Morgunblaðið - 13.09.2018, Side 56
56 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Höfuðlausnir
Voss-Helme hjálmar og hjálmhúfur
Þýsk gæðavara framleidd í samræmi við
EN 397 og EN 812.
Til í öllum regnbogans litum.
Allir koma þeir með 6-punkta höfuðneti, með svitabandi og
stillihnapp til að tryggja örugga setu á höfði.
Hægt að fá með eða án hökubands.
Vertu klár í kollinum
Árný Jóna Sigurðardóttir, deildarstjóri á leikskólanum Örk áHvolsvelli, á 40 ára afmæli í dag. Hún er búin að starfa þar ísextán ár. 90 börn eru á leikskólanum sem er sá eini á Hvols-
velli, en 22 börn eru á deildinni hennar Árnýjar, þar sem eru þriggja
til fjögurra ára börn.
Árný er fædd og uppalin á Hvolsvelli og hefur alltaf búið þar fyrir
utan þegar hún var að læra leikskólakennarann í Kennaraháskól-
anum. „Það kom aldrei annað til greina en að snúa aftur.“ Fyrir utan
að vera deildarstjóri á Örk skúrar Árný hjá Sýslumannsembættinu á
Hvolsvelli.
Áhugamál Árnýjar eru prjónaskapur, útivera, hreyfing og ferða-
lög. „Ég er búin að prjóna frá því að ég var krakki. Ég prjóna á fjöl-
skylduna og líka fyrir ættingja og vini. Ég prjóna bara allt saman,
peysur, húfur, ungbarnagalla. Svo hekla ég reyndar líka, borðtuskur,
dúka og trefla. Svo er ég í frábærum saumaklúbbi sem heitir Prjóna-
kellur og þar eru allar að prjóna, hekla eða sauma út.“
Í sumarfríinu skellti Árný sér til Tenerife ásamt fjölskyldunni. „Það
var gott að komast í smá sól, en það var rigning í allt sumar hjá okkur
hérna. Ég held að við höfum fengið þrjá sólardaga.“
Árný verður að vinna í dag en ætlar að halda kaffiboð fyrir fjöl-
skylduna um helgina.
Eiginmaður Árnýjar er Sveinbjörn Már Birgisson, vélvirki hja vél-
smiðjunni Magna. Börn þeirra eru Emelía Sif 13 ára, Sigurður Kári 10
ára og Oddný Sif 8 ára.
Fjölskyldan Árný Jóna, Sveinbjörn og börn stödd á Tenerife í sumar.
Komst í sól erlendis
eftir rigningarsumar
Árný Jóna Sigurðardóttir er fertug í dag
G
unnar Skúli fæddist í
Reykjavík 13.9. 1968,
ólst upp í Laugarnes-
hverfinu fyrstu 10 ár
ævinnar en þá flutti
fjölskyldan í Mosfellsbæ. Hann var
í sveit í Dalseli við Markarfljótið og
í Haga í Grímsnesi í nokkur sumur.
Gunnar var í Laugarnesskóla,
lauk gagnfræðaprófi frá Gagn-
fræðaskólanum í Mosfellsbæ og
lauk prófum í bakaraiðn í Iðnskól-
anum í Reykjavík 1989.
Gunnar var á iðnsamningi og
varð síðan bakari hjá Mosfellsbak-
aríi og síðan hjá Sveini bakara.
Hann hóf störf hjá Domino’s pizza
þegar fyrirtækið hóf starfsemi
1993, varð framkvæmdastjóri Dom-
ino’s pizza 2004, varð síðan fram-
Gunnar Skúli Guðjónsson framkvæmdastjóri – 50 ára
Fjölskyldan T.fr.v.: Steinunn, Gunnar Skúli. Valdimar, Melkorka, Ragnheiður, Ágústa og loks Stefanía.
Úr pítsunum í Subway
og þaðan í fasteignir
Feðginin Gunnar Skúli með dóttur sinni, Sigríði margmiðlunarfræðingi.
Vinkonurnar Saba Jas-
sim, Sigríður Lilja og Jó-
hanna Hilda héldu tom-
bólu til styrktar Rauða
krossinum. Söfnunin fór
fram í Miðbæ við
Háaleitisbraut og söfn-
uðust alls 9.379 kr.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frámerkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is