Morgunblaðið - 13.09.2018, Side 42

Morgunblaðið - 13.09.2018, Side 42
42 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018 Sterkir í stálinu Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar Svört- og ryðfrí rör og fittings Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur POM öxlar • PE plötur Lokar af ýmsum gerðum Opið virka daga kl. 8-17 Skútuvogi 4, Rvk Rauðhellu 2, Hafnarfirði Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is Fæst í Lyfjaveri Suðurlandsbraut, Apóteki Garðabæjar, Urðarapóteki, Reykjavíkur apóteki og Garðsapóteki. Fyrir þá sem vilja hætta að naga neglurnar LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646 GENUINE SINCE 1937 Atvinna Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Áhrif Rússa hafa aukist stórlega í Ungverjalandi á síðustu tveimur kjörtímabilum undir stjórn Viktors Orbans, forsætisráðherra landsins, sem hefur misst trúna á frjálslynt lýðræði Vesturlanda. „Nýja ríkið sem við erum að reisa er ófrjálslynt ríki,“ sagði Orban í ræðu skömmu eftir að hann var endurkjörinn árið 2014. Hann lét í ljós áhuga á „stjórnkerfum sem eru ekki vestræn, ekki frjálslynd, ekki frjálslynt lýðræði, og eru jafnvel ekki lýðræði og hafa samt gert lönd- in farsæl,“ bætti hann við og skír- skotaði til landa á borð við Rússland, Tyrkland og Kína. „Við erum að leita að leiðum til að segja skilið við vestrænar kreddur og reynum okk- ar besta til að finna þær leiðir.“ Þegar Orban var forsætisráð- herra á árunum 1998 til 2002 lagði hann áherslu á að tryggja að Ung- verjaland fengi aðild að Atlantshafs- bandalaginu og draga úr áhrifum Rússa eftir að landið hafði verið á meðal fylgiríkja Sovétríkjanna. Þeg- ar hann komst aftur til valda árið 2010 sneri hann við blaðinu og hóf nánara samstarf við Rússland sem hann lítur nú á sem fyrirmynd frek- ar en vestrænu lýðræðisríkin. „Or- ban trúir því einlæglega að Vestur- löndum sé að hnigna og að bestu dagar Evrópusambandsins og NATO séu taldir,“ hefur The Wall Street Journal eftir Ungverjanum David Koranyi, fræðimanni við hug- veituna Atlantic Council í Wash- ington. „Hann er nógu raunsær og hagsýnn til að halda Ungverjalandi í ESB og NATO enn um sinn vegna þess að peningarnir sem landið fær og öryggistryggingarnar hafa enn þýðingu fyrir það. Hann lítur hins vegar á 21. öldina sem uppgangs- tímabil annars konar stjórnarhátta, fyrirmyndarinnar í austri.“ Stjórn Orbans hefur verið gagn- rýnd fyrir að brjóta gegn lýðræðis- reglum og gildum Vesturlanda, m.a. með ráðstöfunum til að herða tök stjórnarflokksins á dómstólum, fjöl- miðlum og seðlabanka landsins. The Wall Street Journal segir að sendi- Hafnar frjáls- lyndu lýðræði Vesturlanda  Áhrif Rússa hafa stóraukist í Ung- verjalandi í valdatíð Viktors Orbans Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar og formaður Sósíaldemó- krata, hafnaði í gær tilboði banda- lags fjögurrra hægri- og miðflokka um að Sósíaldemókratar styddu ríkisstjórn þeirra eftir að nýtt þing verður sett. Leiðtogar flokkanna fjögurra lögðu tillöguna fram í grein í Dagens Nyheter. Þar segjast þeir óska eftir samstarfi í málaflokkum sem séu mikilvægir til langs tíma og nefna sérstaklega stefnuna í málefnum innflytjenda, húsnæðis-, lífeyris-, ör- yggis og varnarmálum. Í greininni segir að tilboð hægribandalagsins standi jafnvel þótt bandalagið verði með fleiri þingsæti en vinstriflokk- arnir þrír. Löfven sagði á blaðamannafundi í þinghúsinu í Stokkhólmi að ekki kæmi til greina að Sósíaldemókratar yrðu stuðningsflokkur hægristjórn- ar. Samsetning ríkisstjórnar yrði að ráðast af lokaniðurstöðum kosning- anna. Enn var eftir að telja utankjör- fundaratkvæði í gær og ekki var bú- ist við að talningu lyki fyrr en á morgun. Eins og staðan er nú hefur hægribandalagið alls 143 þingsæti, einu færra en vinstriflokkarnir þrír. Svíþjóðardemókratar eru með 62 sæti. Ekki þarf þó mikið að gerast til að Sósíaldemókratar missi einn mann yfir til hægribandalagsins. Að sögn sænskra fjölmiðla hafa hægri- og miðflokkarnir fjórir ekki í hyggju að leita eftir samstarfi við Svíþjóðardemókratana. AFP Lokatalna beðið Atkvæði talin í Malmö. Enn er eftir að telja utankjörfund- aratkvæði í þingkosningunum sem fóru fram í Svíþjóð á sunnudaginn var. Vill ekki styðja hægristjórn  Löfven hafnar tilboði hægribandalags Gert er ráð fyrir að 18,1 milljón manna greinist með krabbamein og 9,6 milljónir manna deyi af völdum sjúkdómsins í heiminum í ár, samkvæmt nýrri skýrslu Al- þjóðlegu krabbameinsrannsókna- stofnunarinnar (IARC). Dauðs- föllin verða 1,4 milljónum fleiri en árið 2012 og er það meðal annars rakið til þess að öldruðum hefur fjölgað. Ein af niðurstöðum skýrsl- unnar er að einn af hverjum fimm karlmönnum og ein af hverjum sex konum séu líkleg til að grein- ast með krabbamein einhvern tíma á ævinni. Skýrslan byggist á könnun á ný- gengi og dauðsföllum í 185 lönd- um. Hún leiddi í ljós að þriðjungur dauðsfallanna er af völdum krabbameins í lungum, brjóstum kvenna og í þörmum. Reykingar eru meginástæða þess að fleiri konur greinast með lungnakrabba- mein en nokkru sinni fyrr. Krabbameinstilfellin eru algeng- ust í Bandaríkjunum, Ungverja- landi, Danmörku, Kína og Nýja- Sjálandi, miðað við höfðatölu. KRABBAMEINSRANNSÓKNIR Dauðsföllum vegna krabbameins fjölgar Níu ára áströlsk stúlka, sem neit- aði að standa þegar þjóð- söngur Ástralíu var fluttur, hefur mátt sæta gagn- rýni valdamikilla stjórnmála- manna. Sumir þeirra hafa hvatt til þess að hún verði rekin úr skóla fyrir uppá- tækið, að sögn CNN. Stúlkan segist hafa setið þegar þjóðsöngurinn var fluttur vegna þess að hún telji hann óvirðingu við ástralska frumbyggja. Í þjóð- söngnum er talað um unga, ljósa þjóð og segir stúlkan þar eingöngu vísað til hvítra íbúa Ástralíu. „Þeg- ar talað er um að við séum ung þjóð þá er alveg horft fram hjá því að frumbyggjarnir voru hér í 50.000 ár á undan okkur.“ ÁSTRALÍA Gagnrýnd fyrir að virða ekki þjóðsöng

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.