 metra hátt ofan á þessu tæp- lega 300 metra háa fjalli sem er vinsæll útivistarstaður. Í rök- stuðningi fyrir tillögunni segir að framkvæmdin tryggi fullnægjandi útvarps- og fjarskiptaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Til að lág- marka sjónræn áhrif mannvirkja er lagt til að unnið verði með náttúruleg byggingarefni þannig að mannvirkin falli sem best inn í landslag og umhverfi. Útsýnispallur verði á húsi á Úlfarsfelli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.