Morgunblaðið - 17.09.2018, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2018
Verumgáfuð ogborðum
fisk
Plokkfiskur
- Hollur kostur tilbúinn á 5mín.
Kveðja Grímur kokkur • www.grimurkokkur.is
Hollt og
fljótlegt[ ]
ÁNMSG
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Fellibylurinn Mangkhut, sem varð
um sextíu manns að bana á N-
Filippseyjum skall með ofsa á meg-
inlandi Kína í gær, eftir að hafa skil-
ið eftir sig slóð eyðileggingar í Hong
Kong og á Macau.
Skýjakljúfar svignuðu og tré féllu
þegar fellibylurinn fór yfir um 100
km sunnan við Hong Kong og slas-
aði yfir tvö hundruð manns.
Því næst hélt hann til borgarinnar
Jiangmen í suðurhluta Guandong-
héraðs en ríkissjónvarpið í Kína
hafði þegar í gær lýst því yfir að
tveir væru látnir vegna veðursins.
Yfirvöld í héraðinu sögðu að alls
hefðu um 2,37 milljónir íbúa forðað
sér frá heimilum sínum áður en
Mangkhut skall á, sem hefur fengið
viðurnefnið „Konungur fárviðranna“
í kínverskum fjölmiðlum.
Tjón í Hong Kong og á Macau
Veðuryfirvöld í Hong Kong gáfu
út viðvörun í hæsta flokki strax á
sunnudagsmorgun. Stuttu seinna
hóf bylurinn að brjóta rúður, fella
tré og rífa þök af húsum en sam-
kvæmt vefsíðu CNN náði vindhraði
um 63 m á sekúndu í hviðum.
Vatn var mittishátt á sumum göt-
um borgarinnar og var nánast öllu
flugi aflýst.
Í fyrsta skipti í sögu ríkisins var
öllum 42 spilavítum Macau lokað en
líkt og í Hong Kong fylltust margar
götur borgarinnar af vatni og þurfti
björgunarfólk sumt að fara um borg-
ina á sæköttum og gúmmíbátum við
björgunaraðgerðir.
Stórflóð í Karólínu
Ofsa- og stórflóð eiga sér nú líka
stað víða um Norður- og Suðurkar-
ólínuríki Bandaríkjanna, í kjölfar
fellibyljarins Flórens sem skall á
austurströnd landsins á föstudag.
Hann hefur nú orðið a.m.k. tylft
manna að bana en mestur skaði hef-
ur orðið í N-Karólínu þar sem yf-
irvöld hafa staðfest átta dauðsföll
sökum ofsaviðranna.
Fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna
(NHC) færði á laugardag Flórens
niður um flokk og flokkast hann nú
sem hitabeltislægð (e. Tropical de-
pression).
Eyðileggingin sem Flórens hefur í
för með sér er þó hvergi nærri geng-
in yfir, segja yfirvöld.
„Ofsaflóð og stórflóð í ám munu
halda áfram á stórum svæðum Kar-
ólínuríkjanna,“ sagði NHC.
Í samtali við fréttastofu Fox sagði
Brock Long, yfirmaður hjá Al-
mannavarnastofnun Bandaríkjanna
(FEMA): „Því miður eigum við
nokkra daga eftir,“ og bætti við að
eyðilegging og usli væri það sem
koma skyldi á svæðunum á næstu
dögum.
Reyna að halda heim
Á vefsíðu AFP segir frá því að
íbúar, sem flúið höfðu heimkynni
sín, hafi sumir reynt að snúa aftur
heim strax á laugardag. Þurftu þeir
að aka gegnum yfirflæddar hrað-
brautir og nota keðjusagir til að
hreinsa frá trjádrumba sem fallið
höfðu á vegina.
Roy Cooper, ríkisstjóri í N-
Karólínu, varaði við slíkri háttsemi
og sagði: „Allir vegir í ríkinu geta átt
á hættu að fá yfir sig flóð eins og
stendur.
Meðan vex í ám og rigning heldur
áfram munu flóð dreifast.“
Mitch Colvin, borgarstjóri Fa-
yetteville í N-Karólínu, beindi því til
íbúa að um lögboðna rýmingu í borg-
inni væri að ræða og ef fólk neitaði
að yfirgefa heimkynni sín ætti það
að láta nánustu ættingja sína vita því
mannfall væri mjög líkleg afleiðing.
„Það versta er enn ókomið,“ bætti
hann við að því er fram kemur á vef
BBC.
Fellibyljunum fylgja stórflóð
Mangkhut hefur yfirgefið Filippseyjar og er kominn til Kína Flórens hefur róast en flóðin ekki
59 látnir á Filippseyjum og tólf í Bandaríkjunum „Það versta er enn ókomið,“ segir borgarstjóri
Kona sem sakaði Brett Kavanaugh,
hæstaréttardómaraefni Donalds
Trumps, um kynferðislega áreitni í
nafnlausu bréfi hefur opinberað nafn
sitt. Washington Post greindi fyrst
frá en þar segir að fyrr í sumar hafi
Christine Blasey Ford sent demó-
kratanum Önnu Eshoo bréf þar sem
hún sagði frá atvikinu en hafi viljað
njóta nafnleyndar. Í síðustu viku
hafi bréfið verið birt án nafns Fords
og Kavanaugh hafi í kjölfarið af-
dráttarlaust og ótvírætt neitað ásök-
ununum. Ford hafi því ákveðið að
opinbera nafn sitt og sögu sína.
Á atvikið sem um ræðir að hafa átt
sér stað fyrir um þremur áratugum
þegar Ford og Kavanaugh voru
bæði í menntaskóla (e. High School)
á samkomu unglinga. Á Kavanaugh
þá að hafa, á meðan vinur hans
fylgdist með, yfirbugað Ford inni í
svefnherbergi, þuklað utan klæða á
henni og reynt að klæða hana úr föt-
unum.
Eins og áður segir neitaði Kav-
anaugh þegar bréfið kom fyrst fram
og sömuleiðis dró skrifstofa Hvíta
hússins efni þess í efa og sagði að
bakgrunnur Kavanaughs hefði þeg-
ar verið vandlega kannaður. Engin
frekari svör höfðu borist frá Kav-
anaugh eða Hvíta húsinu í gær-
kvöldi. teitur@mbl.is
AFP
Tilnefndur Ef rétt reynist braut Kavanaugh kynferðislega á Ford fyrir um
30 árum. Fyrir helgi, áður en nafn Ford kom fram, neitaði hann öllu.
Kona sakar dóm-
araefnið um áreitni
Á að hafa káfað og reynt að klæða úr
Á meðan Mangkhut ríður yfir
Kína eru Filippseyingar í óðaönn
að reyna að bjarga því sem
bjargað verður. Ljóst er að eyði-
leggingin er gríðarlega mikil og
hafa 59 verið staðfestir látnir
þarlendis vegna ofsaveðursins.
Með fellibylnum hafa fylgt
skriðuföll sem hafa þverað vegi
og m.a. lokað af gistiskála um
24 námuverkamanna sem yfir-
völd vinna nú að að bjarga út
áður en það er um seinan.
„Við erum nú þegar fátæk og
svo kemur þetta fyrir. Við höf-
um gefið upp vonina,“ sagði
Mary Anne Baril í samtali við
AFP, en hún er ein af mörgum
maís- og hrísgrjónabændum
sem hafa beðið mikinn skaða á
seinustu dögum.
Hafa gefið
upp vonina
BJÖRGUNARAÐGERÐIR Á
FILIPPSEYJUM
AFP
Vaðið Vatnið náði þessum björgunarmönnum upp að mitti í spilavítisborginni Macau í gærmorgun.
AFP
Flóð Kona reynir að fá hjálp fyrir utan hús sitt í Lumberton í N-Karólínu
í Bandaríkjunum á laugardagsmorgun. Minnst tólf hafa látist.