Morgunblaðið - 13.09.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018
NÝR FJÓRHJÓLADRIFINN E-PACE
Búnaður í Jaguar E-Pace S D150 er m.a.: 10” Touch Pro skjár, símkerfi, 125w Jaguar
hljómkerfi, LED-aðaljós með einkennandi dagljósum, 18” álfelgur, leðursæti, rafdrifin
framsæti með 10 stillingum, íslenskt leiðsögukerfi, rafdrifnir upphitaðir speglar
með sjálfvirkri deyfingu og aðkomuljósum, varadekk, neyðarhemlunarbúnaður,
bakkmyndavél, fjarlægðarskynjarar að framan og aftan, akreinavari.
jaguarisland.is
THE ART OF PERFORMANCE
VERÐ FRÁ: 7.090.000 KR.
Jaguar E-Pace S D150, fjórhjóladrifinn, sjálfskiptur.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
9
7
6
6
JAGUAR E-PACE S
VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR
JAGUAR
HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK
SÍMI: 525 6500
Þór Steinarsson
thor@mbl.is
„Ég er ekki aðili að þessu máli, ég vil að það
komi fram. Ég átti þetta handrit upphaflega og
réttinn að þessari mynd en þeir [26 Films] sem
eiga þorpið eiga ekki neitt í myndinni lengur en
þeir eru leigjendur að þessari jörð,“ segir Balt-
asar Kormákur í samtali við Morgunblaðið.
Baltasar vísar með þessu til umfjöllunar
Morgunblaðsins í gær þar sem fjallað var um
víkingaþorp á jörðinni Horn í Hornafirði. Vík-
ingaþorpið var byggt árið 2009 sem leikmynd
fyrir kvikmynd sem Baltasar ætlaði að leik-
stýra. Tökur áttu upphaflega að hefjast árið
2010 en framleiðsla myndarinnar hefur ekki enn
hafist.
Leiga hækkuð ítrekað
„Ég hef í raun enga aðkomu að þessu setti.
Ég á þetta ekki og er ekki aðili að samningnum
við landeigandann. En af því ég þekki málið vel
og þetta tengist mér þá vil ég koma þessu á
framfæri,“ bætir Baltasar við.
Landeigandinn, Ómar Antonsson bóndi, er
ósáttur með þann tíma sem tekið hefur að hefja
tökur og sagði við Morgunblaðið í gær að þetta
væri orðið að „hálfgerðu leiðindamáli“. Ómar
hefur stefnt fyrirtækinu 26 Films vegna
ógreiddar leigu og óttast að leikmyndin skapi
slysahættu vegna þess að viðhaldi hefur ekki
verið sinnt. Baltasar telur að umfjöllun Morg-
unblaðsins í gær hafi verið einhliða og segir að
það sé önnur hlið á málinu.
„Þannig er mál með vexti að 2009 er þetta
leigt. Eftir miklar samningaviðræður 2014
hækkar leigan um 35% eftir erfiðar samninga-
lotur en hann [landeigandinn] vildi hækka miklu
meira. Svo 2016 fer hann fram á 65% hækkun á
leigunni og það voru menn ekki sáttir við. Það er
búið að hækka leiguna um 150% frá því að farið
var af stað og þeir [26 Films] eru alls ekki sáttir
við það. Það hljóta allir að sjá að 150% hækkun
er ekki samkvæmt verðlagi. Hann er að nýta sér
aðstöðu sína,“ segir Baltasar og bætir við:
„Það var peningurinn fyrir að leigja þetta
meðan engin starfsemi væri í gangi. Síðan er
miklu hærra gjald þegar myndin verður tekin
upp og hann [landeigandinn] er búinn að fara
fram á þreföldun á upphaflegu gjaldi, fyrir þann
tíma sem myndin verður tekin upp. Þetta eiga
þessir erlendu aðilar [26 Films] mjög erfitt með
að sætta sig við og þess vegna standa yfir mála-
ferli. Ástæðan fyrir því að ekki hefur verið
greitt er sú að það komst ekki á samkomulag
um leiguna.“
Þetta staðfestir Baldvin Björn Haraldsson,
lögmaður 26 Films á Íslandi í samtali við Morg-
unblaðið og segir:
„Umbjóðandinn [26 Films] er tilbúinn að
borga leiguna eins og hún var samkvæmt síð-
asta samningi en hann er ekki búinn að sam-
þykkja nýtt tilboð landeiganda.“
Spurður um þessar staðhæfingar Baltasars
og Baldvins segir landeigandinn, Ómar, þær
vera leik að tölum.
Heitir „græðgi“ á íslensku
Eins og áður kom fram þá hefur Ómar stefnt
fyrirtækinu 26 Films vegna ógreiddrar leigu frá
árinu 2016. Forsvarsmenn 26 Films samþykkja
ekki þá hækkun á leigugreiðslum sem Ómar fer
fram á og neita því að greiða.
26 Films hefur gagnstefnt Ómari fyrir að
selja ferðamönnum aðgang að víkingaþorpinu
og hafa af því umtalsverðar tekjur. Þeir segja
það stranglega bannað enda sé þorpið leikmynd
og allur aðgangur sé bannaður.
„Það er búið að gagnstefna Ómari fyrir að
hafa misnotað aðstöðu sína með því að hafa selt
inn á settið í mörg ár. Það eru heilmiklar sann-
anir fyrir því og ekki nóg með það heldur reisti
hann svo kaffihús sem heitir Viking Cafe til að
þjónusta þessu starfsemi sína. Þetta hafa fram-
leiðendurnir alls ekki sætt sig við því þeir eru að
leigja og borga fyrir settið meðan hann misnot-
ar það,“ segir Baltasar. „Hann segir að það sé
hætta af víkingaþorpinu út af ástandi þess en
hættan er ekki fyrir hendi nema af því að hann
er að selja fólki inn á svæðið. Þetta er lokað
vinnusvæði sem enginn á að vera inni á. Þannig
að það á ekki við rök að styðjast að það sé hætta
af þessu ef hann er ekki að selja inn. Þetta er
virki sem er lokað og það stendur óviðkomandi
aðgangur bannaður. En hann hefur valið að
gera þetta að túristagildru. Á góðri íslensku
heitir þetta græðgi,“ bætir Baltasar við.
Vilja bókhaldsupplýsingar
Björn staðfestir að búið sé að gagnstefna Óm-
ari fyrir að nota kvikmyndasettið sem aðdrátt-
arafl fyrir ferðamenn og hafa af því tekjur.
„Á sama tíma og það er verið að leigja þetta af
honum þá er hann að selja ferðamönnum að-
gang að víkingaþorpinu. Hann er með kaffihús
þarna sem heitir Víking Cafe og þar stendur að
það sé aðgangur að víkingaþorpinu. Þannig að
hann selur inn í þorpið sem enginn má koma inn
í. Þetta er afar ósanngjarnt,“ segir Baldvin
Björn.
„Umbjóðandinn [26 Films] gagnstefnir Óm-
ari og krefst þess að hann láti renna til baka all-
ar þær tekjur sem hann hefur haft af þessu
þorpi, sem honum er með öllu óheimilt að selja
inn á, og óskar eftir því að hann gefi og láti fram
allar bókhaldsupplýsingar um tekjurnar sem
hann hefur haft af þessu,“ bætir Baldvin við.
Ómar þvertekur aftur á móti fyrir að hafa
nokkurn tímann selt aðgang að kvikmyndasett-
inu en tekur fram að það sé ekki lokað almenni-
lega og það veki athygli ferðamanna.
„Ég hleypi engum inn en fólk fer þangað.
Þetta er opið og hefur alltaf verið opið og ólæst.
Fólk fer sjálfkrafa hérna inn. Þessu hefur ekki
verið sinnt í 9 ár,“ segir Ómar í samtali við
Morgunblaðið.
Eðlilegt að verkefni tefjist
Varðandi tímann sem tekið hefur að hefja
tökur á myndinni þá bendir Baltasar á að það sé
eðlilegt að svona stór erlend verkefni dragist á
langinn enda geti aðstæður breyst snögglega.
Fyrirtækið 26 Films hafi til að mynda misst
réttinn til að framleiða kvikmyndina og rétt-
urinn hafi verið í höndum nokkurra aðila áður
en hann endaði hjá Universal Studios þar sem
hann er nú.
„Það tók 14 ár, þó ég hafi ekki komið að því,
að koma Everest á koppinn. Þetta er mjög al-
gengt í þessum bransa, að það taki mjög langan
tíma að koma verkefnum af stað. Það er kannski
ekki vanalegt á Íslandi en það er mjög vanalegt
erlendis,“ segir Baltasar.
Spurður hvort hann sjái fyrir sér að farið
verði af stað í framleiðslu myndarinnar á næst-
unni segir Baltasar að hann hafi trú á því en vilji
hins vegar ekki gefa út yfirlýsingar sem hann
geti ekki staðið við.
Víkingaþorpið veldur málaferlum
Landeigandi sakaður um að selja ferðamönnum aðgang að þorpinu og nota það sem tekjulind
Morgunblaðið/Ómar
Víkingaþorp Baltasar Kormákur, kvikmynda-
leikstjóri og framleiðandi, á ekki hlut að máli.