Morgunblaðið - 13.09.2018, Page 61

Morgunblaðið - 13.09.2018, Page 61
þrykki Morgunblaðið/Árni Sæberg Ætingar Röð ætinga eftir Magnús Þór Jónsson – Megas og mannlýsingar eftir Birgi Andrésson. nefnist Prent & vinir. Aðferðir graf- íklistarinnar eru margar, sumar mjög aðgengilegar, aðrar byggja á flókinni tækni, vélbúnaði og efna- fræði. Listamenn þurfa oft að starfa með prentmeisturum á grafíkverk- stæðum. Nærvera Prents & vina á sýningunni er góð og er sýningar- gestum boðið að fylgjast með tilurð prentverka af ýmsu tagi og fá jafn- framt innsýn í aðferðir, efni og ferli sem kveikja sköpunarnautn á borð við þá sem Sara Riel lýsir – og býr raunar í verkum allra listamann- anna. Ungur svissneskur gestalista- maður á verkstæðinu útskýrir fyrir greinarhöfundi tilurð prentverks; myndraðar sem samanstendur af sex þrykkjum með muldu hrauni frá Snæfellsjökli (í einu upplagi). Við skoðum saman svart duft í krukku, plötuna og pressuna. Fyrsta prentið þrykkti hann í janúarmánuði, þá ný- kominn til dvalar hér á landi (á Snæ- fellsnesi) og illa haldinn af skamm- degisþyngslum, en hið síðasta, með þverrandi dufti, á bjartri júnínótt. Stígandi í lit – frá svörtu yfir í ljóst – endurspeglar vaxandi birtu, jafnt úti sem í sálartetrinu. Eins og nær- vera prentverkstæðisins leiðir í ljós er í sköpunarferlum grafíkurinnar gjarnan fólgin ánægja sem sprettur af samskiptum og miðlun. Þanþol og skörun Listrænt samstarf einkennir mjög samtímamyndlist sem og það vinnulag listamanna að velja ein- faldlega þá aðferð, tækni eða miðla sem henta hverju sinni – og grafíkin býr yfir ýmsum kostum í þeim efn- um; hún getur brugðið sér í „ýmissa kvikinda líki“. Hún hentar jafnt listamönnum sem vilja þróa ákveðnar aðferðir, myndmál eða hugmyndir, og þeim sem eru leit- andi og tilraunasæknir. Og grafík- miðillinn er á hárréttum stað í tæknilegum veruleika samtímans. Listasagan geymir mörg dæmi um listamenn sem fengust við allt í senn, svo sem olíu- og vatnslita- málun, teikningu, grafík, skúlptúr eða textíl, svo og ljósmyndun og kvikmyndaformið á seinni tímum. Það sem einkennir hins vegar 20. aldar myndlist, og hefur orðið við- tekið í listsköpun síðustu áratuga, er blendingsformið. Í einþrykki Söru Riel, „Barabarrtré“, skarast ólíkir miðlar – ljósmyndun, stafrænt prent, teikning og málaralist – og þannig nær hún fram sérstökum áhrifum og dýpt sem gefur hug- myndinni að baki verkinu sannfær- andi vigt. Í litógrafíum (steinþrykki) Sigurðar Árna Sigurðssonar, „Leið- réttingar“, renna saman í eina heild fundnar ljósmyndir og teikning listamannsins. Skúlptúr Eyglóar Harðardóttur er jafnframt (hand- unnið) bókverk, offsetprentað með gata- og beygjuröndum, og jafn- framt vettvangur skynjunarpælinga listamannsins þar sem mætast rým- isvirkni skúlptúrsins, pappírsnánd og hreyfanleiki bókarformsins. Verk Eyglóar býður upp á virka skyn- ræna þátttöku, hvort sem horft er á það sem rýmisverk eða farið um það höndum. Fjölfeldi og miðlun Gott grafíkverk er söluvænlegt enda hafa fleiri efni á að kaupa slíkt verk en til dæmis málverk. Þetta getur skipt máli fyrir framfærslu listamanna en skiptir einnig miklu máli þegar kemur að dreifingu. Upp úr miðri 20. öld sáu framsæknir listamenn sér leik á borði í viðleitni til að færa listina nær lífinu; grafík- verk og prentverk ýmiss konar var þannig í senn upprunalegt höfund- arverk og fjölfeldi (gefið út í ákveðnu upplagi), ódýrt og hag- kvæmt til framleiðslu og dreifingar. Dieter Roth var frumkvöðull á þessu sviði, hvers kyns prenttækni lék í höndunum á honum og hug- myndaflug hans virtist ótakmarkað. Á sýningunni getur að líta SÚM- veggspjald frá 1965, unnið af Dieter, offsetprentað, brotið saman og sent í pósti út í heim – og hafði sitt að segja um að listamannahópurinn SÚM komst á kort alþjóðlegrar myndlistar. Á sýningunni getur að líta bókverk eftir Björk Guðmunds- dóttur, „Um Úrnat“, sem hún gaf út í 100 offsetprentuðum eintökum, en verkinu fylgir sú saga að það hafi verið gert til að skrapa saman fyrir húsaleigu. Ekki er vitað um sölu- árangurinn en bókverkið stendur fyrir sínu sem listræn tjáning og átti þátt í að sá fræjum sköpunarævin- týris sem tók fljótt að spíra. Helgi Þorgils Friðjónsson, sem er afar lið- tækur grafíklistamaður og á níu æt- ingar á sýningunni, orðar það svo: „bók eða prentverk, sem getur bor- ist milli margra handa, fær nýja merkingu á hverjum stað. Dreif- ingin er í sjálfu sér hluti af ferlinu. Sá þáttur stækkar sýningarrýmið.“ Margir muna eflaust eftir þeirri miklu uppsveiflu í grafík sem ein- kenndi 7. og 8. áratuginn hér landi, en þá komu frá mörgum góðum listamönnum upplög af grafík- verkum sem mörg hver fjölluðu um kvennabaráttu, neysluhyggju eða önnur málefni. Þessi verk hanga nú víða á stofnunum og heimilum. Síð- an hefur minna borið á grafíkinni en nú er hún aftur komin á siglingu, og kjölfestan er góð. Eins og sýningin Ýmissa kvikinda líki undirstrikar er þrykkið sígildur og víðfeðmur tján- ingarmiðill sem listamenn sækja í á öllum tímum til að skapa mynd eftir mynd, hver á sinn hátt. Morgunblaðið/Árni Sæberg Prentverkstæði Innsetning Prents & vina, prentverkstæði í sýningarsalnum, þar sem ungir listamenn hafa unnið að grafíkverkum meðan á sýningunni Ýmissa kvikinda líki – íslensk grafík hefur staðið í Listasafni Íslands. MENNING 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018 Bandaríski söngvarinn Frankie Valli og hljómsveit hans The Four Sea- sons halda tónleika í Laugardalshöll 8. desember næstkomandi. Valli er orðinn 84 ára og á tugi smella að baki. Hann hóf feril sinn sem for- sprakki The Four Seasons á sjöunda áratugnum og vakti fljótt athygli fyrir kraftmikla söngrödd sína. Af þekktum lögum Valli má nefna „Can’t Take My Eyes Off You“, „Big Girls Don’t Cry“ og titillag kvik- myndarinnar Grease. Jón Bjarni Steinsson, skipuleggj- andi tónleikanna, segist lengi hafa verið aðdáandi Valli. Jón hefur kom- ið að skipulagi tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice en stendur sjálfur að tónleikunum með Valli og félögum. „Þetta er ég að gera í gegnum Dil- lon, barinn minn. Hann á 20 ára af- mæli á næsta ári og þetta er smá þjófstart fyrir afmælið,“ segir Jón Bjarni. „Frankie Valli hefur verið í uppáhaldi hjá mér frá því ég man eftir mér og svo sá ég að hann væri enn að spila og tékkaði á þessu, komst að því að þetta væri hægt og ég skellti mér bara á þetta.“ Jón Bjarni segir Valli eiga mjög mörg fræg lög en söngvarinn var innlimaður í Frægðarhöll rokksins með The Fous Seasons árið 1990. Jón Bjarni segir merkilegt að Valli nái enn háu tónunum, kominn á þennan aldur. „Og vikuna á undan er hann að spila í 02 höllinni í London og Manchester Arena,“ segir hann en þeir tónleikastaðir eru margfalt stærri en Laugardalshöll. –Þetta verða væntanlega tón- leikar með úrvali af bestu lögunum hans? „Jú, jú, ef þú skoðar lagalistana hans á síðustu tónleikum þá er hann að taka þessa slagara, þessi vinsæl- ustu lög, en þau eru mjög mörg. Tónleikarnir verða um ein og hálf klukkustund,“ svarar Jón Bjarni. Frankie Valli og The Four Sesasons í Laugardalshöll Enn að Frankie Valli á tónleikum. /////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////// ///////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.