Morgunblaðið - 13.09.2018, Qupperneq 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is
Q5 á sérkjörum
Nokkrir einstaklega vel útbúnir Audi Q5
á sérkjörum og til afhendingar strax.
Audi Q5 Quattro
Sport Comfort 2.0 190 hö
18” álfelgur 5-arma design
Bílhitari með fjarstýringu (olíumiðstöð)
Dráttarbeisli innfellanlegt
LED aðalljós og LED afturljós
Þriggja svæða stafræn miðstöð með loftkælingu
Audi Sound System 10 hátalara 180W
Audi Smartphone interface - Apple Carplay
Sportsæti með dökkgráu tauáklæði
Rafdrifinn mjóbaksstuðningur
Aksturstölva í mælaborði í lit
Rafmagnsopnun á skotthlera
Fjarlægðaskynjarar að framan og aftan
Bakkmyndavél
Hraðastillir
Listaverð 9.100.000 kr.
Tilboðsverð 7.890.000 kr.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@mbl.is
Blæbrigðamunur er á röksemdum
ákæruvaldsins og verjenda fyrir
sýknukröfu í endurupptöku á Guð-
mundar- og Geirfinnsmáli sem tekin
er fyrir í Hæstarétti í dag. Það er ein
helsta ástæðan fyrir því að munnleg-
ur málflutningur fer fram, en bæði
ákæruvaldið og verjendur krefjast
sýknu í málinu.
Málið er fyrir margar sakir
óvenjulegt, ekki síst af því ákæru-
valdið krefst einnig sýknu. Davíð
Þór Björgvinsson, settur ríkissak-
sóknari í endurupptöku málsins, seg-
ir eðlilegt að menn velti því fyrir sér
af hverju verið er að fara í munn-
legan málflutning ef aðilar máls eru
sammála um þá niðurstöðu sem þeir
vilja sjá.
„Kjarninn í því er sá að við erum
ekkert endilega sammála um öll
smáatriði í rökstuðningi fyrir niður-
stöðunni. Hitt er svo annað mál, að
það er á valdi Hæstaréttar hvort
sýknukrafan verður tekin til greina
eða ekki. En að því gefnu að hann
geri það þá greinir okkur á um rökin
fyrir henni. Sá ágreiningur er ekki
djúpstæður en hann er samt til stað-
ar. Þess vegna er málið flutt í heyr-
anda hljóði þannig að allir geti heyrt
það sem fram fer,“ segir Davíð í sam-
tali við mbl.is, en hann flytur málið
fyrir hönd ákæruvaldsins.
Sýknukrafa ákæruvaldsins er
bæði byggð á nýjum gögnum og end-
urskoðuðu mati á eldri gögnum sem
geri það að verkum að ekki hafi tek-
ist að sanna sekt svo hafið væri yfir
skynsamlegan vafa.
Ekkert lík, enginn vettvangur
Guðmundar- og Geirfinnsmálið er
eitt stærsta og umtalaðasta sakamál
Íslandssögunnar. Þjóðin stóð á önd-
inni og fylgdist með framvindu þess
á áttunda áratug síðustu aldar. Fyrst
hvarfi tveggja karlmanna og svo því
hvernig sex ungmenni voru dregin til
ábyrgðar og fundin sek um að hafa
banað þeim, þrátt fyrir að ekkert lík
hafi fundist og skort á áþreifanlegum
sönnunargögnum. Þá var enginn
staðfestur brotavettvangur og fram-
burður þótti óáreiðanlegur.
Endurupptökunefnd féllst í febr-
úar á síðasta ári á endurupptöku-
beiðni allra dómfelldra í málinu
nema Erlu Bolladóttur. Var það mat
nefndarinnar að Erla hefði ekki sýnt
fram á skilyrði laga um meðferð
sakamála til að skilyrði til endurupp-
töku væru uppfyllt.
Sævar sótti um endurupptöku
Með ákvörðun um endurupptöku
fór málið, lögum samkvæmt, á sama
stað og ef áfrýjunarstefna hefði verið
gefin út, en endurupptakan snýst um
að endurtaka beri meðferð málsins
fyrir Hæstarétti sem gert verður í
dag. Sævar hafði áður leitað eftir
endurupptöku málsins fyrir Hæsta-
rétti, árið 1994, en settur ríkissak-
sóknari lagði þá til að beiðninni yrði
hafnað. Í febrúar árið 1997 lagði tals-
maður Sævars engu að síður fram
greinargerð fyrir Hæstarétt þar sem
þess var krafist að málið yrði endur-
upptekið. Hæstiréttur komst hins
vegar að þeirri niðurstöðu síðar
sama ár að skilyrðum til endurupp-
töku væri ekki fullnægt. Það fékkst
þó viðurkennt fyrir dómi að Sævar
hefði sætt harðræði í gæsluvarð-
haldi. Hann sat í gæsluvarðhaldi í
rúm tvö ár, þar af 615 daga í ein-
angrun, en slík einangrunarvist átti
sér enga hliðstæðu hér á landi.
Veigamiklar ástæður
Sævar lést í júlí 2011 og í október
sama ár skipaði innanríkisráðherra
starfshóp um Guðmundar- og Geir-
finnsmál sem falið var að fara yfir
málið í heild, en sérstaklega þá þætti
sem lytu að rannsókninni og fram-
kvæmd hennar. Sama ár var það nið-
urstaða könnunar MMR að 82%
landsmanna væru hlynnt því að mál-
ið yrði tekið upp á ný fyrir dómstól-
um.
Í mars 2013 skilaði starfshópur
innanríkisráðherra skýrslu þar sem
kom fram að veigamiklar ástæður
væru fyrir því að taka málið upp að
nýju. Einkum í ljósi afdráttarlausrar
niðurstöðu sálfræðimats um að
framburðir sakborninganna hefðu
verið óáreiðanlegir. Í kjölfarið var
settur saksóknari fenginn til að skila
áliti til endurupptökunefndar og
varð niðurstaðan að lokum sú að
fimm beiðnir af sex voru samþykkt-
ar.
Dómarar í endurupptökumálinu
eru hæstaréttardómararnir Þorgeir
Örlygsson, forseti réttarins, Greta
Baldursdóttir, Helgi Ingólfur Jóns-
son, Ólafur Börkur Þorvaldsson og
Viðar Már Matthíasson.
Mun málinu loksins ljúka núna?
Endurupptaka Guðmundar- og Geirfinnsmálsins hefst í Hæstarétti í dag Bæði ákæruvald og verjandi
krefjast sýknu í þessu umtalaðasta sakamáli Íslandssögunnar Byggt á nýjum og gömlum gögnum
Í dómsal Úr réttarhöldum í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu í Hæstarétti.
Guðmundur og Geirfinnur Ein-
arssynir hurfu báðir sporlaust
árið 1974, annar í janúar og
hinn í nóvember. Ungmennin
sex, Sævar Ciesielski, Kristján
Viðar Viðarsson, Tryggvi Rúnar
Leifsson, Guðjón Skarphéð-
insson, Albert Klahn Skaftason
og Erla Bolladóttir, voru öll
sakfelld í Hæstarétti árið 1980,
fyrir aðild að hvarfi þeirra en
hún var þó talin mismikil.
Sævar var ákærður fyrir að
bana báðum mönnunum og
hlaut þyngstan dóm í málinu,
eða 17 ára fangelsi. Kristján
Viðar var ákærður fyrir að
bana Geirfinni og hlaut sextán
ára dóm. Tryggvi Rúnar var
dæmdur fyrir að hafa banað
Guðmundi og hlaut 13 ára
dóm. Guðjón var ákærður fyrir
að bana Geirfinni og fékk tíu
ára dóm. Albert var ákærður
fyrir að tálma rannsókn og
fékk tólf mánaða dóm. Erla
Bolladóttir var dæmd fyrir að-
ild að hvarfi Geirfinns og fyrir
að bera rangar sakargiftir á
fjóra menn. Hún hlaut þriggja
ára dóm.
Öll sakfelld
árið 1980
MISLANGIR DÓMAR