Morgunblaðið - 13.09.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
L
íkamleg og andleg heilsa
haldast í hendur og
hvorugt má vanrækja.
Hins vegar vill oft ger-
ast að sálræni þátt-
urinn er afskiptur og það getur haft
slæmar afleiðingar. Ef fólk tekur
ekki á áföllum sem það verður fyrir
heldur leyfir þeim að breytast í
orkustíflu getur það leitt til lík-
amlegra veikinda síðar. Þess hef ég
oft séð dæmi,“ segir Vigdís Stein-
þórsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Áföll og vitundarvakning
Vigdís er í forsvari fyrir eina
stærstu heilsuhátíð landsins, Heims-
ljós sem haldin verður í Lágafells-
skóla í Mosfellsbæ nú um helgina,
15.-16. september. Margt hefur ver-
ið tekið fyrir á þessum hátíðum, en
sú fyrsta var haldin árið 2010. Að
þessu sinni er andleg líðan hins veg-
ar í brennidepli og þá til að mynda
máttur fyrirgefningarinnar.
„Áföll og sorg geta setið föst í
líkamanum sé ekki tekið á málunum.
Við erum alltaf að gera okkur betur
grein fyrir þessum einföldu sann-
indum; #Metoo byltingin snemma á
þessu ári var algjör vitundarvakning
að þessu leyti og ég gæti nefnt fleiri
áhrifaþætti,“ segir Vigdís.
Fyrirgefning og þroski
Opnun Heimsljóss er heil-
unarguðsþjónusta sem verður annað
kvöld, föstudag, klukkan 20 í Lága-
fellskirkju. Á laugardag er svo dag-
skrá í Lágafellsskóla milli klukkan
11 og 17 og á sunnudag frá 11 til
18:30. Meðal þeirra sem tala á
Heimsljósi er Björn Hjálmarsson
barna- og unglingageðlæknir sem
ræðir um sína persónulegu reynslu,
það er fyrirgefningu í kjölfar barns-
missis og þann persónulega þroska
sem því fylgdi.
Þá fjallar Einar Gröndal, sér-
fræðingur í austrænum nátt-
úrulækningum, um helstu tegundir
áfallastreituröskunar og hvernig
hægt er að komast á bakvið og leysa
erfiða atburði og áföll. Einnig mun
Valdemar G. Valdemarsson skóla-
stjóri ræða um ljósmengun og húsa-
sótt, það er hvernig rafmagn getur
haft slæm áhrif á líðan fólks. Sitt-
hvað er þá ónefnt af áhugaverðum
innslögum á Heimsljósi; svo sem er-
indi um heilnæmi geitamjólkur, dá-
leiðslu, núvitund og svo mætti lengi
áfram telja afar áhugaverð frásagn-
arefni.
„Ég þakka lífinu fyrir“
Vigdís Steinþórsdóttir hjúkr-
unarfræðingur hefur um langt árabil
starfað að heilsueflingu hverskonar
og þá gjarnan talað fyrir óhefð-
bundnum leiðum í því sambandi.
„Ég ólst upp í sveit í rólegu um-
hverfi. Rafmagnið með allri sinni
mengun kom ekki fyrr en ég var 16
ára. Ég borðaði nýjan fisk úr sjón-
um, drakk ógerilsneydda mjólk og
fékk grænmeti úr garðinum. Betri
undirstaða að góðri heilsu er ekki
til,“ segir Vigdís þegar hún greinir
frá sér og sínu. Persónuleg reynsla
varð til þess að hún fór að kynna sér
náttúrulegar leiðir í lækningum.
„Ég þakka lífinu fyrir að hafa
kynnst sorginni og svo náð að vinna
mig þaðan upp með því að kafa í til-
finningarnar. Ónæmiskerfið mitt er
með fæðingargalla og því lagðist ég í
miklar rannsóknir á eigin heilsu og
komst að því að svefn er grunnur að
sterku ónæmiskerfi. Undirstaða
þess er svo sterk þarmaflóra. Svona
helst allt í hendur,“ segir Vigdís sem
árið 1997 setti á fót verkefnið Kær-
leiksdaga sem haldnir hafa verið
fjórum sinnum á ári síðan þá. Inntak
þeirra er um margt svipað því sem
gerist á Heimsljósi, það er heilsa og
jákvæð samskipi fólks á meðal.
Heimsljós
og heilsan
Náttúrulegar leiðir í lækningum eru til umfjöllunar í
Mosfellsbæ um helgina á heilsuhátíðinni Heimsljósi.
Rafmagn breytir líðan fólks og taka verður á áföllum
áður en þau breytast í orkustíflu í líkamanum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heilsa Ég borðaði nýjan fisk úr sjónum, drakk ógerilsneydda mjólk og fékk grænmeti úr garðinum við húsið. Betri
undirstaða að góðri heilsu er ekki til,“ segir Vigdís Steinþórsdóttir í viðtalinu. Með á myndinni er kötturinn Tabbý.
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
RenaultKADJAR&CAPTUR
Sparneytnir sportjeppar
Renault Captur, verð frá: 2.890.000 kr.
Renault Kadjar, verð frá: 3.790.000 kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
9
7
9
9