Morgunblaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR SKODA
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði
sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina
má flest allt um ástand bílsins og gæði.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Loftslagsmál, kynjajafnrétti, fjár-
lagafrumvarp, málefni vinnumark-
aðarins, fjórða iðnbyltingin og ný-
sköpunarmál voru meðal
umræðuefna Katrínar Jakobsdóttur,
forsætisráðherra, í stefnuræðu
hennar á Alþingi í gærkvöldi. Útlist-
aði Katrín stefnu ríkisstjórnarinnar
samkvæmt aðgerðaáætlun í lofts-
lagsmálum sem kynnt var á mánu-
dag og helstu atriði fjárlagafrum-
varps, þ. á m. áform um
uppbyggingu samfélagslegra inn-
viða.
„Hér á landi hafa sjúklingar þurft
að greiða meira fyrir heilbrigðis-
þjónustu en annars staðar á Norð-
urlöndum. Fyrstu skrefin í því að
lækka þennan kostnað voru stigin nú
um mánaðamótin þegar dregið var
úr kostnaði aldraðra og öryrkja við
tannlækningar sem er löngu tíma-
bær og mikilvæg aðgerð,“ sagði
Katrín og benti einnig á að ríkis-
stjórnin legði áherslu á geðheilbrigði
enda væru hér á landi teikn á lofti
um að andlegri heilsu, sérstaklega
ungs fólks, hefði hrakað.
Katrín ræddi einnig um samráð
ríkisstjórnarinnar við aðila vinnu-
markaðarins, en tíu samráðsfundir
hafa verið haldnir í tíð hennar. Sagði
hún fundina hafa skilað margvísleg-
um árangri og að þegar hafi verið
ráðist í aðgerðir tengdar kjaramál-
unum. Einnig nefndi Katrín sem lyk-
ilatriði að byggt verði upp og stutt
betur við nýsköpunar- og rannsókn-
arumhverfi og því hefði verið bætt í
framlög til menntunar og stefnt væri
á verulegar fjárfestingar í rannsókn-
um og nýsköpun.
Vilja efla samkeppnishæfni
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra,
sagði markmið ríkisstjórnarinnar
skýrt; að koma Íslandi í fremstu röð
og efla samkeppnishæfni á sem flest-
um sviðum. Áherslan væri á fjöl-
breytt atvinnulíf til að styrkja gjald-
eyrissöfnun, draga úr sveiflum og
tryggja fyrirsjáanleika í afkomu
heimila og fyrirtækja. Um ferða-
þjónustu- og kjaramál vísaði hann til
nýrrar skýrslu Gylfa Zoëga, prófess-
ors í hagfræði, þar sem varað er við
því að launaskrið geti gert ferða-
þjónustu ósamkeppnishæfa til lengri
tíma litið og leitt til verri lífskjara.
„Stefna í húsnæðismálum, kjara-
ráð, launaþróun, atvinnuleysistrygg-
ingar, stefna í menntamálum, sam-
spil launa, bóta, skatta og
ráðstöfunartekna eru áherslur sem
hafa verið á dagskrá ríkisstjórnar-
innar, aðila vinnumarkaðarins og
forsvarsmanna Sambands sveitarfé-
laga sl. níu mánuði eða frá því rík-
isstjórnin var mynduð,“ sagði Sig-
urður Ingi og nefndi að
samráðsfundirnir væru mikilvægt
veganesti til að hlusta eftir áherslum
verkalýðshreyfingarinnar og huga
að lægri tekjuhópum.
Um samgönguáætlun sem lögð
verður fram í næstu viku, sagði Sig-
urður Ingi að verkefnum yrði for-
gangsraðað út frá umferðaröryggi
og þróun undanfarinna ára. „Þá er
verið að skoða útfærslur á því hvern-
ig hægt er að stórauka þá upphæð
sem rynni til nýrra framkvæmda
vegakerfisins með sérstöku notenda-
gjaldi af einstökum mannvirkjum
svo þau verði að veruleika,“ sagði
hann.
Stjórnvöld komi að kjaramálum
Logi Einarsson, formaður Sam-
fylkingarinnar, sagði blikur á lofti í
efnahagsmálum. „Ýmislegt bendir til
að við séum á leið aftur niður í dal
eftir að hafa verið á tindi hagsveiflu í
langan tíma. Komandi mánuðir eru
afgerandi,“ sagði hann. „Stjórnvöld
undanfarinna ára hafa ekki nýtt
fordæmalítið svigrúm til að jafna
kjörin nægilega og auka félagslegan
stöðugleika,“ sagði Logi sem ræddi
einnig um íslensku krónuna. „Nú
þegar fyrirsjáanlegt er að krónan
komi almenningi í vandræði eina
ferðina enn er nauðsynlegt að vinna
að upptöku evru með inngöngu í
Evrópusambandið,“ sagði hann.
„Undanfarið hefur stjórnmálafólk
ólíklegustu flokka sagt að stjórnvöld
eigi ekki að blanda sér of í kjara-
samninga, það sé hlutverk launþega
og atvinnurekenda. Stjórn ríkis er
hins vegar ekki eins og hver annar
sjoppurekstur og hlutverk stjórn-
valda er að skapa öllum landsmönn-
um viðunandi aðstæður og öryggi.
Þess vegna þurfa stjórnvöld að koma
með afgerandi hætti að lausn samn-
inganna framundan,“ sagði hann
einnig.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Miðflokksins, sagði ríkis-
stjórnina hafa, með nýju fjárlaga-
frumvarpi, slegið 100 ára met í út-
þenslu ríkisbáknsins og féð færi að
mestu leyti í að „fóðra gölluð kerfi“.
„Þannig fer meirihluti aukningar
til heilbrigðismála í að festa í sessi
mistökin við Hringbraut. Ákvörðun
sem á eftir að reynast samfélaginu
gífurlega dýr,“ sagði hann.
Sigmundur Davíð sagði ríkis-
stjórnina kerfisstjórn sem hefði
enga pólitíska sýn. „Við vitum öll til
hvers þessi ríkisstjórn var mynduð.
Eingöngu til að skipta á milli sín ráð-
herrastólum og koma í veg fyrir að
samstarfsflokkarnir hrindi kosn-
ingaloforðum sínum í framkvæmd,“
sagði hann. Um Framsóknarflokk-
inn sagði Sigmundur Davíð að flokk-
urinn hefði gleymt byggðamálunum
og að hann hefði svikið landsbyggð-
ina og íslenska matvælaframleiðslu.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
formaður Viðreisnar, ræddi einnig
um ríkisstjórnarflokkana og sagði
þá standa saman um kyrrstöðu og
völd. Sagði hún ræðu forsætisráð-
herra innihaldsrýra og að „brell-
umeistarar og umbúðahönnuðir“
stjórnarflokkanna hefðu haft meira
að segja þar en pólitískar hugsjónir
og metnaður til umbóta. „Vinstri
græn verða að horfast í augu við það
og sætta sig við þá gagnrýni, að þau
eru einfaldlega millistykkið sem
tengir þessa gamalgrónu flokka
saman. Þannig er íhaldsþrennan
fullkomnuð. Þrenna sem heldur
hlífiskildi yfir þeim sérhagsmunum
sem þingmenn Vinstri grænna hafa
reyndar hér í þessum sama ræðustól
gagnrýnt, allt að því froðufellandi, í
gegnum tíðina,“ sagði Þorgerður
Katrín.
Línur lagðar fyrir þingveturinn
Stefnuræða forsætisráðherra og umræður á þingi í gær Margir ræddu um komandi kjaraviðræður
Áhersla ríkisstjórnarinnar áfram á innviðina Útgjaldaukning sögð met í „útþenslu ríkisbáknsins“
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti stefnuræðu sína í gær. Í henni kom m.a. fram að áhersla ríkisstjórnarinnar væri á samfélagsinnviði.
Ræða Halldóra Mogensen flutti fyrstu ræðu fyrir hönd Pírata í gærkvöldi.
Veður víða um heim 12.9., kl. 18.00
Reykjavík 9 skýjað
Bolungarvík 8 skýjað
Akureyri 8 skýjað
Nuuk 7 léttskýjað
Þórshöfn 11 léttskýjað
Ósló 16 heiðskírt
Kaupmannahöfn 15 skýjað
Stokkhólmur 16 heiðskírt
Helsinki 15 skúrir
Lúxemborg 27 heiðskírt
Brussel 15 súld
Dublin 15 léttskýjað
Glasgow 14 léttskýjað
London 14 alskýjað
París 26 heiðskírt
Amsterdam 15 léttskýjað
Hamborg 15 skýjað
Berlín 23 heiðskírt
Vín 28 heiðskírt
Moskva 19 léttskýjað
Algarve 26 léttskýjað
Madríd 29 léttskýjað
Barcelona 26 þrumuveður
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 28 heiðskírt
Aþena 25 léttskýjað
Winnipeg 11 alskýjað
Montreal 21 skýjað
New York 23 rigning
Chicago 22 heiðskírt
Orlando 30 skýjað
13. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:46 20:03
ÍSAFJÖRÐUR 6:47 20:11
SIGLUFJÖRÐUR 6:30 19:54
DJÚPIVOGUR 6:14 19:33
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á föstudag Norðan 8-13 m/s og rigning um landið
norðanvert, sums staðar talsverð úrkoma, en létt-
skýjað syðra. Hiti 5 til 13 stig, hlýjast syðst.
Á laugardag Hiti 4 til 12 stig.
Gengur í norðan 5-10 m/s með súld eða rigningu á norðanverðu landinu og svalara veðri þar, en
bjartviðri syðra með hita að 14 stigum yfir hádaginn. Bætir heldur í vind og úrkomu nyrðra