Morgunblaðið - 13.09.2018, Síða 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18,
mánudaga - föstudaga 11-18:30
NANOK motta. 100% ull.
140x200 cm. 44.900 kr. Nú 29.900 kr.
170x240 cm. 64.900 kr. Nú 44.900 kr.
RÝMUM FYRIR
NÝJUM VÖRUM
25-50% af völdum vörum
Lýkur sunnudaginn 16. september
Franska sópransöngkonan Véroni-
que Gens syngur einsöng úr laga-
flokknum Sumarnætur eftir Berlioz
á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands í kvöld kl. 19:30. Gens er
fastagestur við óperuhús á borð við
Covent Garden og Parísaróperuna.
Nýjasti geisladiskur hennar var val-
inn einn af diskum mánaðarins hjá
tímariti Gramophone. Stjórnandi er
Yan Pascal Tortelier.
Véronique Gens syngur
í Eldborg Hörpu í kvöld
FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 256. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir mun
fara í úrtökumót í Bandaríkjunum í
næsta mánuði. Mun hún þá freista
þess að endurnýja fullan keppnis-
rétt á LPGA-mótaröðinni banda-
rísku, þeirri sterkustu í heimi.
Ólafía mun leika í Norður-Karólínu
en hún þekkir sig vel í ríkinu því þar
var hún í háskóla á sínum tíma,
Wake Forrest-skólanum. »1
Ólafía reynir að end-
urnýja keppnisréttinn
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Tónlistarmaðurinn Jón Ólafsson
tekur á móti Þórhalli Sigurðssyni,
betur þekktum sem Ladda, í Saln-
um í kvöld kl. 20.30 í tónleikaröð-
inni Af fingrum fram. Laddi er ekki
aðeins einn fremsti gamanleikari
þjóðarinnar, heldur hæfileikaríkur
laga- og textasmiður. Á tónleikum
kvöldsins mun hann flytja lög úr
eigin smiðju á borð við Búkollu,
Austurstræti og Ég
pant spila á gítar.
Skipuleggjendur
tónleikanna lofa því
að grínið verði einn-
ig á sínum
stað.
Laddi syngur og sprell-
ar í Salnum í kvöld
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Eldur Árni Eiríksson, 15 ára grunnskólanemi og sjálf-
skipaður „fiktsérfræðingur með skrúfa-allt-í-sundur-
gráðu“, vakti mikla athygli á Facebook á dögunum þegar
hann óskaði þar eftir því að fá öll möguleg raftæki gefins
til að skrúfa í sundur og rannsaka.
„Foreldrar mínir hafa bannað mér allt sem er spenn-
andi eins og að skrúfa í sundur sjónvarpið, tölvuna, dvd-
spilarann og leikföng systkina minna. Ég er því að pæla
hvort einhvern langar til að gefa mér eitthvað skemmti-
legt til að rannsaka. Öll raftæki sem ég kemst í,“ ritaði
Eldur á síðu facebookhópsins Brasks og bralls og fékk
heldur betur öflug viðbrögð en hann hefur nú þegar feng-
ið gefins átta síma, tvær fartölvur, Playstation-leikjatölvu
og tvö sjónvarpstæki.
Áhuginn kom með föndri
„Þessi áhugi kom fyrir svona tveimur til þremur árum.
Þá fór ég að taka í sundur hluti hér heima; dótabíla og
eitthvað því tengt. Mér fannst það skemmtilegt en líka
vegna þess að mig vantaði plast til að föndra úr. Ég
föndraði meðal annars stand fyrir heyrnartól handa sjálf-
um mér því mig vantaði það,“ segir Eldur í samtali við
Morgunblaðið. Þess má geta að þegar blaðamaður hafði
samband við Eld var hann á leið í strætó með 60 tommu
sjónvarp sem hann hafði fengið gefins eftir auglýsinguna.
Hann segir að markmiðið með þessu fikti sé að opna
hluti og sjá hvernig þeir virka. Ef þeir eru bilaðir reynir
hann að komast að því hvernig hægt sé að laga þá og hef-
ur sankað að sér ýmsum aukahlutum úr öðrum raftækj-
um sem gætu mögulega leyst vandann. Hann fær hins
vegar ekki leyfi til að vaða í öll raftæki því sum þeirra
geta verið hættuleg. „Það sem mig langar rosalega að
taka í sundur – en mamma mín er búin að þvertaka fyrir –
er örbylgjuofn. Það er eitt í honum sem mig vantar og
það er straumbreytirinn eða „high voltage generator“.
Málið er bara að þeir eru allir stórhættulegir,“ segir Eld-
ur og segir að hægt sé að fá öflugt rafstuð úr örbylgju-
ofni.
Skilaboð á fjögurra tíma fresti
Eldur hefur sem fyrr segir fengið mjög góð viðbrögð
við auglýsingu sinni og reynir nú að sækja sem flest raf-
tæki. „Ég er alltaf að fá ný og ný tilboð, kannski eitt á
fjögurra tíma fresti,“ segir Eldur.
Spurður hvort hann vilji leggja þetta fyrir sig í framtíð-
inni segir Eldur svo vera en markmið hans að loknum
grunnskóla er að fara til Danmerkur og læra raffræði.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á verkstæðinu Eldur segir að áhuginn á því að skrúfa hluti í sundur hafi kviknað fyrir nokkrum árum.
Þráir að skrúfa ör-
bylgjuofn í sundur
Eldur hefur fengið fjölda raftækja gefins til að fikta í