Morgunblaðið - 17.09.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2018
Við hjónin erum á sund-námskeiði. Byrjuðum ísíðustu viku að læraskriðsund upp á nýtt.
Höfum hvorugt náð því almenni-
lega þrátt fyrir að hafa mætt vel í
sundkennslu í barnaskóla.
Ég er lengi búinn að ætla að fara
á skriðsundsnámskeið, alveg síðan
ég fyrir ekki svo löngu komst að
því – mér mjög á óvart – að skrið-
sund er aðferð til þess að synda
langt og án mikillar fyrirhafnar.
Fyrir mér var þetta þveröfugt;
skriðsund var baráttusport fyrir
styttri vegalengdir. Mjög stuttar
vegalengdir í mínu tilviki. Frændi
konunnar minnar, mikill útivistar-
garpur, benti mér á skriðsunds-
aðferð sem kallast Total Immers-
ion fyrir nokkrum árum þegar við
vorum að ræða þetta. Ég keypti
samnefnda bók og heillaðist af að-
ferðafræðinni – sem gengur í
stuttu máli út á að skapa sem
minnsta mótstöðu við vatnið á
sundinu og nota sem minnsta orku.
En ég náði ekki að yfirfæra
aðferðafræðina úr bókinni yfir í
laugina. Það var því mikil hamingja
að komast að því að sundkennarinn
Þórður Ármannsson er að kenna
einmitt þessa sundaðferð og það í
mínum heimabæ, Mosfellsbæ.
Við erum búin með fyrstu vikuna
af fjórum á námskeiðinu og það lof-
ar virkilega góðu. Ég er að læra að
synda alveg upp á nýtt, skref fyrir
skref, og finnst það frábært. Lík-
amsstaðan í vatninu skiptir öllu
máli. Sömuleiðis að vera slakur,
ekki stífur og með spennta vöðva.
Það er atriði sem ég hef þurft að
vinna með í öðrum íþróttum, hef,
ómeðvitað, notað of mikinn styrk
og spennu í aðstæðum þar sem ég
ætti að spara orku og vera mýkri.
Og í aðstæðum eins og göngu-
túrum. Ég átta mig stundum á því
þegar ég er úti að labba mér til
heilsubótar að ég er á yfirsnúningi,
bæði líkamlega og andlega. Labba
mjög hratt og ákveðið og er að
hugsa um allt of margt í einu.
Námskeið eins og þetta sem ég
er á núna geta kennt manni miklu
meira en bara það sem það á fyrst
og fremst að snúast um, ef maður
er móttækilegur og getur yfirfært
það sem maður lærir yfir á aðra
þætti í lífinu. Lífið snýst um jafn-
vægi. Stundum þarf maður að taka
vel á því, en á móti þarf maður líka
að geta slakað á og endurnýjað
þannig orkuna. Njótum ferðalags-
ins!
Læri að synda upp á nýtt
Morgunblaðið/Golli
Skriðsund Líkamsstaðan í vatninu skiptir öllu máli og að vera slakur, ekki stífur og með spennta vöðva.
Guðjón Svansson er Íslendingur,
ferðalangur, eiginmaður, fjögurra
stráka faðir, rithöfundur, fyrirles-
ari, ráðgjafi, þjálfari, mentor og
nemandi sem heldur úti bloggsíð-
unni njottuferdalagsins.is
Njóttu ferðalagsins
Guðjón Svansson
gudjon@njottuferdalagsins.is
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottu útliti.
Fatnaður fyrir fagfólk
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Um 6.500 fjár var dregið ídilka í Reykjaréttum áSkeiðum sem voru álaugardag. Fjölmenni
víða að kom í réttirnar; bæði bændur
og búalið af Skeiðum og úr Flóa og
svo margir sem mættu til að sýna sig
og sjá aðra. Réttardagurinn í sveit-
um landsins er jafnan dagur gleði og
samfunda, sérstök stund í íslenskri
alþýðumenningu. Réttarstörfin hóf-
ust um klukkan níu og var að mestu
lokið um hádegi, en þá var byrjað að
aka með féð á brott og heim á bæi,
ýmist á vögnum eða vörubílspöllum.
Tíu daga leiðangur
Engir smalar á Íslandi eiga
lengra að sækja en fjallmennirnir
sem fara á Flóa- og Skeiða-
mannaafrétt, sem nær frá hálend-
isbrúninni ofan við Þjórsárdal og al-
veg inn að Hofsjökli. Í allt er þetta
tíu daga leiðangur og í hópnum eru
20-30 manns: smalar, trússarar og
fleiri. „Þetta var mín fimmta ferð, ég
fór fyrst á fjall sextán ára og heill-
aðist. Þetta er baktería sem maður
losnar ekki við,“ segir Jón Gunnþór
Þorsteinsson á Syðra-Velli í Flóa.
Hann var meðal þeirra smala sem
fóru lengst, það er að Arnarfelli,
Hofsjökli og um Fjórðungssand. Og
meðan á fjallferðinni stóð varð Jón
Gunnþór tvítugur, það er sl. mið-
vikudag 12. september, en þann dag
var smalað í svonefndri Heljarkinn
sem vestan og ofan við Þjórsárdal.
Séð í grautarpotta
„Sennilega er ekki hægt að gera
neitt skemmtilegra á afmælinu sínu
en fara í svona ferðalag. Það eru
margir fallegir staðir á öræfunum,
en í þessari ferð stendur upp úr að
hafa komist upp á Hestfjallahnjúk
sem er sunnarlega á afréttinum.
Þaðan er ótrúlega víðsýnt, yfir land
og fram á sjó. Af þessum hnjúk sér
maður eiginlega ofan í grautarpott-
ana á öllum bæjum á stóru svæði í
uppsveitum Árnessýslu,“ segir Jón
Gunnþór.
Sérstök stund í
alþýðumenningu
Margir mættu í Reykjaréttir á Skeiðum í blíðuveðri á
laugardaginn. Féð kom vænt af afrétti, en fjallferð
smala úr Flóa og af Skeiðum er alls tíu dagar og
þurfa engir á landinu jafn langt að sækja.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Mæðgin Jón Gunnþór Þorsteinsson á Syðra-Velli og Margrét Jónsdóttir, móðir hans, í almenningi Reykjarétta.
Ráðherrann Sigurður Ingi í lopa-
peysu með merki Framsóknar.
Flóamenn Bræðurnir Páll, t.v.,
og Þorvaldur Þórarinssynir.
Félagar Steinþór Skúlason, forstjóri
SS, og Frosti Fannar afastrákur.