Morgunblaðið - 13.09.2018, Page 16

Morgunblaðið - 13.09.2018, Page 16
16 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Það er ekki amalegt að veraafkomandi manns eins ogGuðmundar. Hann var mik-ill töffari, hreystimenni sem varð nánast aldrei misdægurt. Hann var afskaplega næmur og mikið nátt- úrubarn. Það lá orð á því að það væri ekki einleikið hvað hann var góð skytta, hann hitti allar tófur sem hann skaut á. Og bjargaðist oft úr lífsháska, enda fékk hann stundum hug- boð og heyrði dulheyrnir, fékk skilaboð sem komu honum oft að góðu gagni. Hann var við grenjalegur frá því hann var 20 ára og þar til hann var 73 ára. Hann lá úti fyrir tófu um 2.469 nætur, um sjö ár samtals, og tófufjöldinn sem hann felldi nánast hinn sami. Hann var aldrei með neina ábreiðu yfir sér þær nætur sem hann lá úti, „nema blíðu eða óblíðu veðrátt- unnar“ svo notuð séu hans eigin orð. Við afkomendur hans segjum að við séum af refaættinni. Við erum sam- kvæmt Íslendingabók.is orðin 1.467 talsins enda eignaðist hann 21 barn og ég hef uppgötvað frænkur og frændur við ólíklegustu aðstæður við það eitt að segja að ég sé af þessari ætt,“ segir Vilborg Davíðsdóttir rit- höfundur sem er einn af afkomendum refaskyttunnar goðsagnakenndu, Guðmundar Einarssonar á Brekku á Ingjaldssandi, en nýlega var endur- útgefin hin illfáanlega bók Nú brosir nóttin, sem byggð er á sendibréfum Guðmundar til Theódórs Gunnlaugs- sonar refaskyttu á Bjarmalandi en hann valdi þar úr til að setja saman í bók. „Frásagnirnar af Guðmundi langafa í þessari bók eru nánast eins og framhald af Íslendingasögunum, þarna eru átakanlegar sögur, ævin- týrasögur og garpasögur. Í viðaukum í nýju útgáfunni er síðan bæði textar um og eftir þennan magnaða afreks- mann og að auki samantekt um ,,dá- lítinn kafla ævi hans“ sem hann er fá- máll um sjálfur, það er að segja kvennamálin, en hann átti fjögur börn með konunni sem er langamma mín áður en hann giftist þeirri sem hann átti síðan sautján börn með.“ Vilborg segir að Guðmundur langafi hennar hafi átt erfiða æsku og alist upp við mikla vinnuhörku og skort en hann missti föður sinn að- eins 11 ára gamall og þurfti þá að taka við hlutverki hins fullorðna á æskuheimilinu þar sem móðir hans var ein með sex börn. „Hann lýsir í bókinni á tilfinningaríkan hátt föð- urmissinum, en sá dagur var greypt- ur í sál hans allt hans líf. Það segir mikið um skortinn að Guðmundur var stærstur sinna jafnaldra þegar faðir hans fellur frá, en hann var minnstur þeirra fjórum árum síðar, þegar heimilið var leyst upp. Vöxt- urinn stóð í stað, svo mikill var sult- urinn. Þess vegna skil ég vel þessa sterku þrá hans að bjarga sér sjálf- ur, sem honum tókst, hann þurfti aldrei að þiggja af sveit.“ Guðmundur var dugnaðarforkur og Vilborg er ekki frá því að hann hafi verið þónokkur spennufíkill. „Hann segir sjálfur að hann hafi að eðlisfari verið óragur, og hann virðist stund- um beinlínis sækja í hættuna. Hann lagði sig til dæmis í mikla hættu til að ná sex yrðlingum úr gjótu hverrar dýpi var meiri en hans eigin hæð. Hann var einn á ferð og enginn vissi af honum þarna, þannig að ef hann hefði ekki komist upp, þá hefði hann sennilega dáið þarna neðanjarðar. En hann gat ekki hugsað sér að yrðling- arnir syltu þar í hel eftir að hann hafði fellt foreldrana, svo hann tók áhættuna. Hann bar mikla virðingu fyrir dýrunum og hafði djúpa sam- kennd með þeim. Við lestur bók- arinnar finnur maður vel þessa miklu virðingu fyrir tófunni hjá Guðmundi og hann segist hafa fengið þá leið- beiningu frá gamalli refaskyttu þegar hann fór tvítugur á sitt fyrsta greni, að láta tófuna kenna sér, því hún er gáfuð skepna og kæn. Ekki er hægt að vinna í slag við hana nema vita hvernig hún hugsar og hagar sér,“ segir Vilborg og bætir við að Guð- mundur hafi ævinlega verið í þæfðum ullarbrókum þegar hann gekk til grenja, og fótabúnaðurinn var tvö- faldir ullarsokkar og þeirrar tíðar sauðsskinnskór. „Þegar gúmmí- skórnir komu til sögunnar þá gat hann ekki gengið í þeim, því honum fannst hann missa jafnvægið á svo þykkum botnum. Hann varð að finna fyrir jörðinni undir fæti.“ Sálarkreppa skyttunnar Vilborg segist fyrst hafa heyrt af Guðmundi refaskyttu þegar henni var sagt að hann væri pabbi Gunnars móðurafa hennar, sem hún var náin. „Ég vissi að Gunnar afi hefði átt afskaplega erfiða æsku. Hann lenti í miklum hrakningum, var sendur af einum bæ á annan í fóstur, því móðir hans, vinnukona á sama bæ og Guð- mundur var vinnumaður, þurfti að láta hann frá sér mánaðargamlan. Hann átti nefnilega tvíburasystur og vinnukona mátti aðeins hafa hjá sér eitt barn, valdi telpuna. Tvö eldri börn sem hún átti með Guðmundi þurfti hún líka að láta frá sér vegna þess að þau gátu ekki haft þau hjá sér, bláfátækt vinnufólk í Borgarfirði. Guðmundur fór frá henni og giftist annarri konu. Mér sárnaði fyrir hönd langömmu en svona gat nú lífið verið harkalegt á þessum tímum þótt ekki sé svo ýkja langt síðan,“ segir Vilborg og bætir við að fram komi í bókinni að Guðmundur hafi átt í mikilli sál- arkreppu út af því hvernig örlögin gripu inn í líf hans. „Hann var í erfiðri stöðu þegar í ljós kom að önnur kona gekk með barn hans, Guðrún Magnús- dóttir, sem hafði fóstrað elsta son hans og Katrínar. Þau gengu í hjónaband, hann og Guðrún. Fyrstu búskaparár þeirra voru mjög erfið, þau eignast 17 börn og missa fimm af þeim ung. Og þó þessi bók sé saga af garpi og refa- skyttu, þá eru þarna líka einlægar frá- sagnir Guðmundar af erfiðleikum og sorg sem hann þurfti að glíma við. Til dæmis tilfinningar föður sem þarf að horfa vanmáttugur upp á fárveik börn sín og leggja til hinstu hvíldar, það er mjög átakanlegt. Hann var mikil til- finningavera. En þessi bók er ekki aðeins minningar Guðmundar heldur líka saga þeirrar kynslóðar sem er gengin og fór í gegnum ótrúlega erf- iðleika og tókst á við svo margt harla ólíkt því sem við þekkjum sem lifum nú allsnægtalífi.“ Vinir Guðmundur með Rebba sinn sem hann ól sem ungan yrðling á mjólk í pela. Rebbi fylgi honum eins og hundur og stríddi honum líka oft. Katrín Langamma Vilborgar. Við köllum okkur alltaf refina Hann var goðsögn, garpur, náttúrubarn og tilfinningavera. Refa- skyttan Guðmundur Einarsson var langafi Vilborgar Davíðsdóttur. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vilborg Hún segir sögu Guðmundar langafa síns líkasta Íslendingasögu. PHILIPS 55’’ UHD SNJALLSJÓNVARP 55PUS6503 SAMSUNG KÆLI- OG FRYSTISKÁPUR RB28HSR2DWW SAMSU ÞURRK DV90M5 NG ARI 0003 SAMSUNG ÞVOTTAVÉL WW90J5426FW GRAND I – L I ND I R – SKE I FAN –E LKO . I S 99.99569.995 99.99079.990 þér að finna við hjálpum rétta tækið A++A+++ 9kg 179cm 9kg Árið 1899 þurfti Guðmundur að skreppa á milli bæja í Önundar- firði, og hafði auðvitað með sér byssuna, ef hann rækist óvænt á lágfótu. Hann gengur fram á hest prestkonunnar, Geysi, sem hann vissi viljugan og hnýtir upp í hann snæri, fer á bak og hleypir á skeið. En þá kemur óvænt tófa: „Nú sveigði ég hestinn í veg fyrir hana og dreg- ur þá óðum saman. Verður þá tæfsu á að leita undan, en þá er ég kominn í færi við hana. Ég bregð upp byssunni og hleypi af. Breyttist þá ferðalagið fyrir mér og tæfu. Við lágum bæði sitt í hvoru lagi í sandinum og byssan sömuleiðis. Hesturinn einn flaug í burtu með taglið of- ar öllu nágrenni. Við skotið trylltist Geysir og eins við skrækinn, sem tófan rak upp, þegar skotið reið um hana. Snærið slitnaði, og hélt ég sumu eftir, en sumt fór Geysir með heim í hlað á Holti, eins og hann vildi segja eigandanum frá því, sem gerzt hafði. Um mig er það að segja að ég áttaði mig ekki vel á þessu, fyrr en ég fór að svipast að tófunni og byssunni. Þetta gerðist með þeim leifturhraða. Mikið létti mér þó, er ég sá, að tófan lá hreyfingarlaus skammt frá mér og byssan stóð upp á endann með næstum hálft hlaupið á kafi í sandinum.“ Skot á skeiði „VIÐ LÁGUM BÆÐI“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.