Morgunblaðið - 21.09.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018
borgin í kynningarherferð með þá
verkferla til húseigenda og rekstrar-
aðila sem hafa lent í veggjakroti og
þeim boðin aðstoð. „Þannig að að-
stoðin er fyrir hendi en ekki margir
gripu boltann. Megnið af þessu eru
einkaeigur og þar má borgin ekki
gera neitt nema með samþykki eig-
enda. Ef fólk er í vandræðum og veit
ekki hvert það á að snúa sér þá er
hugmyndin með þessu ferli að við
myndum hjálpa, sýna fólki hand-
tökin og svo aðstoða við kostnað að
einhverjum hluta,“ segir Atli.
mhj@mbl.is
lækkandi og hefur verið um 25 millj-
ónir á ári síðustu ár, að sögn Mörtu.
„Það er bara 25 milljónum of mikið
og skattgreiðendur eiga ekki að bera
þann kostnað því þetta er það sem
borgarsjóður leggur út einn og sér,“
segir Marta en í þeirri tölu er ekki
kostnaður við málun og hreinsun á
t.d. strætóskýlum og strætis-
vögnum. Atli Marel Vokes, deildar-
stjóri hjá skrifstofu reksturs og um-
hirðu Reykjavíkurborgar, segir að í
sumar hafi verið gerð úttekt á
veggjakroti í miðborginni og verk-
ferlum verið komið af stað. Fór
Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, lagði til alls-
herjarátak í að hreinsa veggjakrot í
borginni í umhverfisráði í vikunni. Í
tillögunni segir hún að veggjakrot
hafi stóraukist og að þörf sé á að
leita eftir samstarfi við m.a. ung-
mennaráð, íbúasamtök, skóla, frí-
stundamiðstöðvar, félagasamtök og
rekstraraðila í þeirri viðleitni að
draga úr veggjakroti. „Okkur hafa
borist fjölmargar kvartanir bæði frá
íbúum og rekstraraðilum um að
veggjakrot sé að aukast í borginni. Á
síðustu árum hefur það verið að fær-
ast í vöxt og er að teygja sig út í út-
hverfin,“ segir Marta, spurð um
hvaðan hún hafi það að veggjakrot
hafi aukist.
Lítið verið gert síðustu ár
Marta hefur áður lagt fram sams-
konar tillögu í borgarstjórn fyrir
tveimur árum, sem fór til umhverfis-
og skipulagssviðs. „Það hefur lítið
verið gert síðan þá og það eru teikn
á lofti um að þetta sé að færast veru-
lega í aukana. Það verður að stemma
stigu við svona skemmdarverka-
starfsemi,“ segir Marta. Á þeim
tíma aflaði hún sér upplýsinga um
kostnað borgarsjóðs sem nam um
159 milljónum árið 2008 en með
markvissu átaki fór kostnaðurinn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Rauðarárstígur Eigendur þessa húss hafa varla tekið krotinu fagnandi. Borgarfulltrúi vill átak gegn veggjakroti.
Leggur til átak gegn
veggjakroti í borginni
Kostar borgarsjóð milljónir árlega, segir borgarfulltrúi
Morgunblaðið/Hari
Veggjakrot Nýtt umferðarmannvirki við Miklubraut varð fljótt fyrir kroti.
„Nei, vatnið hefur verið svo
gruggugt í sumar að ekkert hefur
sést til hans,“ sagði Árni Einarson,
forstöðumaður Náttúrurannsókna-
stöðvarinnar við Mývatn, þegar
Morgunblaðið leitaði fregna af
kúluskítnum í vatninu.
Kúluskítur er eitt vaxtarform
grænþörungs sem heitir vatna-
skúfur. Kúluskítur var alfriðaður í
Mývatni árið 2006 og komst þá í
flokk með nokkrum öðrum sjald-
gæfum og sérstökum plöntum.
Þegar hann fannst í Mývatni í lok
áttunda áratugarins var hann í
stórum breiðum og talið að tug-
milljónir væru af honum í vatninu,
en fyrir fjórum árum virtist hann
alveg horfinn.
Vart við kúluskít í fyrra
Í fyrrahaust sagði Morgunblaðið
frá því að vart hefði orðið hnoðra
kúluskíts í Mývatni annað árið í
röð.
Talið er að kúluskítur lifi ein-
ungis á örfáum stöðum í heiminum
og stórvaxinn kúluskítur aðallega í
þremur stöðuvötnum, þ.e. í Mý-
vatni, í Akanvatni í Japan og einu
vatni í Úkraínu. Hann finnst m.a.
einnig í Kringluvatni í Suður-
Þingeyjarsýslu, en verður ekki
stór.
Stærstur verður kúluskítur um
15 sentimetrar í þvermál og sem
slíkur fékk hann heiti sitt, enda
ekki velkominn í net silungs-
bænda. gudmundur@mbl.is
Of gruggugt til að
greina kúluskít
Virtist vera að taka við sér í Mývatni
í fyrrahaust Lifir á örfáum stöðum
Morgunblaðið/Þorkell
Kúluskítur Grænleitur og loðinn
grænþörungur í Mývatni.
Reykjavíkurborg mun auka stuðn-
ing við Félagsbústaði ehf. vegna
kaupa og uppbyggingar á fé-
lagslegu leiguhúsnæði. Jafnframt
stendur til að fjölga smáhýsum fyr-
ir utangarðsfólk.
Samþykkt hefur verið í borgar-
ráði að veitt verði sérstök fjár-
framlög til að byggja fleiri leigu-
íbúðir umfram það sem þegar er
gert, bæði af hálfu ríkis og borgar.
Gildir stuðningurinn afturvirkt frá
1. janúar í ár og felur í sér 5.075
milljóna kr. hækkun á framlögum
til uppbyggingar félagslegs hús-
næðis.
Gert er ráð fyrir að fjölga leigu-
íbúðum Félagsbústaða um 100 íbúð-
ir á þessu ári og var ákveðið að
biðla til ráðherra um að afnema
fjármagnstekjuskatt af lánum sem
borgarsjóður veitir Félagsbústöð-
um ehf.
Einnig var samþykkt í borgar-
ráði að verja 450 milljónum kr. til
kaupa á allt að 25 smáhýsum, sem
verða síðan tengd við veitukerfi.
Verið er að kanna slík smáhýsi og
hvaða lóðir gætu hentað fyrir þau.
Fjölga félagslegum
íbúðum og kaupa
allt að 25 smáhýsi
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Gerðar voru samtals 42.349 skimanir
fyrir brjóstakrabbameini og legháls-
krabbameini hér á landi í fyrra. Þar
af voru 18.606 vegna brjóstakrabba-
meins og 23.743 vegna legháls-
krabbameins.
Munurinn á þessum tveimur hóp-
um skýrist af þremur þáttum, að
sögn Ágústs Inga Ágústssonar, yf-
irlæknis Leitarstöðvar Krabba-
meinsfélags Íslands. Aldursbilið er
meira í leghálsskimuninni, 23-65 ára
á móti 40-69 ára í brjóstakrabba-
meinsskimun. Skimun fyrir brjósta-
krabbameini fer fram á tveggja ára
fresti en á þriggja ára fresti fyrir
leghálskrabbameini. Í þriðja lagi er
þátttaka í skimun fyrir brjósta-
krabbameini lakari (57%) en fyrir
leghálskrabbameini (68%). „Þetta
gerir það að verkum að ekki er hægt
að bera þessar tölur saman beint.
Við erum að leita allra leiða til að
auka þátttökuna í báðum þessum
skimunum og teljum okkur þegar sjá
árangur af því,“ sagði Ágúst Ingi.
Flestar konurnar koma í skimun
eftir að hafa fengið boðun frá Leit-
arstöðinni. Stundum svara konur
ekki strax kalli en ákveða að koma
síðar. Þá er litið svo á að þær komi
ótilkvaddar og fá skimun.
Skimanirnar fyrir brjóstakrabba-
meini og leghálskrabbameini eru
tvær aðskildar rannsóknir. Ef svo
stendur á að þær geti farið fram á
sama tíma er konum velkomið að láta
skima fyrir hvoru tveggja í sömu
heimsókninni til Leitarstöðvarinnar.
Ef konur hafa einhver einkenni
eða áhyggjur og vilja koma í skimun
án þess að hafa fengið boðun þurfa
þær að fá tilvísun hjá heimilislækni,
að sögn Ágústs Inga.
Konur eldri en 69 ára hafa sumar
kvartað yfir því að vera ekki lengur
boðaðar í brjóstakrabbameinsskim-
un. „Þeim stendur skimunin til boða
og er frjálst að koma svo lengi sem
þær vilja en fá ekki boðun, en það
þurfa að líða tvö ár á milli skimana,“
sagði Ágúst Ingi.
Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðu Krabbameinsfélagsins
(krabb.is).
Yfir 42 þúsund skimanir
Talsvert færri konur láta skima fyrir brjóstakrabbameini en leghálskrabba-
meini Beðið er um tilvísun ef skimun fellur utan reglulega boðaðra skimana
Ljósmynd/Krabbameinsfélagið
Brjóstaskoðun Íslenskar konur á vissum aldursbilum eru boðaðar reglu-
lega í skimanir vegna brjóstakrabbameins og leghálskrabbameins.
Loftkæling
Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666
og varmadælur