Morgunblaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018 HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is Q5 á sérkjörum Nokkrir einstaklega vel útbúnir Audi Q5 á sérkjörum og til afhendingar strax. Audi Q5 Quattro Sport Comfort 2.0 190 hö 18” álfelgur 5-arma design Bílhitari með fjarstýringu (olíumiðstöð) Dráttarbeisli innfellanlegt LED aðalljós og LED afturljós Þriggja svæða stafræn miðstöð með loftkælingu Audi Sound System 10 hátalara 180W Audi Smartphone interface - Apple Carplay Sportsæti með dökkgráu tauáklæði Rafdrifinn mjóbaksstuðningur Aksturstölva í mælaborði í lit Rafmagnsopnun á skotthlera Fjarlægðaskynjarar að framan og aftan Bakkmyndavél Hraðastillir Listaverð 9.100.000 kr. Tilboðsverð 7.890.000 kr. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@mbl.is Blæbrigðamunur er á röksemdum ákæruvaldsins og verjenda fyrir sýknukröfu í endurupptöku á Guð- mundar- og Geirfinnsmáli sem tekin er fyrir í Hæstarétti í dag. Það er ein helsta ástæðan fyrir því að munnleg- ur málflutningur fer fram, en bæði ákæruvaldið og verjendur krefjast sýknu í málinu. Málið er fyrir margar sakir óvenjulegt, ekki síst af því ákæru- valdið krefst einnig sýknu. Davíð Þór Björgvinsson, settur ríkissak- sóknari í endurupptöku málsins, seg- ir eðlilegt að menn velti því fyrir sér af hverju verið er að fara í munn- legan málflutning ef aðilar máls eru sammála um þá niðurstöðu sem þeir vilja sjá. „Kjarninn í því er sá að við erum ekkert endilega sammála um öll smáatriði í rökstuðningi fyrir niður- stöðunni. Hitt er svo annað mál, að það er á valdi Hæstaréttar hvort sýknukrafan verður tekin til greina eða ekki. En að því gefnu að hann geri það þá greinir okkur á um rökin fyrir henni. Sá ágreiningur er ekki djúpstæður en hann er samt til stað- ar. Þess vegna er málið flutt í heyr- anda hljóði þannig að allir geti heyrt það sem fram fer,“ segir Davíð í sam- tali við mbl.is, en hann flytur málið fyrir hönd ákæruvaldsins. Sýknukrafa ákæruvaldsins er bæði byggð á nýjum gögnum og end- urskoðuðu mati á eldri gögnum sem geri það að verkum að ekki hafi tek- ist að sanna sekt svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa. Ekkert lík, enginn vettvangur Guðmundar- og Geirfinnsmálið er eitt stærsta og umtalaðasta sakamál Íslandssögunnar. Þjóðin stóð á önd- inni og fylgdist með framvindu þess á áttunda áratug síðustu aldar. Fyrst hvarfi tveggja karlmanna og svo því hvernig sex ungmenni voru dregin til ábyrgðar og fundin sek um að hafa banað þeim, þrátt fyrir að ekkert lík hafi fundist og skort á áþreifanlegum sönnunargögnum. Þá var enginn staðfestur brotavettvangur og fram- burður þótti óáreiðanlegur. Endurupptökunefnd féllst í febr- úar á síðasta ári á endurupptöku- beiðni allra dómfelldra í málinu nema Erlu Bolladóttur. Var það mat nefndarinnar að Erla hefði ekki sýnt fram á skilyrði laga um meðferð sakamála til að skilyrði til endurupp- töku væru uppfyllt. Sævar sótti um endurupptöku Með ákvörðun um endurupptöku fór málið, lögum samkvæmt, á sama stað og ef áfrýjunarstefna hefði verið gefin út, en endurupptakan snýst um að endurtaka beri meðferð málsins fyrir Hæstarétti sem gert verður í dag. Sævar hafði áður leitað eftir endurupptöku málsins fyrir Hæsta- rétti, árið 1994, en settur ríkissak- sóknari lagði þá til að beiðninni yrði hafnað. Í febrúar árið 1997 lagði tals- maður Sævars engu að síður fram greinargerð fyrir Hæstarétt þar sem þess var krafist að málið yrði endur- upptekið. Hæstiréttur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu síðar sama ár að skilyrðum til endurupp- töku væri ekki fullnægt. Það fékkst þó viðurkennt fyrir dómi að Sævar hefði sætt harðræði í gæsluvarð- haldi. Hann sat í gæsluvarðhaldi í rúm tvö ár, þar af 615 daga í ein- angrun, en slík einangrunarvist átti sér enga hliðstæðu hér á landi. Veigamiklar ástæður Sævar lést í júlí 2011 og í október sama ár skipaði innanríkisráðherra starfshóp um Guðmundar- og Geir- finnsmál sem falið var að fara yfir málið í heild, en sérstaklega þá þætti sem lytu að rannsókninni og fram- kvæmd hennar. Sama ár var það nið- urstaða könnunar MMR að 82% landsmanna væru hlynnt því að mál- ið yrði tekið upp á ný fyrir dómstól- um. Í mars 2013 skilaði starfshópur innanríkisráðherra skýrslu þar sem kom fram að veigamiklar ástæður væru fyrir því að taka málið upp að nýju. Einkum í ljósi afdráttarlausrar niðurstöðu sálfræðimats um að framburðir sakborninganna hefðu verið óáreiðanlegir. Í kjölfarið var settur saksóknari fenginn til að skila áliti til endurupptökunefndar og varð niðurstaðan að lokum sú að fimm beiðnir af sex voru samþykkt- ar. Dómarar í endurupptökumálinu eru hæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, forseti réttarins, Greta Baldursdóttir, Helgi Ingólfur Jóns- son, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Viðar Már Matthíasson. Mun málinu loksins ljúka núna?  Endurupptaka Guðmundar- og Geirfinnsmálsins hefst í Hæstarétti í dag  Bæði ákæruvald og verjandi krefjast sýknu í þessu umtalaðasta sakamáli Íslandssögunnar  Byggt á nýjum og gömlum gögnum Í dómsal Úr réttarhöldum í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu í Hæstarétti. Guðmundur og Geirfinnur Ein- arssynir hurfu báðir sporlaust árið 1974, annar í janúar og hinn í nóvember. Ungmennin sex, Sævar Ciesielski, Kristján Viðar Viðarsson, Tryggvi Rúnar Leifsson, Guðjón Skarphéð- insson, Albert Klahn Skaftason og Erla Bolladóttir, voru öll sakfelld í Hæstarétti árið 1980, fyrir aðild að hvarfi þeirra en hún var þó talin mismikil. Sævar var ákærður fyrir að bana báðum mönnunum og hlaut þyngstan dóm í málinu, eða 17 ára fangelsi. Kristján Viðar var ákærður fyrir að bana Geirfinni og hlaut sextán ára dóm. Tryggvi Rúnar var dæmdur fyrir að hafa banað Guðmundi og hlaut 13 ára dóm. Guðjón var ákærður fyrir að bana Geirfinni og fékk tíu ára dóm. Albert var ákærður fyrir að tálma rannsókn og fékk tólf mánaða dóm. Erla Bolladóttir var dæmd fyrir að- ild að hvarfi Geirfinns og fyrir að bera rangar sakargiftir á fjóra menn. Hún hlaut þriggja ára dóm. Öll sakfelld árið 1980 MISLANGIR DÓMAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.