Morgunblaðið - 13.09.2018, Page 40
40 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018
BAKSVIÐ
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Um tíma hafa menn gert sér grein
fyrir því að höfin væru á góðri leið
með að verða að ruslakistu fyrir
plastumbúðir hvers konar og að í
óefni stefndi ef ekkert væri að
gert. Nú hefur hollensk sjálfseign-
arstofnun ákveðið að bíða ekki
lengur eftir aðgerðum af hálfu hins
opinbera heldur lagt til styrjaldar
við plastið í sjónum. Síðastliðinn
laugardag lét úr höfn í San Franc-
isco í Kaliforníu í Bandaríkjunum
skip þess, Ocean Cleanup.
Á eftir sér dró skipið 600 metra
langa fljótandi bómu sem króar
fljótandi plastleifar og heldur þeim
í girðingu uns þær eru háfaðar
upp. Í fyrstu verða prófanir gerðar
á búnaðinum undan Kaliforn-
íuströndum áður en siglt verður á
„Stóra Kyrrahafsruslablettinn“
(GPGP) svonefnda. Hann er að
finna í Norður-Kyrrahafi á belti
sem liggur nokkurn veginn milli
Japans og Kaliforníu.
Áttuðu menn sig á tilvist hans
fyrir um þremur áratugum en fljót-
andi rusl hefur fyrir verkan haf-
strauma og veðurfars stöðvast á
því svæði og hringsnýst innan þess.
Hefur flekkurinn stækkað stöðugt.
Stórtæk áform
Verkefnið „hafhreinsunin“ sem
hollenska stofnunin stendur fyrir
er afar metnaðarfullt. Áætlar hún
að hreinsa helming blettsins á inn-
an við fimm árum eftir að allur
skipa- og tækjabúnaður er kominn
á vettvang.
Að baki er fimm ára undirbún-
ingur og prófanir á litlum eftirlík-
ingum af bómunni. „Um þetta
snýst allt, þetta er hápunkturinn
hingað til í allri vinnu okkar,“ sagði
Boyan Slat, 24 ára hollenskur for-
stjóri og stofnandi fyrirtækisins
„The Ocean Cleanup“, þegar skipið
lét úr höfn í San Francisco.
Undir skafheiðum himni sigldi
þjónustuskipið út undir Golden
Gate-brúna og út San Francisco-
flóann og fylgdi því floti seglskúta,
skemmtibáta og kajaka. Á eftir sér
dró það hina 600 metra löngu bómu
sem hönnuð er til að grípa það sem
flýtur inn í hana svo moka megi
það upp og senda í endurvinnslu.
Niður úr bómunni skagar stallað
þriggja metra pils sem ætlað er að
góma plast sem marar í kafi eða
leynist rétt undir yfirborðinu.
12 sinnum stærri en Ísland
Fyrsta hálfa mánuðinn verður
Ocean Cleanup við prófanir um 240
sjómílur undan Kaliforníuströnd-
um. Þaðan mun leiðin svo liggja á
ruslablettinn ógurlega, sem mun
vera tvisvar sinnum stærð Frakk-
lands, eða sem svarar 12 sinnum
stærð Íslands, en hann er um
miðja vegu milli Kaliforníu og
Havaí.
„Megintilgangurinn er að sýna
að þetta getur virkað. Væntanlega
að nokkrum mánuðum liðnum
munu svo fyrstu plastfarmarnir
berast á land. Gangi það eftir er
sönnun fyrir ágæti tækninnar feng-
in,“ sagði fyrrnefndur Slat við
AFP-fréttastofuna er hann fylgdist
með skipinu leggja úr höfn. „Það
þýddi að við gætum hafið umfangs-
meiri hreinsun með allt að 60 skipa
flota,“ bætti hann við.
Laurent Lebreton, haffræðingur
og leiðangursstjóri, segir leiðang-
ursmenn áætla að á Kyrrahafs-
ruslablettinum sé að finna um
80.000 tonn af plastúrgangi. „Plast
byrjaði að safnast fyrir í höfunum á
sjötta áratug síðustu aldar, fyrir
rúmum sextíu árum,“ sagði Lebre-
ton við AFP-stofuna. Vísindamenn
fréttu fyrst af samþjöppun fljótandi
plasts á ruslablettinum á Kyrrahafi
á áttunda áratugnum, segir hann.
Hann segir plastið aðallega berast
með ám út á höfin en ásamt plast-
Háfa plastrusl upp úr höfunum
Hverja einustu sekúndu sem
klukkan tifar lætur nærri að fleygt
sé í höfin 250 kílóum af einnota
plasti, eða átta milljónum tonna á ári
AFP
Hugsjónamaður Hollenski uppfinningamaðurinn Boyan Slat hvílir sig milli
við tala á meðan Ocean Cleanup er dregin út úr San Francisco-flóa.
Barist við plastið Ocean Cleanup bóman dregin út á Kyrrahaf undir
Golden Gate brúna í San Francisco í vikunni. Gerðar verða tilraunir
til að hreinsa plast úr á Kyrrahafsruslablettinum mikla.
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Komið og skoðið úrvalið
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Klassísk gæða húsgögn
á góðu verði
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði
Útsalan í fullum gangi
30-60%
afsláttur
af völdum
vörum
Undirföt • Sundföt • Náttföt • Sloppar