Morgunblaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Vegna mikilla framkvæmda í mið- borg Reykjavíkur var nýlega gripið til þess ráðs að opna fyrir bílaumferð um götur sem alla jafna eru göngu- götur frá 1. maí til 1. október. Ökutæki komast nú um Póst- hússtræti til norðurs og Hafnarstræti til vesturs. Einstefnu í Hafnarstræti og Naustunum hefur verið snúið tímabundið vegna framkvæmdanna. Austurstræti, milli Pósthússtrætis og Ingólfstorgs, verður áfram göngu- gata til 1. október næstkomandi. Um áratuga skeið hefur verið ein- stefna til austurs um Hafnarstræti. Morgunblaðið leitaði til Reykjavík- urborgar og spurði hve langt væri síðan umferð var síðast leyfð um strætið til vesturs. „Mínir elstu menn eru ekki með þetta á hreinu,“ segir í svari Jóns Halldórs Jónassonar upp- lýsingafulltrúa. Ljósmyndir segja söguna Menn lögðust í rannsóknarvinnu og fannst þá mynd hjá Ljósmynda- safni Reykjavíkur, sem talin er frá árunum 1950 til 1955. Á myndinni er skilti sem sýnir að umferð í vesturátt er bönnuð. Einnig fannst mynd frá friðardeg- inum 8. maí 1945. Erlendir hermenn fagna því að hernaðarátökum í Evr- ópu var lokið með formlegri uppgjöf Þjóðverja. Þeir stóðu á palli herbíla sem óku austur Hafnarstrætið. Loks fannst mynd, sennilega frá árinu 1929. Hún sýnir bifreiðar frá bifreiðastöð Steindórs í röðum beggja vegna götunnar og fjöldi fólks kom- inn til að fylgjast með. Bifreiðarnar snúa í austurátt. Sem fyrr segir standa yfir miklar framkvæmdir í Tryggvagötu, við endurgerð götunnar milli Póst- hússtrætis og Lækjargötu. Auk þess stendur samtímis yfir vinna við Bæj- artorg, þar sem Bæjarins bestu hafa verið með pylsuvagn á áratugi. Með- an á þessum framkvæmdum stendur er lokað fyrir umferð um gatnamót Tryggvagötu og Pósthússtrætis. Vinnu við Bæjartorgið miðar vel og nú styttist í að pysluvagninn verði færður á sinn stað. Samkvæmt upplýsingum Jóns Halldórs hefur bílaumferð um mið- borgina gengið vel eftir að göturnar voru opnaðar. Morgunblaðið/sisi Hafnarstræti Bílarnir aka í vesturátt. Þeir beygja til hægri inn í Naustin því umferð er bönnuð við Fálkahúsið. Áratugir liðnir síðan bíl var síðast ekið í vesturátt  Akstursstefnu var snúið við í Hafnarstræti tímabundið Morgunblaðið/Sverrir Gatnamótin Eldri mynd frá sama götuhorni. Hún sýnir bíla koma úr Naust- unum og beygja til vinstri inn í Hafnarstrætið. Þetta er hin venjulega leið. Undirbúningur fyrir þing Alþýðu- sambands Íslands er í fullum gangi og efnir Efling stéttarfélag til fund- ar í Gerðubergi næstkomandi laug- ardag klukkan 14.30 þar sem fram- bjóðendur til embættis forseta ASÍ mætast og kynna stefnumál sín. Frambjóðendurnir Drífa Snædal og Sverrir Mar Albertsson hafa staðfest þátttöku sína á fundinum, samkvæmt frétt Eflingar. ,,Komandi kjarasamningar, launamál, húsnæðismál og aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru meðal mála sem brenna á Eflingarfólki. Fé- lagsmenn eru sérstaklega hvattir til að senda inn spurningar til fram- bjóðenda um þau mál sem brenna á þeim um leið og þeir skrá sig á fundinn. Spurningarnar verða teknar saman og bornar upp á fundinum,“ segir í umfjölluninni um fundinn á vefsíðu Eflingar. Fram kemur að streymt verður af fundinum og hann tekinn upp, til að gera þeim kleift að fylgjast með sem ekki eiga heimangengt. Enskri þýðingu á efni fundarins verður varpað á skjá jafnóðum. 43. þing Alþýðusambands Ís- lands verður haldið í síðari hluta október á Hótel Nordica. Þingið hefst miðvikudaginn 24. október kl. 10 og því lýkur síðdegis á föstudeg- inum 26. október. Kosning forystu Alþýðusambandsins til næstu tveggja ára fer fram á síðasta degi þingsins. Frambjóðend- urnir kynna sig  Efling stéttarfélag boðar til fundar með frambjóðendum til forseta ASÍ SKRIFSTOFUHÚSGÖGN Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is Bjóðum uppá húsgögn eftir marga fræga húsgagnahönnuði. Mörg vörumerki. Eigandi BanThai kynnir alvöru Tælenska Pizzu á YummiYummi Hverfisgötu 123 við Hlemm Tómas Boonchang eigandi veitingastaðarins BanThai lauga- vegi 130, MIXED /NaNaThai hverfisgötu 125, Y A M thai restaurant Kjarna, Þverholt 2, Mosfellsbæ og YummiYummi thai fusion restaurant Hverfisgötu 123 kynna ekta tælenska pizzu. Nú bjóðum við uppá pizzur en með taílenskum snúning. Thai style pizzur. Sem við mælum hrikalega með. Þær eru einstakar og rosa skemmtilegar. Til dæmis erum við með Pad thai pizzu, tom yum pizzu, veggie pizzu og grænt karrý pizzu á mjúkum og stökkum pizzabotni. Sósurnar sem við notum á pizzurnar eru frá Ban Thai. Mælum með ísköldum Singha bjór með pizzunni sem er á mjög góðu verði. Staðurinn er meira hugsaður sem take-away staður en þó er einnig hægt að setjast niður og borða. Á matseðlinum má sjá að réttirnir eru merktir með chili-merkjum sem tákna styrkleika réttanna, eitt chili-merki er frekar milt en þeir sem þola ekki sterkan mat ættu frekar að panta sér rétt án chili-merkis. Tvö chili-merki tákna að rétturinn sé miðlungs-sterkur, þrjú að hann sé sterkur og fjögur að rétturinn sé mjög sterkur og það á við tælenskan mælikvarða. Ekki er hægt að skila eða skipta neinu, passaðu því vel að panta ekki svakalega sterkan rétt sem þú getur svo ekki borðað. Matseðillinn inniheldur ýmislegt áhugavert og einnig höfum við Thai street food matseðill, þú getur séð það á yummi matseðill á heimasíðunni okkar www.banthai.is eða www.yummy.is (BanThai er besti tælenski veitingastaðurinn á Íslandi, hann hefur m.a. verið kosinn það á hverju ári af The Reykjavík Grape- vine. Einnig var hann kosinn einn af 10 bestu veitingastöðu- num á Íslandi í DV. 17.06.2011. Staðurinn hefur verið starfandi í 28 ár og bjóðum við upp á ekta tælenskan mat alveg eins og hann er í Tælandi en við notum aldrei MSG og aukaefni).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.