Morgunblaðið - 17.09.2018, Síða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2018
Hjátrú Svartur köttur ætlaði að hlaupa inn á völlinn í stöðunni 1:0 fyrir ÍBV á móti Val í gær. Jón Höskuldsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, náði kettinum áður og svo fór að Valur vann 5:1.
Árni Sæberg
Í september í fyrra
hófst umfangsmesta
umbótaferli í sögu ut-
anríkisþjónustunnar.
Markmiðið var að ís-
lenska þjóðin yrði hæf-
ari til að grípa tækifæri
framtíðarinnar og
bregðast við áskor-
unum sem hún stendur
frammi fyrir. Þetta var
leiðarljósið í 151 tillögu
skýrslunnar „Utanrík-
isþjónusta til framtíðar – hags-
munagæsla í síbreytilegum heimi“.
Þar er sjónum beint að því hvernig
best megi nýta mannauð og fjármuni
á sveigjanlegan hátt og með skýrri
forgangsröðun. Með samstilltu átaki
hafa nú, ári síðar, yfir eitt hundrað
tillögur þegar komið til fram-
kvæmda. Þess sjást skýr merki í
störfum okkar bæði heima og er-
lendis.
Ísland hefur ávallt byggt afkomu
sína á útflutningi. Með breyttri
heimsmynd og lífsháttum verðum
við í enn ríkara mæli að reiða okkur
á markaðsaðgengi erlendis fyrir ís-
lenskar vörur, þjónustu og hugvit.
Þessi meginforsenda viðhalds og
vaxtar íslensks þjóðarbús er grunns-
tef áðurnefndrar skýrslu. Í sam-
ræmi við hana voru
samþykkt lög um
breytingar á stöðu Ís-
landsstofu og tilhögun
fríverslunarviðræðna
verið breytt. Viðskipta-
fulltrúi hefur verið ráð-
inn við sendiráðið í
Japan og svipuð ráðn-
ing undirbúin við
sendiráðið í Kanada. Í
Afríku hefur sendiráðið
í Úganda verið styrkt
til að kortleggja við-
skiptatækifæri í álf-
unni og gerðar hafa
verið áætlanir um opnun við-
skiptaskrifstofa á vesturströnd
Bandaríkjanna og í Austur-Asíu. Í
sumarbyrjun fór ég Japans til að
þrýsta á um fríverslunarsamninginn
og loftferðasamning og nýverið hélt
ég til Kína til að fylgja eftir gildandi
fríverslunarsamningi, íslenskum út-
flutningi til hagsbóta.
Sterkari staða innan EES hefur
lengi verið markmið íslenskra
stjórnvalda. Með útgáfu skýrslunnar
„Gengið til góðs – skref í átt að
bættri framkvæmd EES-samnings-
ins“ og samþykki ríkisstjórnar um
ráðstafanir horfir mjög til bóta.
Þannig má nefna afturhvarf til þess
að öll ráðuneyti hafi fulltrúa í Bruss-
el til að efla íslenska yfirsýn og hags-
munagæslu. Vænti ég þess að sjá
áþreifanlegan árangur af þessu á
næstu misserum.
Öryggis- og varnarmál hafa aftur
fengið þann sess sem hæfir fullvalda
ríki og endurspegla breyttar alþjóð-
legar aðstæður. Varnarmálaskrif-
stofa hefur verið endurreist og fram-
lög til öryggis- og varnarmála aukin
sem gerir Íslandi betur kleift að
standa við skuldbindingar hvað
varðar eigin viðbúnað og gagnvart
bandalagsríkjum.
Framlög til þróunarsamvinnu fara
sömuleiðis vaxandi. Fljótlega verður
lögð fram tillaga til þingsályktunar
um alþjóðlega þróunarsamvinnu Ís-
lands 2019-2023 þar sem áherslur
okkar og áætlanir verða vel skil-
greindar með heimsmarkmið Sam-
einuðu þjóðanna að leiðarljósi. Nið-
urstöður nýlegrar jafningjarýni á
vegum þróunarsamvinnunefndar
OECD eru afar jákvæðar. Þar erum
við hvött til þess að nýta áfram sér-
þekkingu okkar í þágu fátækra
þjóða, t.d. á sviði jarðhita og sjávar-
útvegs. Samstarf við íslenskt at-
vinnulíf hefur verið aukið og einka-
geirinn hvattur til fjárfestinga enda
ljóst að heimsmarkmiðunum verður
ekki einungis náð með opinberri
þróunarsamvinnu. Senn munu svo
sérstakir þróunarsamvinnufulltrúar
hjá Sameinuðu þjóðunum og OECD
sinna öflun og miðlun upplýsinga.
Undirbúningur formennsku Ís-
lands í Norðurskautsráðinu 2019-
2021 er kominn vel á veg og að sama
skapi gengur vel að undirbúa for-
mennsku Íslands í norrænu ráð-
herranefndinni og samstarfi Norð-
urlanda og Eystrasaltsríkja. Það er
krefjandi en jafnframt spennandi að
takast slíkt á hendur og í því felast
mikil tækifæri fyrir land og þjóð.
Sama á við um setu Íslands í mann-
réttindaráði Sameinuðu þjóðanna
næstu misserin en það er eitt
stærsta verkefni á alþjóðavettvangi
sem Ísland hefur undirgengist. Í
framhaldinu bíða formennska Ís-
lands í Evrópuráðinu 2022-2023 og
hugsanleg seta í stjórn UNESCO
2021-2025.
Það er sérstakt metnaðarmál ut-
anríkisþjónustunnar að aðstoða Ís-
lendinga í vanda erlendis. Þegar
hafa ýmsar tillögur skýrslunnar sem
varða borgaraþjónustu verið fram-
kvæmdar, t.d. varðandi útgáfu vega-
bréfa. Kjörræðismenn Íslands um
allan heim hafa lengi veitt ómet-
anlega aðstoð og svo verður áfram.
Því til viðbótar er ætlunin að virkja
þá betur í viðskiptaþjónustu með
auknum stuðningi úr ráðuneytinu.
Á meðal annarra nýmæla má
nefna að deild sendiherra og sér-
stakra erindreka með búsetu á Ís-
landi er tekin til starfa. Vonir standa
til að þannig verði ýmis erindrekstur
gagnvart öðrum ríkjum og stofn-
unum markvissari og álagi létt af
sendiskrifstofum. Þá starfar nú
deild sem fylgist með stjórnsýslu-
framkvæmd utanríkisþjónustunnar
og nýtingu mannauðs og fjár.
Þótt mörg störf í utanríkisþjón-
ustunni séu óhjákvæmilega unnin í
trúnaði á gagnsæi samt að ríkja eins
og kostur er. Því hefur upplýsinga-
og greiningargeta ráðuneytisins
verið efld og allt verklag endur-
skoðað. Jafnframt hefur verið leitað
til innlendra og erlendra aðila um
hvernig efla megi umræðu um utan-
ríkismál.
Ég bind miklar vonir við að þessar
umbætur verði ekki afmarkað verk-
efni heldur upphaf á stöðugu ferli.
Stigvaxandi árangur af íslenskri
hagsmunagæslu í síbreytilegum
heimi verður ávallt okkar markmið.
Eftir Guðlaug Þór
Þórðarson »Með samstilltu átaki
hafa nú, ári síðar,
yfir hundrað tillögur
þegar komið til
framkvæmda. Þess
sjást skýr merki í störf-
um okkar heima og
erlendis.
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Höfundur er utanríkisráðherra.
151 skref að enn betri utanríkisþjónustu