Morgunblaðið - 17.09.2018, Side 17

Morgunblaðið - 17.09.2018, Side 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2018 Hjátrú Svartur köttur ætlaði að hlaupa inn á völlinn í stöðunni 1:0 fyrir ÍBV á móti Val í gær. Jón Höskuldsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, náði kettinum áður og svo fór að Valur vann 5:1. Árni Sæberg Í september í fyrra hófst umfangsmesta umbótaferli í sögu ut- anríkisþjónustunnar. Markmiðið var að ís- lenska þjóðin yrði hæf- ari til að grípa tækifæri framtíðarinnar og bregðast við áskor- unum sem hún stendur frammi fyrir. Þetta var leiðarljósið í 151 tillögu skýrslunnar „Utanrík- isþjónusta til framtíðar – hags- munagæsla í síbreytilegum heimi“. Þar er sjónum beint að því hvernig best megi nýta mannauð og fjármuni á sveigjanlegan hátt og með skýrri forgangsröðun. Með samstilltu átaki hafa nú, ári síðar, yfir eitt hundrað tillögur þegar komið til fram- kvæmda. Þess sjást skýr merki í störfum okkar bæði heima og er- lendis. Ísland hefur ávallt byggt afkomu sína á útflutningi. Með breyttri heimsmynd og lífsháttum verðum við í enn ríkara mæli að reiða okkur á markaðsaðgengi erlendis fyrir ís- lenskar vörur, þjónustu og hugvit. Þessi meginforsenda viðhalds og vaxtar íslensks þjóðarbús er grunns- tef áðurnefndrar skýrslu. Í sam- ræmi við hana voru samþykkt lög um breytingar á stöðu Ís- landsstofu og tilhögun fríverslunarviðræðna verið breytt. Viðskipta- fulltrúi hefur verið ráð- inn við sendiráðið í Japan og svipuð ráðn- ing undirbúin við sendiráðið í Kanada. Í Afríku hefur sendiráðið í Úganda verið styrkt til að kortleggja við- skiptatækifæri í álf- unni og gerðar hafa verið áætlanir um opnun við- skiptaskrifstofa á vesturströnd Bandaríkjanna og í Austur-Asíu. Í sumarbyrjun fór ég Japans til að þrýsta á um fríverslunarsamninginn og loftferðasamning og nýverið hélt ég til Kína til að fylgja eftir gildandi fríverslunarsamningi, íslenskum út- flutningi til hagsbóta. Sterkari staða innan EES hefur lengi verið markmið íslenskra stjórnvalda. Með útgáfu skýrslunnar „Gengið til góðs – skref í átt að bættri framkvæmd EES-samnings- ins“ og samþykki ríkisstjórnar um ráðstafanir horfir mjög til bóta. Þannig má nefna afturhvarf til þess að öll ráðuneyti hafi fulltrúa í Bruss- el til að efla íslenska yfirsýn og hags- munagæslu. Vænti ég þess að sjá áþreifanlegan árangur af þessu á næstu misserum. Öryggis- og varnarmál hafa aftur fengið þann sess sem hæfir fullvalda ríki og endurspegla breyttar alþjóð- legar aðstæður. Varnarmálaskrif- stofa hefur verið endurreist og fram- lög til öryggis- og varnarmála aukin sem gerir Íslandi betur kleift að standa við skuldbindingar hvað varðar eigin viðbúnað og gagnvart bandalagsríkjum. Framlög til þróunarsamvinnu fara sömuleiðis vaxandi. Fljótlega verður lögð fram tillaga til þingsályktunar um alþjóðlega þróunarsamvinnu Ís- lands 2019-2023 þar sem áherslur okkar og áætlanir verða vel skil- greindar með heimsmarkmið Sam- einuðu þjóðanna að leiðarljósi. Nið- urstöður nýlegrar jafningjarýni á vegum þróunarsamvinnunefndar OECD eru afar jákvæðar. Þar erum við hvött til þess að nýta áfram sér- þekkingu okkar í þágu fátækra þjóða, t.d. á sviði jarðhita og sjávar- útvegs. Samstarf við íslenskt at- vinnulíf hefur verið aukið og einka- geirinn hvattur til fjárfestinga enda ljóst að heimsmarkmiðunum verður ekki einungis náð með opinberri þróunarsamvinnu. Senn munu svo sérstakir þróunarsamvinnufulltrúar hjá Sameinuðu þjóðunum og OECD sinna öflun og miðlun upplýsinga. Undirbúningur formennsku Ís- lands í Norðurskautsráðinu 2019- 2021 er kominn vel á veg og að sama skapi gengur vel að undirbúa for- mennsku Íslands í norrænu ráð- herranefndinni og samstarfi Norð- urlanda og Eystrasaltsríkja. Það er krefjandi en jafnframt spennandi að takast slíkt á hendur og í því felast mikil tækifæri fyrir land og þjóð. Sama á við um setu Íslands í mann- réttindaráði Sameinuðu þjóðanna næstu misserin en það er eitt stærsta verkefni á alþjóðavettvangi sem Ísland hefur undirgengist. Í framhaldinu bíða formennska Ís- lands í Evrópuráðinu 2022-2023 og hugsanleg seta í stjórn UNESCO 2021-2025. Það er sérstakt metnaðarmál ut- anríkisþjónustunnar að aðstoða Ís- lendinga í vanda erlendis. Þegar hafa ýmsar tillögur skýrslunnar sem varða borgaraþjónustu verið fram- kvæmdar, t.d. varðandi útgáfu vega- bréfa. Kjörræðismenn Íslands um allan heim hafa lengi veitt ómet- anlega aðstoð og svo verður áfram. Því til viðbótar er ætlunin að virkja þá betur í viðskiptaþjónustu með auknum stuðningi úr ráðuneytinu. Á meðal annarra nýmæla má nefna að deild sendiherra og sér- stakra erindreka með búsetu á Ís- landi er tekin til starfa. Vonir standa til að þannig verði ýmis erindrekstur gagnvart öðrum ríkjum og stofn- unum markvissari og álagi létt af sendiskrifstofum. Þá starfar nú deild sem fylgist með stjórnsýslu- framkvæmd utanríkisþjónustunnar og nýtingu mannauðs og fjár. Þótt mörg störf í utanríkisþjón- ustunni séu óhjákvæmilega unnin í trúnaði á gagnsæi samt að ríkja eins og kostur er. Því hefur upplýsinga- og greiningargeta ráðuneytisins verið efld og allt verklag endur- skoðað. Jafnframt hefur verið leitað til innlendra og erlendra aðila um hvernig efla megi umræðu um utan- ríkismál. Ég bind miklar vonir við að þessar umbætur verði ekki afmarkað verk- efni heldur upphaf á stöðugu ferli. Stigvaxandi árangur af íslenskri hagsmunagæslu í síbreytilegum heimi verður ávallt okkar markmið. Eftir Guðlaug Þór Þórðarson »Með samstilltu átaki hafa nú, ári síðar, yfir hundrað tillögur þegar komið til framkvæmda. Þess sjást skýr merki í störf- um okkar heima og erlendis. Guðlaugur Þór Þórðarson Höfundur er utanríkisráðherra. 151 skref að enn betri utanríkisþjónustu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.